Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra:

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Það er einfalt að fylla á frelsið

Þú getur fyllt á frelsið beint úr símanum með hraðáfyllingu, stillt sjálfvirka áfyllingu á Mínum síðum eða fyllt á hér á Vodafone.is eða úr Vodafone 1414 appinu með kreditkorti.

Með Stöðumælinum getur þú fylgst með inneigninni og eftirstöðvum af inniföldum SMS-um og mínútum Risafrelsis. Kíktu á Stöðumælinn og settu kóðana inn í minni símans þíns til að geta fylgst með stöðunni.

Þrjú box

Hraðáfylling

Þegar þú hefur skráð þig í Hraðáfyllingu notarðu kóða til að fylla á frelsið þitt eða annarra beint úr símanum þínum (svipað og að senda SMS).

Sjálfvirk áfylling

Með sjálfvirkri áfyllingu af debet- eða kreditkorti þarft þú ekki að hafa áhyggjur af því að fylla á frelsið þitt í hverjum mánuði, því það gerist einfaldlega sjálfkrafa!

Fylla á af kreditkorti

Með hefðbundinni áfyllingu af kreditkorti getur þú fyllt á frelsið þitt, hvort sem þú vilt hefðbundna inneign, Risafrelsi eða gagnamagn.

Spurt og svarað um áfyllingar

Algengar spurningar

  • Hvað er Hraðáfylling?

    Hraðáfylling er handhæg þjónusta þar sem þú getur fyllt á þitt eigið frelsisnúmer eða númer hjá öðrum beint úr símanum þínum. Bæði er hægt að skrá númer í áskrift og frelsi fyrir þjónustunni með því að skrá debet- eða kreditkort í þjónustuna hér á heimasíðunni.

    Þú getur skráð þig á hraðáfyllingarsíðunni, auk þess sem þar má sjá kóðana sem hægt er að nota til að fylla á frelsið þitt eða annarra.

     

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvernig nota ég Hraðáfyllingu?

    UPPHÆÐ PIN

    Svona fyllirðu á Risafrelsi

    990 kr. Risafrelsi: 990 PIN
    1.990 kr. Risafrelsi: 1990 PIN
    2.990 kr. Risafrelsi: 2990 PIN

    UPPHÆÐ PIN SÍMANÚMER

    Fylla á með skafkorti

    Þú getur líka fyllt á með þessari aðferð af skafkorti, en Risafrelsi er ekki fáanlegt með þessari aðferð áfyllingar.

    HLEÐSLUNR

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvað er sjálfvirk áfylling og hvernig er hún virkjuð?

    Með sjálfvirkri áfyllingu af debet- eða kreditkorti þarft þú ekki að hafa áhyggjur af því að fylla á frelsið þitt í hverjum mánuði, því það gerist einfaldlega sjálfkrafa!

    Þú skráir debet- eða kreditkortið þitt í sjálfvirka áfyllingu og þá fyllist á frelsið þitt í byrjun hvers mánaðar fyrir tiltekna upphæð sem þú velur þér.

    Þetta þýðir tvenns konar ávinning fyrir þig, sem gildir fram að næstu sjálfvirku áfyllingu: Vodafone GSM vinanúmer að eigin vali og að frelsið telst sem ein þriggja þjónustuleiða í Vodafone Gull, þannig að þú færð Gull-ávinning af hinum tveimur þjónustuleiðunum sem þú ert með hjá Vodafone.

    Það borgar sig því að vera með sjálfvirka áfyllingu virka. Þú getur skráð sjálfvirka áfyllingu á Mínum síðum.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvar er hægt að fylgjast með stöðu inneignar?

    Þú getur alltaf fengið upplýsingar um stöðu inneignar með því að hringja í gjaldfrjálst þjónustunúmer 1400 eða notað stöðumælinn, sjá nánar hér.

    Einnig er hægt að fylgjast með inneigninni á farsímavef okkar rautt.is eða skrá sig inn á Mínar síður hér á Vodafone.is.

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvernig virkar sjálfvirk áfylling?

    Með sjálfvirkri áfyllingu af debet- eða kreditkorti þarft þú ekki að hafa áhyggjur af því að fylla á frelsið þitt í hverjum mánuði, því það gerist einfaldlega sjálfkrafa!

    Viðskiptavinir geta valið milli tvenns konar sjálfvirkra áfyllinga, mánaðarlegri áfyllingu (alltaf fyllt á sama mánaðardaginn) eða áfyllingu á 30 daga fresti.  

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Get ég verið með sjálfvirka áfyllingu af kreditkortinu mínu en fyllt á með Hraðáfyllingu með debetkortinu?

    Já, þetta eru tvær ólíkar áfyllingaleiðir.

    Hraðáfylling er stök áfylling sem hægt er að nýta sér á einfaldan hátt með því að stimpla inn kóða í símanum sínum þegar búið er að skrá greiðslukort fyrir þjónustunni.

    Sjálfvirk áfylling er aftur á móti regluleg áfyllingarleið sem þú skráir þig í inn á Mínum síðum og velur hvenær hún á að endurtaka sig sjálfkrafa. Við mælum með að viðskiptavinir sem nýta sér Risafrelsi skrái það í sjálfvirka áfyllingu á 30 daga fresti til að ávinningurinn haldist ávallt virkur.   

    Hægt er að hætta með sjálvirka áfyllingu með því að afskrá hana á mínum síðum.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvað er rafræn áfylling?

    Til rafrænna áfyllinga teljast áfylling í heimabanka og hraðbanka, áfylling á vodafone.is með því að velja fylla á frelsi, sjálfvirk áfylling og hraðáfylling.

    Nánari upplýsingar er hægt að nálgast með því að hringja í 1414-1 eða senda fyrirspurn á vodafone@vodafone.is

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hver er gildistími inneigna í frelsi?

    Gildistími fyrir hefðbundnar frelsisinneignir er 6 mánuðir en tilboðsinneignir eins og Risafrelsi gilda í 30 daga.

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn