Vírusvörn handa Windows notendum
Vodafone býður Windows notendum upp á vírusvörn án endurgjalds í samstarfi við Microsoft Íslandi. Vírusvörnin, Microsoft Security Essentials, er öflugur hugbúnaður sem verndar tölvuna þína gegn vírusum og öðrum ógnum sem skaðað geta PC-tölvur.
Vírusvörnin fæst án endurgjalds og er einföld í notkun. Þú sækir hana með því að smella á tengilinn hér til hægri, setur upp í tölvunni þinni og upp frá því fylgist hún með starfsemi tölvunnar. Hún stöðvar vírusa og önnur spilliforrit þegar þau láta á sér kræla, auk þess sem hægt er að skanna harða diskinn með henni reglulega til að sjá hvort einhvers staðar leynist dulin óværa. Vörnin er sjálfkrafa uppfærð af Microsoft, þannig að hún hefur ávallt bestu upplýsingar um nýjustu vírusana.
Microsoft Security Essentials vinnur í bakgrunni tölvunnar og notendur verða hennar sjaldan varir. Áður en þú setur hugbúnaðinn upp er þó mælt með að þú hreinsir út aðrar vírusvarnir sem þú kannt að vera með úr tölvunni. Séu tvær vírusvarnir í gangi í einu gæti það leitt til hægari vinnslu.
Banner

Vírusvörnin
Sæktu Microsoft Security Essentials með því að smella á tengil hér fyrir neðan og settu forritið upp með því að fylgja leiðbeiningunum á skjánum.
Veistu ekki hvort þú ert með 32 bita eða 64 bita útgáfu stýrikerfis? Svona má finna það:
Opnaðu Start-vallistann og veldu Programs -> Accessories -> System Tools -> System Information.
Hér sérðu upplýsingar um stýrikerfið. Leitaðu að „System Type“ í hægri glugganum, en gildi þess segir til um hvort tölvan sé 32 eða 64 bita.
Ef þar stendur x86-based PC er tölvan þín 32 bita. Ef hins vegar stendur x64-based PC er tölvan 64 bita.


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?