Vodafone.is - Sjónvarp um ADSL

Promo header

Vodafone Digital +

Með ADSL eða ljósleiðaratengingu bjóðast yfir 70 stöðvar og Leigan að auki. Vodafone Digital + er nú í boði víða um landið en afhending háð fjarlægð frá símstöð og hraða á línu.

Hvar er þjónustan í boði?

Sjónvarp um ADSL er nú í boði á ADSL dreifikerfi okkar á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, Akranesi, Álftanesi, Borgarnesi, Hveragerði, Selfossi, Vestmannaeyjum og í Reykjanesbæ. Á höfuðborgarsvæðinu, Akranesi, Akureyri, Hvolsvelli, Hellu og Sauðárkróki er þjónustan jafnframt í boði um ljósleiðaratengingar.

Hvaða stöðvar?

Allar stöðvar Digital Ísland eru í boði með ADSL sjónvarpi Vodafone. Með grunnáskrift fylgir aðgangur að opnum stöðvum (RÚV, RÚV+, NOVA TV, Omega, ÍNN, CCTV-9, Alþingi og N4), sért þú í Vodafone Gull færð þú 5 erlendar stöðvar að auki. Áskrift að öllum öðrum stöðvum er seld hjá 365 miðlum (Stöð 2) (stöðvar og dagskrá). Einnig er í boði fjöldi útvarpsstöðva.

Vodafone Gull - það besta sem við bjóðum

Ef þú ert í Vodafone Gull þá fylgja 5 stöðvar með áskrift að Vodafone Digital + um ljósleiðara eða ADSL. Eftirtaldar stöðvar fylgja: Discovery Channel, Cartoon Network, Sky News, SVT1 og DR1 (allt um Vodafone Gull).

Myndlykillinn og HD

Með ADSL tengingu er fjöldi myndlykla takmarkaður við einn á hverja símalínu, en með ljósleiðaratengingu bjóðast allt að 3 myndlyklar á hvert heimili og birtast allar stöðvar á öllum lyklum. Við bjóðum einnig upp á HD myndlykil fyrir þá sem eru tengdir um ljósleiðara (nánar um HD).

Er þetta flottasta sjónvarpsviðmót landsins?

Við hönnun á viðmótinu var lögð mikil vinna í auðvelt og þægilegt aðgengi að dagskrárupplýsingum sjónvarpsstöðva og einfalt viðmót myndleigunnar. Meðal þess sem var haft að leiðarljósi er að viðmótið leggst alltaf „ofan á“ stöðina sem horft er á, leiðbeiningar eru ávallt um notkun litahnappanna og að hægt er að skoða myndir á Leigunni í lista eða með plakötum.

Dagskráin leikur í höndum þér

Sjáðu alla dagskrá stöðvanna út frá sjónvarpsstöð, tímaás eða í fleka - þægilegra en nokkru sinni.

Á tímaásnum sérð þú hvað klukkan er núna með gulu röndinni.

Fáðu áminningu um uppáhaldið

Þú missir ekki af neinu með ótakmörkuðum fjölda áminninga. Smelltu einfaldlega á bláa hnappinn.

Áminningin birtist á skjánum nokkrum sekúndum áður en dagskrárliðurinn hefst.

Ekkert fjarstýringaflipp

Þú notar bara 10 hnappa til að stjórna öllu viðmótinu. Fjórir litahnappar, fjórir örvahnappar, MENU og OK hnappurinn. Það er allt og sumt. Þú getur alltaf lokað með því að smella á þann rauða.

Mínar síður


Spurt og svarað

Tungumál