
Hver hringdi? er ný þjónusta okkar sem gerir viðskiptavinum kleift að fá upplýsingar (SMS) um hver var að reyna að hringja í númerið þegar slökkt var á símanum, hann utan þjónustusvæðis eða á tali.
Ef slökkt er á símanum, hann utan þjónustusvæðis eða á tali færð þú sent SMS þegar þú með upplýsingum um hverjir reyndu að hringja á meðan ekki náðist í símann. Ef þú færð mörg símtöl þá er þeim safnað saman í eitt SMS skeyti. Skeytin eru geymd í allt að því viku ef slökkt er á símanum eða ekki næst í hann yfir þann tíma.
Þjónustan er í boði bæði í áskrift og Frelsi. Ekki er hægt að hafa virkan flutning í Talhólfi á sama tíma.
Þjónustan er virk óháð því hvort síminn er innanlands eða utan, óháð því hvaða farsímakerfi er virkt.
Þjónustan er án endurgjalds innanlands og erlendis.












Þú getur líka stillt Hver hringdi? eða aðrar áframsendingar símtala inni á Mínum síðum.
Ertu í vanda eða vantar þig hjálp? Hér eru algengar spurningar og svör.
Þú færð aðstoð í síma 1414. Kíktu á spurt og svarað eða sendu okkur fyrirspurn.