Uppsetning á POP3/IMAP netfangi í BlackBerry
Tæknileg skilyrði
- Notandi þarf að vera með símtæki sem styður BlackBerry tæknina (annað hvort BlackBerry tæki eða önnur samhæfð tæki). Einnig þarf að vera með netfang sem styður POP3 eða IMAP4 aðgang.
- Öll netföng sem eru hýst hjá Vodafone geta fengið tengingu við BlackBerry Internet Service.
- Notandi þarf að vera með áskrift og skráður í BIS þjónustu.
Uppsetning - POP3 / IMAP
- Liggja þarf fyrir á hvaða póstþjóni netfangið er vistað (t.d. mail.internet.is).
- Notandi þarf að vita notandanafn og lykilorð fyrir netfangið.
Uppsetning - Outlook Web Access
- Notandi þarf að vera með slóðina inn á vefpóstinn.
- Einnig þarf að liggja fyrir notandanafn og lykilorð fyrir netfangið.
1. Skráðu þig í BIS þjónustuna.
2. Skilmálar
3. PIN og IMEI númer
4. Notandanafn og lykilorð inn á Mobile email síðuna
5. Netfangið
6. Kláraðu uppsetninguna
Endurræstu símtækið. Þú ættir að fá tölvupóst frá Blackberry um að tækið hafi verið virkjað. Því næst skaltu fara inn á síðuna Mobile email og smella á hnappinn „Create new account“:
Hakaðu í skilmálana og smelltu á „I agree“:
Til þess að finna PIN og IMEI númerin ferðu í „Options - Status“ á símtækinu. Sláðu númerin inn í viðeigandi reiti.
Veldu notandanafn og lykilorð. Smelltu á „Next:“
Hakaðu í „Use an existing email account...“ Sláðu inn netfangið þitt og lykilorð. Smelltu á „Next“.
Smelltu á „Finish“. Ef þú hefur fleiri netföng sem þú vilt hafa aðgang að í símtækinu smellir þú á „Add another account“ og endurtekur leikinn.


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?