Netvörn
Við bjóðum nú Netvörn Vodafone fyrir alla okkar Gull viðskiptavini, en með henni getur þú stjórnað því hvernig hægt er að nota nettenginguna á heimilinu. Í boði eru nokkrir læsingarflokkar, þú einfaldlega velur það sem þú telur henta þér og tekur þannig stjórnina.
Með Netvörn tryggir þú að netnotkun heimilisins sé innan skynsamlegra marka.
Læsingarflokkarnir eru:
- Grunnvörn, sem lokar á vírusa, skaðlegan hugbúnað, njósnaforrit, auglýsingaforrit og síður sem reyna að stela af þér lykilorðum.
- Eldveggur, sem stöðvar utanaðkomandi tilraunir til að tengjast tölvunni þinni.
- Loka fyrir alla netnotkun, sem lokar á allt netsamband. Aðeins er hægt að tengjast vodafone.is til að breyta stillingum. Þennan flokk er hægt að tímastilla.
- Spjallforrit, sem lokar á notkun á spjallforritum. Áfram er þó hægt að nota sumar spjallsíður, t.d. Google Chat og spjall á Facebook. Þennan flokk er hægt að tímastilla.
- Fjárhættuspil, sem lokar á veðmálasíður, lottó og spilavíti af ýmsu tagi.
- Skráaskiptiforrit, sem lokar á notkun á skráaskiptum með torrent, KaZaA, Gnutella o.fl.
- Klám, sem lokar á síður sem innihalda klámfengið efni, ofbeldi gegn börnum eða umfjöllun um kynlíf og kynlífsfræðslu.
Svona virkjar þú Netvörn
- Nýskráir þig á Mínum síðum (sjá leiðbeiningar í PDF skjali).
- Opnar Mínar síður og velur nettenginguna þína.
- Opnar Netvörn.
- Stillir læsingarflokkana sem þú vilt hafa virka.
- Endurræsir beininn (þetta þarf aðeins að gera í fyrsta skipti). Notendur á ljósleiðara þurfa fyrst að endurræsa tengibúnað fyrir ljósleiðarann og bíða í u.þ.b. 40 sekúndur áður en beinirinn er endurræstur í kjölfarið.
- Notendur á ADSL með ZyXEL 660HW-D1 beini (með gulum tengjum aftan á) þurfa einnig að setja notandanafn og lykilorð að nýju inn á beininn (leiðbeiningar um þetta birtast á Mínum síðum eftir að kveikt er á Netvörn).

























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?