Hlaupafélaginn
Þú getur gert símann þinn að góðum hlaupafélaga. Komdu til okkar og fáðu ráðleggingar um hvernig þú nærð hámarksárangri með símanum þínum.
Með öflugum símtækjum eins og BlackBerry, Nokia N- og E-línunum, Android símtækjum og iPhone getur þú fylgst með árangri þínum. Með GPS tækni og réttum hugbúnaði geta símtækin haldið utanum tölfræði á borð við skrefafjölda, vegalengd, hraða og bruna.
Hugbúnaðurinn í símanum tengist síðan vefsíðu, þar sem þú getur skoðað árangurinn enn nánar. Sum símtæki bjóða einnig upp á tengingu við púlsmæli (aukabúnaður).
Nokia Sports Tracker
- Virkar með Symbian símtækjum, flestum Nokia símtækjum með snertiskjá, E- og N-línunni með GPS og nokkrum Symbian símtækjum frá öðrum framleiðendum.
- Öll gögn geymd í dagbók, auðvelt að fylgjast með árangri og æfingum.
- Opnaðu m.c.is/hlaup til að sækja forritið inn í OVI Store.
- Möguleiki á tengingu við Bluetooth púlsmæli (aukabúnaður).
Nánari upplýsingar á: sports-tracker.com, í OVI Store og á Facebook síðu Sports Tracker.
Netið í símann
Með netið í símanum hjá Vodafone getur þú fylgst með fréttum og sótt þér afþreyingu víðs vegar um landið eða heiminn.
Notendur í áskrift geta valið að bæta gagnamagnspakka við áskrift sína, en sé hann ekki valinn gildir Dagnet okkar, þar sem greitt er 25 kr. fyrir þann dag sem netið er notað (5 MB innifalin). Kynntu þér málið nánar.
Endomondo
- Fáanlegt fyrir iPhone (í App Store) og Android (í Android Market).
- Fáanlegt fyrir BlackBerry, Symbian (Nokia, o.fl.), Windows Mobile og Java útgáfu (fyrir eldri símtæki). Opnaðu m.c.is/hlaup í símanum til að sækja forritið fyrir þessar símategundir.
- Möguleiki á tengingu við Bluetooth púlsmæli (aukabúnaður).
- Hægt að búa til keppni við vini sína og fylgjast með keppninni á endomondo.com
Kíktu á síðuna fyrir forritið á endomondo.com og á Facebook síðu Endomondo.
Gangi þér vel í hlaupum sumarsins!

























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?