Vodafone.is - Ferðafrelsi

Promo header

Alvöru Frelsi í útlöndum

Nú getur þú notað GSM Frelsið þitt í fjölda landa án þess að skrá þig sérstaklega í Ferðafrelsi. Veldu landið sem þú ert að fara til hér til hliðar til að skoða verðskrá - ef þú getur ekki notað Frelsið þitt í því landi getur þú flutt númerið þitt í áskrift.

Engir reikningar eftir að þú kemur heim

Nú getur þú farið með Frelsið þitt til útlanda og símtöl eru gjaldfærð um leið og þau eiga sér stað – alveg eins og á Íslandi. Engin reikningur eftir að þú kemur heim.

Hægt að fylla á Frelsið með skafkortum, í heimabanka, á vef Vodafone eða með því að hringja í 1414. Athugið að ekki er hægt að kaupa skafkort fyrir Vodafone Frelsi í útlöndum.

Veljið land

Veldu landið sem þú vilt ferðast til úr listanum hér fyrir neðan:

Algengar spurningar um Ferðafrelsi

1. Hvað þarf að gera til að fá Ferðafrelsi?

Þú þarf aðeins að vera með Frelsi hjá Vodafone.

2. . Hvernig greiði ég fyrir símtöl í útlöndum?

Notkun þín erlendis er dregin af inneigninni þinni. Þú getur kannað inneignina með Stöðumæli Vodafone, alveg einsog heima, með því að slá inn *120# (hringja) (Stöðumælir er gjaldfrjáls þjónusta), eða með því að hringja í 1400.

3. Hvernig get ég fyllt á Frelsi í útlöndum?

Þú getur keypt inneign með GSM greiðslu, á vodafone.is, í netbankanum þínum og með símtali í 1414. Viðskiptavinir í Vodafone Frelsi geta hringt gjaldfrjálst í 1414 með því að slá inn*111*1414# (hringja).

4. Í hvaða löndum get ég notað Frelsið mitt?

Veldu landið sem þú ert að fara í kassanum hér til hægri og þú færð svar við því.

5. Þarf ég að skrifa undir eða samþykkja eitthvað?

Nei, þú þarft ekki að skrifa undir eða samþykkja neitt. Ef þú ert með Frelsi hjá Vodafone þá ertu sjálfkrafa með Ferðafrelsi.

6. Get ég skráð mig úr þjónustunni?

Ferðafrelsi er grunnþjónusta sem ekki þarf að skrá sig fyrir og kostar ekkert. Þess vegna er ekki hægt að skrá sig úr henni.

7. Get ég hringt í 1414/1415/1400 frá útlöndum?

Til að hringja og hlusta á stöðuna / fylla á í síma 1400 er hringt í *111*1400#

Til að hringja í þjónustuver í síma 1414 er hringt í *111*1414#

Til að hringja í talhólf í síma 1415 er hringt í *111*1415#

8. Hvernig virkar að nota *111*1414#?

Þú stimplar inn táknin og númerin án þess að hafa bil í símann þinn og hringir. Eftir skamma stund heyrir þú hringingu og færð samband við þjónustuver okkar.

14. Af hverju þarf ég að nota *111símanúmer# til að fá samband?

Með þessu móti getur Vodafone boðið þér að hringja á 0 kr/mín í þessi þrjú númer: 1414, 1400 og 1415.



Mínar síður


Fannstu það sem þig vantaði?

Hvernig finnst þér þessi síða?
Hvað getum við bætt?

Sendu okkur nafnlausa ábendingu* við þessa síðu, hvað finnst þér vanta eða vera óljóst?


Útskýrðu ítarlega hverju þú leitaðir að, svo við getum bætt síðuna.

Senda

Þú þarft ekki að skrifa neitt í reitinn, en verður að ýta á takkann!

Ef þú hefur spurningu eða vantar upplýsingar skaltu hafa samband við þjónustuver.

*IP talan þín er skráð en ekki er hægt að rekja athugasemdina til þín út frá henni.

Tungumál