Nokia Ovi Maps
Skoðaðu staði um allan heim, skipulegðu ferðalagið og leitaðu eftir heimilisföngum.
Með Ovi Maps geta viðskiptavinir Vodafone notað Nokia símann sinn sem leiðsögutæki. Þar er að finna nákvæmt íslandskort, öll helstu lönd og borgir heims með fullkominni raddleiðsögn sem vísar þér veginn, hvort heldur sem þú vilt komast skjótt heim eða finna huggulegan veitingastað í nágrenninu.
Hvað kostar Ovi Maps?
Sjálft forritið kostar ekkert, en þú greiðir fyrir niðurhalið þegar þú sækir það. Einnig er kortunum streymt í símann þinn (með 3G eða GPRS) á meðan þú notar það. Ef þú vilt losna við að streyma kortunum (og greiða fyrir niðurhalið) getur þú sótt Ovi Suite forritið (Windows) í tölvuna þína og þannig hlaðið kortinu inn á símann þinn í gegnum tölvuna (rúmlega 100 MB fyrir Íslandskortið).Hvernig sæki ég Ovi Maps?
Þú getur hlaðið Ovi Maps beint í símann þinn eða með Ovi Suite forritinu í gegnum tölvuna þína. Kíktu á ítarlegar leiðbeiningar á ovimaps.is um uppsetningu.
Hvaða símar styðja Ovi Maps?
Í febrúar 2007 kynnti Nokia formlega fyrsta áfangann í Ovi Maps-lausninni sinni og frá þeim tíma hafa komið reglulegar uppfærslur og viðbætur fyrir þetta kerfi. Grundvallarbreyting var síðan gerð á Ovi Maps í febrúar 2010 þegar opnað var fyrir alla leiðsögn á GPS-kortunum frá Nokia þannig að ekki þurfti að greiða sérstaklega fyrir leiðsögnina. Af því tilefni var sett ný útgáfa af Ovi Maps á markaðinn fyrir GPS-síma og einungis nýlegir símar sem voru í sölu í febrúar 2010 fengu stuðning við þessa nýju útgáfu.
Listinn yfir þá síma sem styðja þessa nýjustu útgáfu af Ovi Maps frá Nokia er tæmandi. Hinsvegar er verið að bæta við listann reglulega, sérstaklega þegar það koma nýir símar frá Nokia. Listinn var síðast uppfærður í september 2010.
- Nokia X6
- Nokia C5
- Nokia C6
- Nokia 6760
- Nokia E55
- Nokia E66
- Nokia E72
- Nokia N86
- Nokia N97
- Nokia 5230
- Nokia 5800
- Nokia N97 mini
- Nokia 6730
- Nokia 6720
- Nokia 6710
- Nokia E72
- Nokia E52

























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?