Vodafone.is - Aukaþjónusta

Nýttu þér aukaþjónustu okkar

Vertu viss um að nýta til fulls þá möguleika sem GSM og borðsíminn þinn bjóða upp á.

Talhólf

Talhólf

GSM áskrift Vodafone fylgir talhólf. Talhólf er eins konar GSM símsvari. Sé kveikt á vísun í talhólf svarar það fyrir þig ef þú getur ekki svarað í símann eða ef slökkt er á honum, rétt eins og símsvari.

Til að stilla talhólfið hringir þú í það. Þegar hringt er í talhólfið í fyrsta skipti er spiluð kynning fyrir nýja notendur. Kynninguna getur þú alltaf hlustað á aftur frá aðalvali talhólfsins með því að slá inn 888.

Kynningin aðstoðar þig við að setja upp talhólfið. Uppsetning talhólfsins felur í sér að þér er leiðbeint við að slá inn nýtt aðgangsnúmer og lesa inn ávarpið þitt. Ávarpið er það sem fólk heyrir þegar það hringir í talhólfið þitt til að skilja eftir skilaboð.

Hvenær svarar talhólfið?

Talhólfið tekur við símtölum sem ekki hefur verið svarað innan 3 til 4 hringinga og einnig ef slökkt er á símanum.

Þú getur einnig valið að láta talhólfið svara fyrir þig ef síminn er á tali. Þá er jafnframt mögulegt að láta talhólfið svara öllum hringingum í símann strax.

Hver hringdi?

Hver hringdi?

Þú færð tilkynningu um ný skilaboð í talhólfinu með SMS.

Best er að eyða SMS-inu til að textaminnið í símanum fyllist ekki. Þegar þú hringir í talhólfið er þér boðið að eyða skilaboðunum úr talhólfakerfinu (veldu 5 til að eyða, 4 til að geyma).

Þú getur einnig stillt Hver hringdi? þjónustuna til að fá SMS þegar einhver reyndi að hringja án þess að viðkomandi fái vísun í talhólfið. Tilkynning um símtalið sem þú svaraðir ekki er þá ekki háð því að sá sem hringdi lesi inn skilaboð í talhólfið.

Símtalsflutningur

Símtalsflutningur fyrir GSM

Þú getur auðveldlega stillt GSM símann þinn þannig að öll símtöl í hann flytjast í annan síma t.d. heim til þín eða í vinnuna. Þú getur valið að flytja símtalið í hvaða símanúmer sem er, innanlands eða erlendis, í stað þess að flytja það í talhólfið.

Símtalsflutningur í talhólfið þitt kostar ekkert.

Símtalsflutningur þegar ekki er svarað í símann

talhólfsnúmer
Þjónustan aftengd:

Símtalsflutningur þegar slökkt er á símanum

talhólfsnúmer
Þjónustan aftengd:

Símtalsflutningur þegar er á tali:

talhólfsnúmer
Þjónustan aftengd:

Öll símtöl flutt beint í annað númer:

talhólfsnúmer
Þjónustan aftengd:

Símtalsflutningur þegar ekki er svarað í símann

Símtalsflutningur fyrir fastlínu

Símtalsflutningur ef ekki er svarað

Flutningur tengdur símanúmer sem á flytja símtölin í
Flutningur aftengdur:

Ef þú stillir ekki tímalengdina sem á að líða áður en símtal flyst þá flyst símtalið eftir 15 sekúndur. Ef þú vilt velja aðra tímalengd gerir þú símanúmer sem á flytja símtölin í tímann sem á að líða áður en símtal flyst . Tímalengdin getur verið 5, 10, 15, 20, 25 eða 30 sekúndur.

2. Hringiflutningur – allar hringingar

Flutningur tengdur símanúmer sem á flytja símtölin í
Flutningur aftengdur

3. Hringiflutningur – þegar er á tali

Flutningur tengdur símanúmer sem á flytja símtölin í
Flutningur aftengdur

Fundarsíminn

Fundarsíminn

Hægt er að boða allt að 10 gesti á fund hvar og hvenær sem er. Fundarstjóri skilgreinir tíma, símanúmer og auðkennisnúmer fundarins.

Fundarmenn hringja síðan í 757 5000 og slá inn símanúmer fundarstjóra og auðkennisnúmer fundar sem fundarstjóri hefur þegar sent út, t.d. með tölvupósti. Við þetta fæst samband við símafundinn.

Staðfesting er spiluð þegar nýr fundarmaður tengist símafundi. Hægt er að hringja í 757 5000 úr öllum símum og frá útlöndum, en þá er hringt í +354 757 5000.

Skref-fyrir-skref

Sá sem boðar fund (fundarstjóri) þarf að ákveða tíma og fjögurra stafa lykilorð. Hann þarf einnig að slá inn símanúmerið sitt sem hann hringir úr. Þessum upplýsingum kemur fundarstjóri til annarra fundargesta. Hægt að notast við t.d. tölvupóst og SMS til þess að koma skilaboðunum áleiðis.

Ekki þarf að stofna fundinn sérstaklega, heldur hringja allir fundargestir í 757-5000 á tilsettum tíma, og verður fundurinn til í kerfinu við það að fyrsti þátttakandinn hringi inn.

Talvél svarar og í framhaldi er símanúmer fundarstjóra slegið inn og svo ýtt á #. Því næst er fjögurra stafa lykilorðið, sem fundarstjóri úthlutaði, slegið inn og svo ýtt á #.

Þátttakandi fær samband við fundinn

Talvélin tilkynnir um nýjan þátttakanda

Þátttakandi yfirgefur fundinn með því að leggja á.

Númeraleynd og læsing

Skammtímanúmeraleynd

Til að fela númerið þitt þegar þú hringir velur þú til að virkja númeraleyndina. Til að birta númerið aftur velur þú

Símtælslæsing með lykilnúmeri

Til að virkja símtalslæsingu velur þú lykilnúmerið

Til að taka læsingu af velur þú lykilnúmerið

Verðskrá fundarsímans

Upphafsgjald 9,97 kr.
GMínútuverð 4,98 kr.

Mínar síður


Spurt og svarað

Ertu í vanda eða vantar þig hjálp? Hér eru algengar spurningar og svör.

Tungumál