Puttinn á púlsinum
Á rautt.is finnur þú innlendar jafnt sem erlendar fréttir, viðskiptalífið, ítarlega veðurspá og allt það sem þú þarft til að fylgjast með.
Svona virkar rautt.is
Þú ferð einfaldlega á netið í símanum þínum, (í Nokia símum geturðu haldið inni 0-inu). Þá kemst þú á rautt.is síðuna þar sem þú getur sótt þér upplýsingar og afþreyingu hvenær þér hentar.
Traust veðurspá í símann þinn
Ný sýn á veðrið með ítarlegri þriggja daga veðurspá á rautt.is beint í símann þinn.
Það skiptir ekki máli hvar þú ert. Þú getur flett upp öllum þéttbýlisstöðum á Íslandi, helstu ferðamannastöðum, sumarbústaðalöndum og golfvöllum og fengið ítarlega veðurspá. Þú getur einnig flett upp veðurspá fyrir helstu borgir í Evrópu. Fylgstu með veðrinu í Aþenu, Boston eða Lundúnum á einfaldan, ódýran og þægilegan hátt.
Skýrar og greinagóðar upplýsingar
Spáin skiptist í þrjár myndir, hver þeirra sýnir einn sólarhring, frá miðnætti. Á myndinni sjást tveir ásar, rauður vinstra megin sem sýnir hita (°C) og grænn hægra megin sem sýnir vindhraða (m/s).
Efst á myndinni er vindátt táknuð með örvum eftir hlutum dagsins (00-24). Gráar rendur ofarlega á myndinni merkja skýjafar og úrkoma er sýnd með bláum súlum neðst á myndinni.
Verðskrá - Fréttir og veður á rautt.is
| Þjónusta | Verð |
|---|---|
| Veðurspáin - vikuáskrift | 100 kr. |
SMS þjónusta
| SMS úrslitaþjónusta | Verð |
|---|---|
| Úrslitaþjónustan - hvert SMS | 8 kr. |
Afþreying
Sjónvarpsdagskráin
Þú sérð dagskrá allra stöðvanna í Digital Ísland í símanum þínum. Þannig getur þú skipulag sjónvarpskvöldið þitt og missir aldrei af uppáhaldsþáttunum þínum.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Á rautt.is hefur þú aðgang að flugupplýsingum beint úr kerfum Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli. Þannig getur þú fylgst milliliðalaust með upplýsingum um millilandaflug, jafnt komur sem brottfarir.
Dagskrá bíóhúsana
Þú sérð dagskrá allra bíóhúsanna á rautt.is símanum þínum. Sjáðu plaköt og lýsingar myndanna auk einkunnar á RottenTomatoes.com vefnum.


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?