Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra:

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Uppsetning á POP3/IMAP netfangi í Android

Hafa þarf eftirfarandi upplýsingar við höndina áður en uppsetning hefst:

  • Netfang
  • Lykilorð
  • Póstþjónn
  1. 1. Opna Mail

  2. Í valmynd símans velur þú skjátáknið fyrir „Mail“, og því næst tegund pósthólfsins sem á að setja upp. Ef þú vilt setja upp vodafone netfang (@internet.is), er valið „Other“.

  3. 2. Stillingar

  4. Sláðu netfangið inn í „email address“ reitinn og lykilorðið í „password“ og veldu því næst „Manual Setup“ til að setja inn stillingar. Byrjaðu á því að finna efsta valmöguleikann, POP, og breyttu honum í IMAP.

  5. 3. Upplýsingar um póstþjón

  6. Fylltu formið út á eftirfarandi hátt

    • Incoming mail server (eða IMAP server): mail.internet.is
    • User = Netfangið
    • Password = Lykilorð að pósthólfinu

    Svo er valið: „Next“.

    Nú þarftu að fylla út „Outgoing server settings“. Í SMTP server er slegið inn „mail.internet.is“ og því næst valið „Next“.

  7. 4. Lokið við uppsetningu

  8. Í reitinn „Account Name“ skaltu slá inn það heiti sem á að gefa pósthólfinu (t.d. nafn þitt, eða Internet.is-póstur, eða heimapóstur eða hvað annað sem þér finnst lýsandi fyrir pósthólfið) og nafnið sem á að birtast þegar sendur er póstur. Smelltu svo á „Finish Setup“. Nú ætti pósthólfið að opnast ef allar stillingar hafa verið rétt uppsettar.

  9. 5. Pósthólfið opnað

  10. Til að opna pósthólfið er smellt á skjátáknið á forsíðu símtækisins.

Leiðbeiningar fyrir tölvupóst í símann

Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn