Þú finnur það á Mínum síðum!
Mínar síður á Vodafone.is eru þínar persónulegu upplýsingasíður um fjarskiptanotkun heimilisins og viðskipti við Vodafone. Á Mínum síðum færðu yfirlit yfir þá þjónustu sem þú ert með, getur sent SMS gegnum vefinn án endurgjalds og jafnframt stillt ýmsa þjónustuþætti Vodafone þannig að þeir séu í samræmi við þínar óskir.
Þú færð yfirlit yfir alla þína þjónustu á Mínum síðum.
Á Mínum síðum getur þú:
- Fengið yfirlit yfir þær þjónustuleiðir (heimasíma, farsíma bæði í frelsi og áskrift, internet, sjónvarpsþjónustu og 3G net) sem þú ert með hjá Vodafone
- Sent SMS gegnum vefinn án endurgjalds
- Fengið upplýsingar um notkun þína á öllum þjónustuleiðum, t.d. upplýsingar um símtöl og SMS, frelsisinneign, gagnamagn í síma og interneti og skoðað sundurliðaða reikninga
- Séð innistæðu og pantað áfyllingar fyrir farsíma- og netfrelsi
- Stillt ýmsa þjónustuþætti Vodafone, svo sem farsímavini í frelsi, læsingar ákveðinna símanúmera, hringiflutning, Netvörnina og margt fleira
- Búið til tengiliðalista og m.a. notað til að senda Hóp-SMS
Fullgildur eða takmarkaður aðgangur?
Hægt er að skrá sig á Mínar síður með fullgildum aðgangi eða takmörkuðum. Með fullgildum aðgangi geturðu nýtt þér alla virkni Minna síðna, en með takmörkuðum aðgangi sérðu aðeins upplýsingar og virkni fyrir farsímanotkun. Lestu meira um mismunandi aðgang.
Mundu eftir Mínum síðum
Oft er langeinfaldast að nýta sér Mínar síður til að klára málin. Skráðu þig á Mínar síður og sjáðu hvernig þær nýtast þér til að gera lífið einfaldara.


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?