Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra.

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Skilmálar ADSL þjónustu

  1. Eftirfarandi skilmálar tóku gildi 1. febrúar og gilda um Internet-þjónustu Vodafone (Fjarskipti ehf.) og er bæði áskrifendum að þjónustunni og öðrum notendum hennar skylt að hlíta þessum skilmálum. Að öðru leyti gilda skilmálar Vodafone um fjarskiptaþjónustu.
  2. Vodafone áskilur sér rétt til að færa þjónustu áskrifanda yfir á eigið kerfi af kerfi annara rekstraraðila.
  3. Vodafone lætur áskrifanda í té aðgang að Internet- og tölvupóstþjónustu sinni. Notanda er með öllu óheimilt að afhenda lykilorð sitt öðrum aðilum. Áskrifandi sem skráður er fyrir þjónustunni ber fulla ábyrgð á allri notkun henni tengdri. Eingöngu skráðir áskrifendur Vodafone geta nýtt sér aðgang að fríþjónustu. Áskrifendum Vodafone er með öllu óheimilt að nota aðgang sinn til að komast yfir upplýsingar um aðra notendur á nettengingu Vodafone, aðrar en þær sem veittar eru í opnum gagnagrunnum á Internetinu.
  4. Uppsetning á hugbúnaði er ávallt á ábyrgð áskrifanda og ber Vodafone því ekki ábyrgð á tjóni sem notkun eða uppsetning kann að valda.
  5. Vodafone ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að skapast vegna notkunar á tengingu við Internetið eða sambandsleysis við það. Áskrifandi ber sjálfur ábyrgð á afritatöku af þeim gögnum sem geymd eru á heimasvæði hans. Vodafone ber ekki ábyrgð á tjóni sem þriðji aðili kann að valda.
  6. Áskrifanda er óheimilt að trufla, skerða eða á nokkurn hátt hafa áhrif á notkun annarra viðskiptavina, til dæmis með fjöldapóstsendingum. Áskrifanda er óheimilt að hýsa efni sem brýtur í bága við íslensk lög á heimasvæði sínu eða láta slíkt efni liggja á lausu á vefsvæðum. Áskrifendur skulu virða almennar umgengnisreglur sem settar eru á Internetinu.
  7. Til þess að tryggja öryggi í gagnaflutningum áskilur Vodafone sér rétt til að takmarka eða synja áskrifanda um þjónustu um stundarsakir eða til frambúðar, verði upphal eða niðurhal það mikið að það hafi áhrif á gagnaflutning annarra viðskiptavina Vodafone. Vodafone áskilur sér einnig rétt til að takmarka sérstaklega erlent niðurhal eða upphal viðskiptavina tímabundið fari það yfir viðmiðunarmörkum Vodafone á nokkurra daga tímabil. Upplýsingar um viðmiðunarmörk á hverjum tíma er að finna á vodafone.is.
  8. Vodafone tryggir ekki að tengihraði notanda sé sá sami og áskrift hans segir til um. Hraði tengingar er ávallt háður gæðum línu þeirrar er liggur til notanda, fjarlægð notanda frá símstöð, álags á línu og öðrum þáttum.
  9. Áskrifanda ber að tilkynna uppsögn á Internetþjónustu Vodafone (utan fríþjónustu) með bréfi þar sem fram kemur fullt nafn viðskiptavinar, kennitala, notandanafn og lykilorð, eða með tölvupósti frá netfangi áskrifanda. Uppsögn miðast við upphaf nýs reikningstímabils, þann 1. hvers mánaðar.
  10. Ef áskrifandi segir upp samningi á samningstíma áskilur Vodafone sér rétt til að krefja áskrifanda um riftunargjald sem samsvarar þremur mánaðargjöldum.
  11. Brot á ofangreindum skilmálum getur valdið tafarlausri lokun á þjónustu.
Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn