
Með SOS þjónustu Vodafone getur þú verið í sambandi jafnvel þótt inneignin klárist. Notaðu SOS Lán, SOS hringdu eða SOS kollekt til að ná sambandi þegar þú þarft.
Með því að senda skilaboðin SOS LAN í 1400 fæst 100 kr. lán. Við næstu hleðslu á inneign dragast 100 kr. frá hleðslunni. Hægt er að fá eitt lán í einu, þegar það hefur verið greitt upp (með kaup á inneign) er hægt að fá nýtt lán.
Sendu skilaboðin SOS símanúmer (þess sem á að hringja í þig) í 1400. Viðkomandi fær SMS skilaboð um að þú óskir eftir símtali.
Þú getur sent skilaboðin til allra íslenskra númera, óháð kerfi.
Hringdu kollekt með *888*símanúmer# og ýttu á hringja . Þá hringir hjá þeim aðila sem valinn var og þegar hann svarar er honum boðið að samþykkja greiðslu samtalsins.
Allir viðskiptavinir Vodafone geta notað þjónustuna óháð áskriftarflokki.
Ertu í vanda eða vantar þig hjálp? Hér eru algengar spurningar og svör.
Þú færð aðstoð í síma 1414. Kíktu á spurt og svarað eða sendu okkur fyrirspurn.