1414 appið - snjallsímaforrit Vodafone

Fáðu upplýsingarnar beint í snjallsímann með 1414 appinu frá Vodafone. Forritið er fáanlegt fyrir Android (í Google Play) og iPhone (í App Store) og veitir upplýsingar um þjónustu þína hjá Vodafone, aðgang að ýmsum stillingum og margt fleira.
Upplýsingar um þjónustu, notkun og gagnamagn
Í 1414 appinu sérðu upplýsingar um þína farsímaþjónustu og notkun. Frelsisnotendur sjá upplýsingar um inneign, stöðu vinanúmera og SMS-inneignar í Risafrelsi og upplýsingar um gagnamagn. Frelsisnotendur geta jafnframt breytt vinanúmerum í 1414 appinu og hafa því afar einfalda leið til að halda utan um vinina beint í símanum.

Áskrifendur sjá vinanúmer og stöðu þeirra, fá upplýsingar um gagnamagnspakka og sjá á einfaldan hátt hve mikið er búið af gagnamagnsinneign mánaðarins. Áskrifendur geta jafnframt skipt á einfaldan hátt um gagnamagnspakka gegnum forritið.
Sjónvarpsdagskráin beint í símann
Í 1414 appinu hefur þú sjónvarpsdagskrá allra stöðva sem sendar eru út í Vodafone Sjónvarpi ávallt við höndina. Fylgstu með dagskránni hjá yfir 70 sjónvarpsrásum, íslenskum og erlendum, á auðveldan hátt í gegnum snjallsímann þinn.
Hafðu samband við Vodafone
Með 1414 appinu getur þú pantað símtal frá þjónustufulltrúum Vodafone eða sent okkur fyrirspurn gegnum forritið - og við höfum samband við þig eins fljótt og auðið er.
Og ekki bara þetta - við munum halda áfram að þróa 1414 app Vodafone þannig að sífellt fleiri eiginleikar munu bætast við á næstunni og gera forritið enn öflugra fyrir alla viðskiptavini Vodafone.
Innskráning í appið
Nota þarf farsímanúmer sem notendanafn til að skrá sig inn í 1414 appið. Ef þú ert skráður notandi á Mínum síðum Vodafone.is og notar farsímanúmerið þitt sem notendanafn notar þú einfaldlega númerið og lykilorðið sem þú notar á Mínum síðum til að skrá þig inn í 1414 appið.
Ef þú notar netfangið þitt sem notendanafn þarftu hins vegar að búa til annan aðgang þar sem símanúmerið er notendanafn til að skrá þig inn í appið. Hægt er að búa til nýjan aðgang í appinu sjálfu.
Ef þú hefur ekki notað Mínar síður áður stofnar þú einfaldlega nýjan aðgang. Það er hægt að gera bæði í appinu eða á Mínum síðum.


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?