Entourage
Opnaðu Entourage og farðu í Tools og veldu Accounts.
Þá birtist nýr gluggi, þar sem þú passar að hafa valið við Mail að neðan og velur þar næst New takkann.
Næst velur þú POP í Account Type.
Smelltu þar næst á OK.
Að lokum setur þú inn upplýsingar eins og á við. Account Name er heitið á pósthólfinu, næst kemur Name, en þar myndir þú t.d. setja fullt nafn og þar á eftir slærðu inn netfangið þitt.
Í Accout ID slærðu inn netfangið aftur, í POP Server skrifar þú mail.internet.is og þar á eftir lykilorð.
SMTP server á að vera mail.internet.is nema að tengingin þín sé annars staðar en hjá Vodafone.
Þessu næst velur þú OK og uppsetningin á póstinum er þar með lokið.


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?