Verkstæði Vodafone
Vodafone rekur verkstæði í Skútuvogi 2a sem þjónustar búnað frá Vodafone. Bilanagreining vegna búnaðar frá Vodafone er gjaldfrjáls. Stofna þarf til hvers máls með Tækniveri Vodafone (sími 1414-2, eða í gegnum Netspjallið). Ef ekki er gerð verkstæðisbeiðni þegar komið er með búnað í verkstæði þarf að greiða skoðunargjald (sjá verðskrá hér neðar).
Tekið er á móti búnaði í verslun okkar í Skútuvoginum (opið kl. 9 - 17 alla daga) og er afgreiðslutími 24 klukkustundir. Ef afgreiða þarf mál enn hraðar er greitt forgangsgjald (sjá verðskrá) og þá er málið afgreitt samdægurs ef það barst fyrir 16:00.
Ef vandamál var á ábyrgð viðskiptavinar er rukkað lagfæringargjald fyrir hverja klukkustund.
Hvað gera starfsmenn verkstæðis Vodafone?
- Setja upp Vodafone-búnað
- Framkvæma almenna bilanagreiningu fyrir:
- - Þráðlaust net
- - Sambandsleysi
- Setja upp rekla vegna Vodafone-búnaðar
- Skoðun á endabúnaði eða netkortum sem eru í ábyrgð (2 ár) og keypt hjá Vodafone.
Hvað gera starfsmenn verkstæðis Vodafone ekki?
- Setja ekki upp stýrikerfi, vírusvarnir eða önnur forrit
- Stilla ekki aðra netbeina en Vodafone netbeina fyrir sjónvarp um ADSL
- Setja ekki upp eða hreinsa tölvur
Opnunartími þjónustuvers
Hafðu samband við nethjálp okkar frá 8:30-22:00 virka daga og 10-18 um helgar í gjaldfrjálsu númeri 1414 eða á netfangið hjalp@vodafone.is fyrir nánari upplýsingar.
Verðskrá verkstæðis Vodafone
| Verðskrá verkstæðis | Verð |
|---|---|
| Bilanagreiningargjald (ef mál er stofnað hjá 1414-2) | 0 kr. |
| Forgangsgjald | 1990 kr. |
| Skoðunargjald (rukkað ef engin verkstæðisbeiðni liggur fyrir) | 1990 kr. |
| Lagfæringargjald (rukkað ef vandamál var á ábyrgð viðskiptavinar) | 1990 kr./klst |


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?