Netið í símann
Ef þú ert með farsímann í frelsi og notar hann reglulega til að fara á netið, skoða tölvupóst eða ert með forrit sem þurfa reglulega að fara á netið er skynsamlegt að bæta gagnamagnspakka við frelsið.
Gagnapakkar fyrir frelsi
| Þjónustuflokkur | Mánaðargjald | Umframnotkun |
|---|---|---|
| Dagnet* | 90 kr. hver 5 MB | |
| 300 MB pakki* | 550 kr. | 90 kr. hver 5 MB |
| 1 GB pakki | 1.090 kr. | 90 kr. hver 5 MB |
| 5 GB pakki | 1.990 kr. | 90 kr. hver 5 MB |
* 1. febrúar 2012 breyttist verðskráin þannig að Dagnet varð 90 kr., 200 MB pakkinn varð 300 MB og verðið á honum 550 kr. Annað breyttist ekki.
Hver og einn verður að finna hvaða gagnamagnspakki hentar, en þumalputtareglan er að Dagnetið er sniðug leið fyrir þá sem nota ekki netið í símann daglega. 300 MB pakkinn hentar vel fyrir reglulega notkun á tölvupósti og vefráp. 1 GB pakkinn hentar til að senda tölvupósta með stórum viðhengjum, horfa á myndbönd, nota öll helstu forrit sem þarfnast gagnasambands og nettengja tölvuna. 5 GB pakkinn er fyrir þá allra kröfuhörðustu, sem t.d. nota símann reglulega til að nettengja tölvuna og vinna með henni á netinu.
Til að fræðast um gagnlegar vefsíður, forrit og fleira sniðugt fyrir símann þinn skaltu skoða ítarlegri upplýsingar um netið í símann.
Þú getur einnig skoðað aðstoð, pakka í boði fyrir farsímaáskrift eða 3G net fyrir tölvuna, en þar eru aðrir áskriftarpakkar í boði.
Netið í símann
Dagnet eða gagnamagnspakki?
Þeir sem ekki eru með einn af gagnamagnspökkunum eru á Dagneti. Með Dagneti eru greiddar 90 kr. á dag fyrir hvern þann dag sem síminn er notaður til gagnaflutninga. Þessar 90 krónur duga fyrir 5 MB gagnamagni og ef farið er yfir það innan dagsins dragast aðrar 90 krónur frá inneigninni.
Það er hagstæðast fyrir þá sem nota símann til að fara reglulega á netið að bæta gagnapakka við frelsið. Hafðu samband við þjónustuver okkar í síma 1414 eða komdu í verslanir Vodafone til að bæta gagnapakka við frelsið.

























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?