Mozilla Thunderbird á íslensku
Það fyrsta sem þarf að gera er að fara í Verkfæri og í Stillingar notanda
Næst þarf að smella á Reikningsaðgerðir og svo Bæta við póstreikningi.
Þá þarf að fylla inn upplýsingar, nafn, netfang og lykilorð.
Thunderbird reynir að finna stillingarnar fyrir póstþjónana sjálfkrafa, það mun ekki ganga upp því að forritið setur á rangar öryggisstillingar. Því þarf að haka á Handvirk uppsetning.
Smelltu á netfangið þitt og veldu Stillingar netþjóns. Þarna þarf að breyta Öryggi tengingar úr STARTTLS í Ekkert
Næst þarf að smella á Póstþjónn út (SMTP), smella á netfangið og velja Breyta. Þar inni þarf að taka hakið úr Notandanafn og lykilorð og breyta Öryggi tengingar í Ekkert.

























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?