Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra:

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

FAQ

Algengar spurningar

  • Hvar er hægt að fylgjast með stöðu inneignar?

    Þú getur alltaf fengið upplýsingar um stöðu inneignar með því að hringja í gjaldfrjálst þjónustunúmer 1400 eða notað stöðumælinn, sjá nánar hér.

    Einnig er hægt að fylgjast með inneigninni á farsímavef okkar rautt.is eða skrá sig inn á Mínar síður hér á Vodafone.is.

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvað er Krakkafrelsi ?

    Krakkafrelsi er viðbót við Vodafone Gull og geta viðskiptavinir sem eru með Gull farsímaáskrift skráð sig í þjónustuna og fengið 1.500 kr inneign lagða inn á frelsisnúmerið hjá barni undir 18 ára sér að kostnaðarlausu.

    Hver Gullviðskiptavinur getur fengið að hámarki tvö Krakkafrelsi - en til þess þarf hann að vera með a.m.k. tvær gsm áskriftarþjónustur. Barnið þarf jafnfram að eiga lögheimili hjá Gullviðskiptavininum (falla undir sömu fjölskyldukennitölu) og eins þarf Gullviðskiptavinurinn að standa í skilum við Vodafone.

    Hér má sjá meira um Krakkafrelsi

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvar get ég skoðað og breytt vinanúmerum?

    Þú getur farið inn á Mínar síður á vodafone.is til að skoða/breyta vinaskráningu á númerinu þínu með því að velja að skoða upplýsingar um númerið þitt þar, eða notað 1414 appið í gegnum farsímann þinn.

    Einnig er hægt að koma í verslanir okkar eða hringja í þjónustuver í síma 1414-1 og fá aðstoð við að breyta vinanúmerum.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Er hægt að vera með 5 vini í frelsi?

    Já, til þessa að geta skráð 5 vinanúmer þarf að kaupa ákveðnar tegundir Risafrelsis. Þá skráir þú 5 vini óháð kerfi sem haldast virkir í 30 daga. Meira um Risafrelsi hér.

    Hægt er að kaupa Risafrelsi hér á heimasíðunni, í heimabanka eða hraðbanka og með hraðáfyllingu beint úr GSM símanum. 

    Við mælum með að skrá Risafrelsi í sjálfvirka áfyllingu á 30 daga fresti til að ávinningurinn haldist virkur.

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Er þak á notkun vinamínútna og inniföldum SMSum?

    Já, það er ákveðið hámark á vinamínútum og SMSum til að koma í veg fyrir misnotkun á þjónustum.

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvernig virkja ég 0 kr. Vodafone í Vodafone?

    Til að virkja 0 kr. Vodafone í Vodafone þarf að kaupa 990 kr. Risafrelsi. Þá hringir þú fyrir 0 kr. Vodafone í Vodafone næstu 30 daga og 990 kr. inneignina nýtir þú svo til að hringja annað.

    Við mælum með því að þú skráir Risafrelsi í sjálfvirka áfyllingu þannig að ávinningurinn haldist alltaf inni en einnig er hægt að fylla á Risafrelsið í gegnum síðuna okkar.

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Af hverju ætti ég að skrá frelsisnúmerið og hvar er það gert?

    Við mælum með því að skrá númerið. Þú færð betri þjónustu með því að skrá símanúmerið þitt og aukið öryggi ef númerið týnist eða því stolið. 

    Hægt er að skrá símanúmerið sitt hér á Vodafone.is og þá færðu 500 kr inneign til að hringja fyrir. Einnig er hægt að skrá númerið með því að hringja í þjónustuver okkar 1414 eða koma í verslun Vodafone.

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvernig get ég flutt frelsisnúmerið til Vodafone?

    Þú getur flutt frelsisnúmerið þitt yfir til Vodafone á síðunni Koma í viðskipti með því að slá inn símanúmer, kennitölu og fjögurra stafa kóða sem þú færð sendan í símann þinn. Jafnframt þarf að staðfesta upplýsingar um heimilisfang en þangað er sent nýtt SIMkort.

    Einnig er hægt að óska eftir flutningi á GSM áskrift, heimasíma og ADSLi og mun þá starfsmaður okkar hafa samband við þig til að ljúka flutningsferlinu.

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Telur frelsisnúmer inn í Vodafone Gull?

    Já, ef frelsisnúmerið er skráð með mánaðarlega sjálfvirka áfyllingu af debet- eða kreditkorti fyrir að minnsta kosti 990 kr. þá er það fullgilt inn í Vodafone Gull.

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Er hægt að flytja símaskrána milli SIM korta?

    Þegar skipt er um SIM kort er hægt að biðja starfsfólk verslana Vodafone að færa upplýsingarnar sem eru vistaðar á gamla SIM kortinu yfir á nýja SIM kortið. Þannig færast allar upplýsingar úr símaskránni yfir á nýja SIM kortið.

    Einnig er hægt að afrita símaskrána af gamla SIM kortinu yfir á það nýja beint í GSM símanum með því að afrita upplýsingar um tengiliði af gamla SIM kortinu yfir á minni símtækisins og þaðan yfir á nýja SIM kortið. Fer það eftir símtækinu hvernig þetta er gert, en fyrir flest símtæki þá er þetta gert svona:

    Valmynd - Símaskrá - Afrita, svo þarf að velja alla tengiliði og færa yfir á minni símans.

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Er hægt að virkja hringiflutning á frelsi?

    Nei, einungis er hægt að hafa hringiflutning á farsímanúmerum sem eru í áskrift.

    Í frelsi er engu að síður hægt að nota „Hver hringdi?“ þjónustuna til að sjá hver reynir að hringja þegar slökkt er á símanum eða ekki er svarað og stilla hringiflutning í talhólf.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Get ég fengið nýtt SIM kort á sama símanúmer?

    Ef SIM kort glatast eða skemmist þá er alltaf hægt að koma við í einni af verslunum Vodafone, fá nýtt SIM kort og halda gamla símanúmerinu.

    Nýtt kort kostar 500 kr og nauðsynlegt er að framvísa skilríkjum við afhendingu í verslun.

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvað á að gera ef SIM kortið glatast?

    Ef SIM kort glatast er mikilvægt að tilkynna það sem fyrst til að koma í veg fyrir misnotkun. Viðskiptavinur ber ábyrgð á SIM kortinu og notkun þess þar til tilkynnt hefur verið um að það hafi glatast.

    Upplýsingar sem aðeins voru vistaðar á SIM kortinu tapast ef kortið týnist.

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvernig get ég fengið PUK númer?

    PUK númer er hægt að nálgast á Mínum síðum, í verslunum eða þjónustuveri og aðeins skráður rétthafi eða skráður notandi geta fengið uppgefið PUK.

    Ekki er hægt að fá PUK númer uppgefið fyrir óskráð símanúmer. Notendur óskráðra frelsisnúmera þurfa að koma í verslun, sýna skilríki og skrá símanúmerið sitt til að fá PUK.

    Ef símanúmer er skráð á fyrirtæki geta aðeins skráður notandi eða skráður tengiliður fyrirtækisins fengið uppgefið PUK.

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvert er númer skeytamiðstöðvar?

    Númer skeytamiðstöðvar á að vera +3546999099 í viðeigandi stillingum fyrir viðskiptavini okkar. Sjá nánar á stillingasíðu okkar.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvað er SOS þjónusta?

    SOS þjónustan er neyðarþjónusta sem Frelsisviðskiptavinir okkar geta nýtt sér. Hægt er að nota SOS Hringdu, SOS Lán eða SOS kollekt til að ná sambandi þótt inneignin hafi klárast.

     

    Sjá nánar um SOS þjónustuna hér.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvað er Stöðumælir?

    Þú getur notað stöðumælinn til þess að fylgjast með inneigninni þinni með því að slá inn kóða í símann og þá færðu strax skilaboð á skjá símans um stöðuna. Ekki þarf að skrá sig fyrir þjónustunni, hún kostar ekkert og kemur því í stað símtals í 1400 til að fá upplýsingar um inneignina.

    Þú getur nálgast yfirlit yfir alla kóðana hér.

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Er hægt að taka SOS lán oftar en einu sinni?

    Já, en aðeins er hægt er að vera með eitt virkt SOS Lán á númerinu sínu í einu. Þegar það hefur verið greitt upp (með kaup á inneign) er hægt að fá nýtt lán.

      

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Eru Kollektsímtöl í Vinanúmer frí?

    Nei, móttakandi kollektbeiðni borgar fyrir símtalið þó svo að sá sem bað um kollekt-símtalið sé skráður vinur hans.

     

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Geta allir nýtt sér þjónustuna SOS Hringdu?

    Já, allir viðskiptavinir okkar geta notað þjónustuna SOS Hringdu og hún virkar einnig milli símkerfa.

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvað kostar þjónustan "Hver hringdi?"

    Þjónustan Hver hringdi kostar ekkert.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hver greiðir fyrir Kollektsímtöl?

    Allur kostnaður sem myndast við Kollektsímtöl fellur á þann sem móttekur og samþykkir kollektbeiðni. Gjaldið vegna Kollektsímtala er einungis venjulegt gjald fyrir farsímasímtöl, þ.e. að hringja úr gsm í gsm og ekki er rukkað fyrir móttökubeiðnir.

    Kollekt þjónustan er aðeins virk innan kerfis Vodafone.

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvernig virkar talhólf?

    Talhólf er símsvari sem hægt er að stilla til þess að taka á móti skilaboðum þegar: slökkt er á símanum, hann utan þjónustusvæðis eða er á tali.

    Til að stilla talhólfið þarf að hringja í 1415. Uppsetning talhólfsins felur í sér að slá inn nýtt aðgangsnúmer og lesa inn ávarpið. Ávarpið er það sem fólk heyrir þegar það hringir í símanúmerið og símtalið er flutt í talhólfið.

    Tilkynning um ný skilaboð í talhólfinu berast með SMS skilaboðum.

    Það kostar ekkert að hringja í talhólfsnúmerið 1415 til að hlusta á skilaboðin.

    Einnig er boðið upp á Hver Hringdi? þjónustuna. Hún virkar þannig að þegar hringt er í símann þegar hann er á tali, ekki er svarað eða hann utan þjónustusvæðis þá fær eigandi hans skilaboð með SMS um að reynt hafi verið að ná í hann. Það kostar ekkert að vera með Hver Hringdi? þjónustuna.

    Athugið að ekki er hægt að hafa bæði talhólf og Hver Hringdi? þjónustuna á sama tíma.

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvað er Hraðáfylling?

    Hraðáfylling er handhæg þjónusta þar sem þú getur fyllt á þitt eigið frelsisnúmer eða númer hjá öðrum beint úr símanum þínum. Bæði er hægt að skrá númer í áskrift og frelsi fyrir þjónustunni með því að skrá debet- eða kreditkort í þjónustuna hér á heimasíðunni.

    Þú getur skráð þig á hraðáfyllingarsíðunni, auk þess sem þar má sjá kóðana sem hægt er að nota til að fylla á frelsið þitt eða annarra.

     

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvernig nota ég Hraðáfyllingu?

    UPPHÆÐ PIN

    Svona fyllirðu á Risafrelsi

    990 kr. Risafrelsi: 990 PIN
    1.990 kr. Risafrelsi: 1990 PIN
    2.990 kr. Risafrelsi: 2990 PIN

    UPPHÆÐ PIN SÍMANÚMER

    Fylla á með skafkorti

    Þú getur líka fyllt á með þessari aðferð af skafkorti, en Risafrelsi er ekki fáanlegt með þessari aðferð áfyllingar.

    HLEÐSLUNR

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvað er sjálfvirk áfylling og hvernig er hún virkjuð?

    Með sjálfvirkri áfyllingu af debet- eða kreditkorti þarft þú ekki að hafa áhyggjur af því að fylla á frelsið þitt í hverjum mánuði, því það gerist einfaldlega sjálfkrafa!

    Þú skráir debet- eða kreditkortið þitt í sjálfvirka áfyllingu og þá fyllist á frelsið þitt í byrjun hvers mánaðar fyrir tiltekna upphæð sem þú velur þér.

    Þetta þýðir tvenns konar ávinning fyrir þig, sem gildir fram að næstu sjálfvirku áfyllingu: Vodafone GSM vinanúmer að eigin vali og að frelsið telst sem ein þriggja þjónustuleiða í Vodafone Gull, þannig að þú færð Gull-ávinning af hinum tveimur þjónustuleiðunum sem þú ert með hjá Vodafone.

    Það borgar sig því að vera með sjálfvirka áfyllingu virka. Þú getur skráð sjálfvirka áfyllingu á Mínum síðum.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvar er hægt að fylgjast með stöðu inneignar?

    Þú getur alltaf fengið upplýsingar um stöðu inneignar með því að hringja í gjaldfrjálst þjónustunúmer 1400 eða notað stöðumælinn, sjá nánar hér.

    Einnig er hægt að fylgjast með inneigninni á farsímavef okkar rautt.is eða skrá sig inn á Mínar síður hér á Vodafone.is.

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvernig virkar sjálfvirk áfylling?

    Með sjálfvirkri áfyllingu af debet- eða kreditkorti þarft þú ekki að hafa áhyggjur af því að fylla á frelsið þitt í hverjum mánuði, því það gerist einfaldlega sjálfkrafa!

    Viðskiptavinir geta valið milli tvenns konar sjálfvirkra áfyllinga, mánaðarlegri áfyllingu (alltaf fyllt á sama mánaðardaginn) eða áfyllingu á 30 daga fresti.  

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Get ég verið með sjálfvirka áfyllingu af kreditkortinu mínu en fyllt á með Hraðáfyllingu með debetkortinu?

    Já, þetta eru tvær ólíkar áfyllingaleiðir.

    Hraðáfylling er stök áfylling sem hægt er að nýta sér á einfaldan hátt með því að stimpla inn kóða í símanum sínum þegar búið er að skrá greiðslukort fyrir þjónustunni.

    Sjálfvirk áfylling er aftur á móti regluleg áfyllingarleið sem þú skráir þig í inn á Mínum síðum og velur hvenær hún á að endurtaka sig sjálfkrafa. Við mælum með að viðskiptavinir sem nýta sér Risafrelsi skrái það í sjálfvirka áfyllingu á 30 daga fresti til að ávinningurinn haldist ávallt virkur.   

    Hægt er að hætta með sjálvirka áfyllingu með því að afskrá hana á mínum síðum.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvað er rafræn áfylling?

    Til rafrænna áfyllinga teljast áfylling í heimabanka og hraðbanka, áfylling á vodafone.is með því að velja fylla á frelsi, sjálfvirk áfylling og hraðáfylling.

    Nánari upplýsingar er hægt að nálgast með því að hringja í 1414-1 eða senda fyrirspurn á vodafone@vodafone.is

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hver er gildistími inneigna í frelsi?

    Gildistími fyrir hefðbundnar frelsisinneignir er 6 mánuðir en tilboðsinneignir eins og Risafrelsi gilda í 30 daga.

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvað er Risafrelsi?

    Risafrelsi er tilboðsinneign fyrir Frelsisviðskiptavini með góðum ávinningi en inneign og ávinningur gildir í 30 daga.

    Hægt er að velja þá tegund Risafrelsis sem hentar best og fá mismunandi ávinning, þ.e. 0 kr í alla Vodafone GSM síma og 1000 SMS óháð kerfi, 5 vini óháð kerfi (á bæði við um símtöl og SMS) og svo er hægt að kaupa stærsta Risafrelsið og fá þá allan pakkann. 

    Ýmist er hægt að kaupa Risafrelsi hér á vefnum, með hraðáfyllingu beint úr GSM símanum og í heimabönkum. Við mælum með því að skrá Risafrelsi í Sjálfvirka áfyllingu á 30 daga fresti inn á Mínum síðum þannig að ávinningurinn renni aldrei út.

    Hér getur þú lesið meira um Risafrelsi.

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Er hægt að kaupa Risafrelsi í heimabanka?

    Já það er hægt að kaupa Risafrelsi í öllum heimabönkum. Ferlið er mismunandi eftir heimabönkum en oftast þarf að skrá símanúmer og fjarskiptafyrirtæki í heimabankanum áður en hægt er að fylla á frelsisnúmer. 

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Er hægt að skrá Risafrelsi á debetkort?

    Frelsisviðskiptavinir geta skráð debetkortið á Mínum síðum og geta í kjölfarið skráð sig fyrir sjálfvirkri áfyllingu á Risafrelsi á 30 daga fresti. 

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvernig get ég fylgst með stöðu á Risafrelsinu?

    Hægt er að fylgjast með stöðu á Risafrelsi á Mínum síðum, á farsímavef okkar rautt.is eða með því að nota Stöðumælinn en þá slærðu einfaldlega inn kóða í símann og færð strax skilaboð á skjá símans með stöðunni. Einfalt og þægilegt!

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvar get ég fylgst með vinamínútunum mínum?

    Þú getur fylgst með stöðu vinamínútna á Mínum síðum hér á heimasíðunni okkar og á farsímavef okkar rautt.is.

    Einnig er hægt að fylgjast með stöðunni með því að senda kóðann *113*12# og þá færðu sendar upplýsingar um fjölda vinamínútna sem eru ónýttar.

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvað er hægt að vera með marga vini í Risafrelsi?

    Þrjár þjónustuleiðir eru í boði í Risafrelsi. Í tveimur þeirra er hægt að vera með 5 vini óháð kerfi og er hægt að skrá þá inn á Mínum síðum.

    Nánari upplýsingar um Risafrelsi má finna hér.

     

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Er send áminning áður en Risafrelsistímabilið klárast?

    Já, áminning um að Risafrelsi sé að fara að renna út er send þremur dögum áður.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Er send áminning þegar vinanúmer í Risafrelsi renna út?

    Já, viðskiptavinir fá SMS þegar þeir hafa klárað vinamínútur, innifalin SMS eða inneign Risafrelsis.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Er hægt að loka fyrir innkomandi símtöl meðan á dvöl erlendis stendur?

    Já það er hægt.

    Hér eru nokkur dæmi um hvernig þetta er gert í mismunandi símtækjum. Listinn er þó ekki tæmandi og einstakar tegundir síma frá eftirtöldum framleiðendum geta þurft aðrar skipanir en þær sem nefndar eru hér:

     

    Nokia:

    • menu - settings - security - call barring service - voice calls
    • valmynd - settings - öryggis stillingar - útilokunarþjónusta - símtöl

     

    Nokia Symbian:

    • menu - tools - settings - phone - call barring

               -í sumum símum þarf að fara í voice call barring

    • valmynd - verkfæri - stillingar - sími - útilokanir

               -í sumum símum þarf að fara í útilokun farsíma

     

    Sony Ericsson:

    • menu - settings - calls (þriðji flipi til hægri) - manage calls - restrict calls
    • valmynd - stillingar - símtöl (þriðji flipi til hægri) - vinna með símtöl - læsingar símatala

     

    Samsung

    • menu -

    -í sumum símum þarf að fara beint í network services-call barring

                      - settings - network services - call barring

    • valmynd -

         -í sumum símum þarf að fara beint í þjónusta símkerfis-læsingar símtala

                               - stillingar - þjónusta símkerfis - læsingar

     

    Motorola:

    • menu - settings - security - call barring

     

    HTC:

    • start - settings - phone - call barring

    Android:
    • stillingar - símtalsstilingar - útilokun símtala - kveikja á "Móttekin ef erlendis".
    • settings - call Settings - call barring - kveikja á "Incoming when abroad".

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Er hægt að nota MMS í útlöndum?

    Það er hægt að nota MMS í þeim löndum sem GPRS-gagnaflutningur býðst viðskiptavinum Vodafone. Með því að velja land í landalista Vodafone sérðu hvort GPRS-þjónusta (og þar með MMS-skilaboð) sé í boði í viðkomandi landi.

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Get ég hringt gjaldfrjálst í Vodafone frá útlöndum?

    Já. Þegar ná þarf sambandi við Vodafone geta bæði áskrifendur og frelsisnotendur hringt gjaldfrjálst í þjónustuver, og til að athuga/fylla á innistæðu með því að hringja í *111*1414# (þjónustuver) og *111*1400# (innistæða)

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Get ég nettengst í símanum í öllum löndum þar sem 3G er í boði?

    Nei, eingöngu er hægt að nettengjast í símanum í þeim löndum þar sem Vodafone hefur gert GPRS-samninga. Með því að velja land í landalistanum getur þú séð hvort GPRS-samningur er í gildi í viðkomandi landi.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvað kostar að nota farsímann erlendis?

    Þegar GSM-síminn er notaður erlendis er greitt skv. þeirri áskriftarleið sem viðskiptavinur er skráður í.

    Almenn verðskrá - Þegar hringt er í þig greiðir þú fyrir millilandasímtalið, en sá sem hringir greiðir hefðbundið símtal (að því gefnu að hann sé á Íslandi).
    Vodafone Passport - Þessi þjónusta er eingöngu í boði fyrir þá sem eru með GSM í áskrift. Eitt upphafsgjald og síðan mínútuverð eins og hringt væri heima á Íslandi. Aðeins er rukkað upphafsgjald fyrir móttekin símtöl. Þú nýtir Vodafone Passport gjaldskrána í þeim löndum sem Passport þjónustan gildir (að því gefnu að númerið sé skráð í Vodafone Passport). Skráning kostar ekkert. Nánari upplýsingar má finna hér.

    Kynntu þér gjaldskrá símtala erlendis áður en haldið er af stað. Sjá gjaldskrá.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvaða gengi er miðað við í útlandaverðskrá Vodafone?

    Útlandaverðskrá Vodafone er birt í krónum, en miðast við gengi Evru. Gengið ákvarðast mánaðarlega út frá gengi Seðlabanka Íslands. 

    Nánari upplýsingar um verðskrá Vodafone í útlöndum.

     

     

     

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hver borgar fyrir símtöl til útlanda?

    Ef farsími er notaður erlendis greiðir eigandi símans fyrir millilandasímtöl, þ.e. þegar hringt er í hann frá öðru landi en hann er staddur í. Þetta á við um almenna verðskrá. Ekki þarf hins vegar að greiða fyrir millilandasímtal með Vodafone Passport - þá gildir íslenskur innanlandstaxti að því undanskildu að greitt er tengigjald við upphaf símtals og svo á 20 mínútna fresti. Vodafone Passport er einungis í boði fyrir þá sem eru með GSM í áskrift. Nánar um Vodafone Passport

    Dæmi: Viðskiptavinur A er á Íslandi en viðskiptavinur B er í útlöndum. Þegar A hringir í B þá greiðir A venjulegt innanlandsverð en B greiðir fyrir að móttaka símtal samkv. erlendri gjaldskrá.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvernig á að skipta á milli símkerfa í útlöndum?

    OPERATOR / NETWORK SELECTION - VAL Á SÍMKERFI

    Hér eru nokkur dæmi um skipt er milli símkerfa í mismunandi símtækjum. Listinn er ekki tæmandi og einstakar tegundir síma frá eftirtöldum framleiðendum geta þurft aðrar skipanir en þær sem nefndar eru hér.

     

    Nokia:

    • menu - settings - phone settings - phone - operator selection
    • valmynd - stillingar - símastillingar - val símafyrirtækis

     

    Nokia Symbian:

    • menu - tools - settings -

                -í sumum símum þarf að fara í phone

                                                       -network - operator selection

    • valmynd - verkfæri - stillingar -

                - í sumum símum þarf að fara í sími

                                                                   - símkerfi - val á símafyrirtæki

     

    Sony Ericsson:

    • menu - settings - connectivity (fjórði flipi til hægri) - mobile networks - select network
    • valmynd - stillingar - tengingar (fjórði flipi til hægri) - farsímakerfi - velja símkerfi

     

    Samsung:

    • menu -

                -í sumum símum þarf að fara beint í network services- network selection

                            -settings - network services - network selection

    • valmynd -

                 -í sumum símum þarf að fara beint í þjónusta símkerfis-val á símkerfi

                              - stillingar - þjónusta símkerfis - val á símkerfi

     

    Motorola:

    • menu - settings - network - avail. networks

     

    HTC:

    • start - settings - phone - networks

     

    BlackBerry:

    • menu - options - mobile network

     

     

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvernig er hringt til Íslands frá útlöndum?

    Þegar hringt er til Íslands frá útlöndum er valið 00354 eða +354 á undan símanúmerinu. Frá Bandaríkjunum er hins vegar valið 011 til að fá línu út úr landinu og myndi þá líta svona út 011354*******.

    Til þess að hringja í talhólfið erlendis frá þá er valið 0035462006200 og til þess að ná í þjónustuverið þá er hringt í 003545999001. (Fyrir Bandaríkin þá þarf að passa að velja 011354 á undan)

    Þegar ná þarf sambandi við Vodafone geta bæði áskrifendur og frelsisnotendur hringt gjaldfrjálst í þjónustuver, talhólf og til að athuga/fylla á innistæðu með því að hringja í *111*1414# (þjónustuver) *111*1400# (innistæða) og *111*1415# (talhólf).

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvernig er ódýrast að nota farsíma í útlöndum?

    Með Vodafone Passport er greitt ákveðið upphafsgjald og síðan mínútuverð rétt eins og um innanlandssímtal á Íslandi væri að ræða. Nánar um Vodafone Passport. Athugið þó að Vodafone Passport hentar ekki ef oftast eru hringd mjög stutt símtöl erlendis, heldur fæst sparnaður þjónustunnar frekar þegar hringd eru lengri símtöl.

    Sé númerið ekki skráð í Vodafone Passport er verð háð hverju landi fyrir sig, heiminum er skipt í 5 svæði og sama verð hjá öllum símafélögum. Sjá reikiverðskrá. Vodafone Passport er eingöngu í boði fyrir þá sem eru með farsíma í áskrift. 

    Hafðu þetta í huga:

    • Það er ódýrara í flestum tilvikum að hringja frekar en að eiga „SMS samtal“.
    • Það kostar ekkert að taka á móti SMS erlendis.
    • Þú getur alltaf sent ókeypis SMS af vodafone.is ef þú hefur aðgang að netinu erlendis.
    • Símtal á milli tveggja íslenskra símanúmera í útlöndum er tvöfalt útlandasímtal – fyrst heim og síðan aftur út. Þótt viðmælandinn sé við laugina og þú á ísbarnum rétt hjá!
    • Ef þú ert að ferðast utan EES/ESB landanna og símtöl til þín fara í talhólfið þitt þá ertu að borga tvöfalt útlandasímtal: fyrst frá Íslandi til útlanda og síðan aftur í talhólfið á Íslandi. Jafnvel þótt slökkt sé á símanum! Þú getur slökkt á símtalsflutningi í talhólfið með því að slá inn ##002# og ýta á hringja hnappinn.
    • Ekki svara ef þú vilt ekki borga! En þá verður þú líka að taka talhólfið alveg úr sambandi, því talhólfssvar jafngildir svari ef þú ert utan EES/ESB landanna.
    • Ef þú vilt vita hver hringdi þá getur þú skráð þig ókeypis í Hver hringdi þjónustuna og þá færðu eitt SMS með öllum þeim sem reyndu að ná í þig á meðan þú varst með slökkt á símanum eða utan svæðis. Þjónustan er algjörlega gjaldfrjáls, líka í útlöndum. Frelsisnúmer geta kveikt á þjónustunni með því að slá inn *133# og ýta á hringja, en númer í áskrift með því að slá inn **62*6899000# og ýta á hringja.
    • Þegar sent er SMS með séríslenskum stöfum fækkar stöfum á hvert SMS úr 160 í 70. Þannig getur eitt SMS sem er án séríslenskra stafa breyst í tvö til þrjú SMS með séríslenskum stöfum og kostnaðurinn verður þar af leiðandi meiri.
    • Athugið að þegar ferðast er til Bandaríkjanna eru símtöl í 800-númer ekki gjaldfrjáls ef hringt er úr íslensku farsímanúmeri. 800-númer eru einungis gjaldfrjáls þegar hringt er úr bandarísku símanúmeri. Margir kaupa sérstök skafkort fyrir útlandasímtöl í Bandaríkjunum til að lækka verð útlandasímtala og þá virka kortin þannig að hringt er í ákveðið 800-númer til að nota inneign skafkortanna. Alls ekki ætti að hringja í þetta 800-númer úr íslensku farsímanúmeri, heldur nota landlínu, t.d. almenningssíma. 
    • Ítarlegar upplýsingar veitir þjónustuverið okkar í síma 1414.

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Í hvaða löndum er hægt að nota farsíma frá Vodafone?

    Á síðunni Farsími í útlöndum er hægt er að sjá við hvaða lönd Vodafone er með reikisamninga, hvaða þjónustuleiðir eru í boði í viðkomandi landi og hvaða tíðnisvið GSM símtækin þurfa að styðja til að virka í viðkomandi landi.

    Athugið að Vodafone er ekki með 3G eða GPRS reikisamninga við öll símafyrirtæki þótt GSM-reikisamningar séu til staðar.

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Virkar GSM frelsi í útlöndum?

    Já, það er hægt að nota frelsi í fjölmörgum löndum og er öll rukkun í rauntíma. Veldu landið sem þú ert að fara til og skoðaðu verðskrá hér.

    Ef þú getur ekki notað frelsið þitt í því landi sem þú ert að ferðast til getur þú flutt númerið þitt tímabundið í áskrift.

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Virkar Kollekt þjónustan í útlöndum?

    Viðskiptavinir geta móttekið Kollektbeiðnir í útlöndum og samþykkt þær. Viðkomandi þarf þá að greiða fyrir símtalið samkvæmt verðskrá erlenda símafyrirtækisins.

    Viðskiptavinur getur ekki óskað eftir Kollektsímtali ef hann er staddur í útlöndum.

     

    Kollekt þjónustan er aðeins virk innan kerfis Vodafone.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Virkar síminn í Asíu, S-Ameríku eða öðrum fjarlægum stöðum?

    GSM farsímakerfi á Íslandi (og Evrópu) eru á tveimur tíðnum; 900Mhz og 1800Mhz. Sumsstaðar utan Evrópu er notast við önnur tíðnisvið og því eru ekki allir GSM símar sem virka nema þeir séu samhæfðir við tíðnina sem farsímafélögin notast við.

    Tri-band símar styðja 900/1800 og 1900 kerfin.

    Quad-band símar styðja 850/900/1800 og 1900 kerfin.

    Hafa skal í huga þegar farið er til eftirfarandi landa:

    Argentína, Kólumbía, Paragvæ (1900 og sums staðar 850)
    Chile, Mexíkó, Níkaragúa, Perú (1900)
    Bandaríkin og Kanada (mest 1900 í bland við 850)

    Í ofangreindum löndum er engin þjónusta á 900 og 1800, en í sumum löndum er samblanda af 900/1800 og 1900/850:

    Cayman eyjar, Dóminíska lýðveldið, El Salvador, Jamaíka, Taíland og Úrúgvæ. Í þessum löndum getur því verið að 900/1800 virki á sumum farsímanetum eða á ákveðnum svæðum.

    Í Suður-Kóreu í Japan er eingöngu hægt að nota 3G farsíma, þannig að ef farsíminn þinn er með 3G getur þú því notað hann í þessum löndum. Ef síminn þinn er eingöngu með GSM þarftu að kaupa 3G síma (þeir eru allir með GSM líka) til að nota í Suður-Kóreu og Japan. Farsímar með 3G fást í öllum verðflokkum bæði hér heima og erlendis.

    Ítarefni um þetta málefni er að finna á síðu GSM World (þar er valið land og upp koma upplýsingar um öll farsímakerfi á því svæði og útbreiðslu þeirra).

    Á GSM Arena er hægt að sjá hvaða kerfi símtækin styðja. Sláið inn tegund ykkar síma og upp kemur allt um símann. Þarna er einnig hægt að finna leiðbeiningabæklinga fyrir síma.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Virkar símtækið mitt í Bandaríkjunum?

    Þegar ferðast er til Bandaríkjanna þarf að athuga hvort símtækin virki á amerísku kerfunum sem eru 850 og 1900 kerfi. (Víðast annarsstaðar er notuð 900 og 1800 tíðni). Þessar upplýsingar ættu að finnast á vef framleiðanda símans eða í bæklingum sem fylgdu með honum.

    Í USA (og víðar) er einnig svokallað IDEN kerfi og til að komast á það þarf að vera með sérstakan IDEN síma og þeir fást ekki á Íslandi. Þetta eru sérstakir símar sem Motorola hefur framleitt og virka eingöngu á IDEN kerfum.

    Samkvæmt fjarskiptafyrirtækinu SPRINT geta viðskiptavinir okkar notað SIM kortin frá Vodafone í þessa síma.

    Hér er svo smá Wiki fróðleikur um IDEN

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei

Leiðbeiningar

Hugbúnaður / Uppsetning

Youtube

Gagnleg myndbönd (5)

  • youtube thumnail

    ADSL - router tengdur

  • youtube thumnail

    Ljósleiðari - router tengdur

  • youtube thumnail

    Amino 110 - Myndlykill

  • youtube thumnail

    Amino 140 - Myndlykill

Fara á YouTube rás Vodafone

Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn