
Í Vodafone live! finnur þú innlendar jafnt sem erlendar fréttir, viðskiptalífið, ítarlega veðurspá og allt það sem þú þarft til að fylgjast með.
Smelltu á live hnappinn í símanum þínum, haltu inni 0-inu (Nokia) eða farðu í að tengjast netinu. Þá kemst þú á Vodafone live! síðuna þar sem þú getur sótt þér upplýsingar um afþreyingu hvenær þér hentar.
Ný sýn á veðrið með ítarlegri þriggja daga veðurspá í Vodafone live! beint í símann þinn.
Það skiptir ekki máli hvar þú ert. Þú getur flett upp öllum þéttbýlisstöðum á Íslandi, helstu ferðamannastöðum, sumarbústaðalöndum og golfvöllum og fengið ítarlega veðurspá. Þú getur einnig flett upp veðurspá fyrir helstu borgir í Evrópu. Fylgstu með veðrinu í Aþenu, Boston eða Lundúnum á einfaldan, ódýran og þægilegan hátt.
Spáin skiptist í þrjár myndir, hver þeirra sýnir einn sólarhring, frá miðnætti. Á myndinni sjást tveir ásar, rauður vinstra megin sem sýnir hita (°C) og grænn hægra megin sem sýnir vindhraða (m/s).
Efst á myndinni er vindátt táknuð með örvum eftir hlutum dagsins (00-24). Gráar rendur ofarlega á myndinni merkja skýjafar og úrkoma er sýnd með bláum súlum neðst á myndinni.
| Þjónusta | Verð |
|---|---|
| Veðurspáin - vikuáskrift | 99 kr. |
| SMS úrslitaþjónusta | Verð |
|---|---|
| Úrslitaþjónustan - hvert SMS | 6 kr. |
Þú sérð dagskrá allra stöðvanna í Digital Ísland í símanum þínum. Þannig getur þú skipulag sjónvarpskvöldið þitt og missir aldrei af uppáhaldsþáttunum þínum. Uppfletting kostar 0 kr.
Í Vodafone live! hefur þú aðgang að flugupplýsingum beint úr kerfum Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli. Þannig getur þú fylgst milliliðalaust með upplýsingum um millilandaflug, jafnt komur sem brottfarir. Uppfletting kostar 0 kr.
Þú sérð dagskrá allra bíóhúsanna í Vodafone live! símanum þínum. Sjáðu plaköt og lýsingar myndanna auk einkunnar á RottenTomatoes.com vefnum. Uppfletting í dagskrá bíóhúsanna kostar 0 kr.
Þú hefur aðgang að öllum uppskriftarbanka Matarlist.is vefjarins í Vodafone live! símanum þínum. Finndu uppskrift við hæfi allra daga, jafnt stórhátíða sem hversdags. Uppfletting í uppskriftargrunninum kostar 0 kr.
Ertu í vanda eða vantar þig hjálp? Hér eru algengar spurningar og svör.
Þú færð aðstoð í síma 1414. Kíktu á spurt og svarað eða sendu okkur fyrirspurn.