Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra:

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Forrit í símann þinn

Hvar fæ ég forrit?

Það veltur á stýrikerfi símans þíns á hvaða forritamarkaði þú getur keypt forrit.

  • Ef síminn þinn er Android-sími færðu forrit í hann á Android Market. Fjöldi góðra ókeypis forrita er í boði, en ef þú skráir þig og kortanúmer á Google Checkout getur þú einnig keypt forrit í símann.
  • Ef þú átt snjallsíma frá Nokia færðu forrit í símann þinn á Ovi Store, en Nokia snjallsímar nota Symbian stýrikerfið. Í Ovi Store má m.a. sækja Ovi Maps, en það er fáanlegt fyrir flesta nýrri Nokia snjallsíma. Nánari upplýsingar eru á OviMaps.is.
  • Ef þú ert með iPhone, iPad eða iPod Touch færðu forrit í App Store hjá Apple en þar fást hundruð þúsunda forrita af öllu tagi. Þessi tæki frá Apple nota stýrikerfið iOS.
  • BlackBerry tæki geta sótt forrit af App World.
Hraðkóði

Hraðkóðar

Hraðkóði sem skutlar þér beint inn á leikjabúðina okkar, en þar er að finna úrval leikja, m.a. fyrir Android símtæki.

Hraðkóði (QR code) er tvívítt strikamerki sem notað er til að pakka saman upplýsingum sem síðan eru lesanlegar með strikamerkjalesurum, t.d. í símum. Algengasta notkun hraðkóða er að koma á framfæri slóðum að forritum eða vefsíðum svo ekki þurfi að slá þær inn í síma. Í stað innsláttar er myndavél símans notuð til að lesa kóðann og sérstakt forrit vinnur úr honum og birtir það sem kóðað var.

Hraðkóða er hægt að búa til t.d. á vefsíðum eins og BeQRious og Kawaya.

Hvernig les ég hraðkóða?

Forritið ScanLife er til fyrir öll símastýrikerfi og það má nota til að lesa úr hraðkóðum. Auðvitað eru til fleiri forrit sem gera það sama og hver og einn getur notað það sem hann vill.

Hvernig er hraðkóðinn lesinn?

Ræstu lestrarforritið (ScanLife eða það forrit sem þú notar) og þegar myndavélin er komin í gang skaltu beina henni að hraðkóðanum. Forritið gefur til kynna þegar það hefur skynjað kóðann og lesið úr honum og þá birtist það sem kóðinn inniheldur, hvort sem það er vefslóð, nafnspjald eða eitthvað annað.

Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn