Vodafone.is - Netvörn

Netvörn Vodafone

Við bjóðum nú Netvörn Vodafone, en með henni getur þú stjórnað því hvernig hægt er að nota nettenginguna á heimilinu. Í boði eru nokkrir læsingarflokkar, þú einfaldlega velur það sem þú telur henta þér og tekur þannig stjórnina.

Læsingarflokkarnir eru:

  • Grunnvörn, sem lokar á vírusa, skaðlegan hugbúnað, njósnaforrit, auglýsingaforrit og síður sem reyna að stela af þér lykilorðum.
  • Eldveggur, sem stöðvar utanaðkomandi tilraunir til að tengjast tölvunni þinni.
  • Loka fyrir alla netnotkun, sem lokar á allt netsamband. Aðeins er hægt að tengjast vodafone.is vefsíðunni, til að breyta stillingum. Þennan flokk er hægt að tímastilla.
  • Spjallforrit, sem lokar á notkun á spjallforritum. Áfram er þó hægt að nota sumar spjallsíður, t.d. Google Chat og spjall á Facebook. Þennan flokk er hægt að tímastilla.
  • Fjárhættuspil, sem lokar á veðmálasíður, lottó og spilavíti af ýmsu tagi.
  • Skráaskiptiforrit, sem lokar á notkun á skráaskiptum með torrent, KaZaA, Gnutella o.fl.
  • Klám, sem lokar á síður sem innihalda klámfengið efni, ofbeldi gegn börnum eða umfjöllun um kynlíf og kynlífsfræðslu.

Svona virkjar þú Netvörn
  1. Nýskráir þig á Mínum síðum (sjá leiðbeiningar í PDF skjali).
  2. Opnar Mínar síður og velur nettenginguna þína.
  3. Opna Netvörn.
  4. Stillir læsingarflokkana sem þú vilt hafa virka.
  5. Endurræsir beininn (þetta þarf aðeins að gera í fyrsta skipti). Notendur á ljósleiðara þurfa fyrst að endurræsa tengibúnað fyrir ljósleiðarann og bíða í u.þ.b. 40 sekúndur áður en beinirinn er endurræstur í kjölfarið.
  6. Notendur á ADSL með ZyXEL 660HW-D1 beini (með gulum tengjum aftaná) þurfa einnig að setja notandanafn og lykilorð að nýju inn á beininn (leiðbeiningar um þetta birtast á Mínum síðum eftir að kveikt er á Netvörn).

Mínar síður


Tungumál