Farðu á netið í símanum þínum
Ef þú ert með farsímann í áskrift og notar hann reglulega til að fara á netið, skoða tölvupóst eða ert með forrit sem þurfa reglulega að fara á netið er skynsamlegt að bæta gagnamagnspakka við áskriftina. Ef þú ert með farsíma í áskrift getur þú valið gagnamagnspakka á Mínum síðum, í 1414 appinu eða með því að hafa samband við þjónustuver Vodafone. Athugið að áskriftarleiðirnar Vodafone 250, 500 og 1000 eru allar með inniföldu gagnamagni.
Gagnapakkar fyrir síma í áskrift
| Þjónustuflokkur | Mánaðargjald | Umframnotkun |
|---|---|---|
| Dagnet | 90 kr. hver 5 MB | |
| 300 MB pakki | 550 kr. | 90 kr. hver 5 MB |
| 500 MB pakki | 890 kr. | 90 kr. hver 5 MB |
| 1 GB pakki | 1.090 kr. | 90 kr. hver 5 MB |
| 5 GB pakki | 1.990 kr. | 90 kr. hver 5 MB |
Við mælum með gagnamagnspökkum fyrir alla sem nota netið reglulega í símanum sínum, kíktu á bloggfærslu okkar um málið. Gagnamagnspakka getur þú keypt á Mínum síðum.
Hver og einn verður að finna hvaða gagnamagnspakki hentar, en þumalputtareglan er að Dagnetið er sniðug leið fyrir þá sem nota ekki netið í símann daglega. 300 MB pakkinn hentar vel fyrir reglulega notkun á tölvupósti og vefráp og með 500 MB pakkanum getur þú sent tölvupósta með stórum viðhengjum, horft á myndbönd og notað öll helstu forrit sem þarfnast gagnasambands. 1 GB og sérstaklega 5 GB pakkarnir eru svo fyrir þá kröfuhörðu, sem t.d. nota símann reglulega til að nettengja tölvuna og vinna með henni á Netinu. Þessir pakkar virka jafnframt best fyrir þá sem eru með 3G Netbeininn sem hægt er að tengja við heimasíma.
Til að fræðast um gagnlegar vefsíður, forrit og fleira sniðugt fyrir símann þinn skaltu skoða ítarlegri upplýsingar um netið í símann.
Þú getur einnig skoðað aðstoð, pakka í boði fyrir frelsi eða 3G net fyrir tölvuna, en þar eru aðrir áskriftarpakkar í boði.
Dagnet
Þeir sem ekki eru með einn af gagnamagnspökkunum eru á Dagneti. Með Dagneti eru greiddar 90 kr. á dag fyrir hvern þann dag sem síminn er notaður til gagnaflutninga. Þessar 90 krónur duga fyrir 5 MB gagnamagni og ef farið er yfir það innan dagsins bætast aðrar 90 krónur við reikninginn.
Það er hagstæðast fyrir þá sem nota símann til að fara reglulega á netið að bæta gagnapakka við áskriftina. Hafðu samband við þjónustuver okkar í síma 1414 eða komdu í verslanir Vodafone til að bæta gagnapakka við þína áskrift.


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?