Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra:

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Verðþak á niðurhali erlendis

Vodafone vill ekki að viðskiptavinir fái óvænt háa reikninga vegna netnotkunar erlendis. Því höfum við sett 50 evru þak á mánuði á netnotkun hjá öllum viðskiptavinum hvar sem er í heiminum, hvort sem það er í gegnum síma eða 3G netbúnað.

Netið í símann í útlöndum

Nú þarftu engar áhyggjur að hafa af netnotkun þinni í útlöndum, því við bjóðum öllum viðskiptavinum upp á stillanlegt þak á niðurhali.

Hvernig virkar þetta?

Virknin hvað varðar netbúnað er þannig að þegar erlenda gagnamagnsþakinu er náð lokast á netnotkun með 3G búnaðinum. Til að opna aftur fyrir niðurhal erlendis geta viðskiptavinir hringt í þjónustuver Vodafone og beðið um að þaki sé aflétt þann mánuðinn, hækkað það í 150 eða 300 evrur eða aflétt að fullu. Þeir sem staddir eru erlendis geta hringt í *111*1414# til að fá gjaldfrjálst samband við þjónustuver Vodafone.

Einnig er hægt að breyta stillingum gagnamagnsþaksins á Mínum síðum hér á Vodafone.is. Það er þó ekki hægt að gera í gegnum 3G búnaðinn ef gagnamagnsþakinu hefur þegar verið náð.

Þakið gildir innan mánaðar, þ.e.a.s. dagatalsmánaðar. Ef ferðalag er yfir mánaðarmót má gera ráð fyrir að þak geti verið fullnýtt beggja megin mánaðarmótanna.

Áhyggjurnar á bak og burt

Það getur verið kostnaðarsamt að nota 3G netbúnað eða síma til að sækja mikið gagnamagn erlendis. Kostir þess að vera vel tengdur á ferðum erlendis eru engu að síður miklir. Gagnamagnsþak Vodafone erlendis tryggir að þú getur verið vel tengdur á ferðalaginu en ávallt treyst því að kostnaðurinn sé innan skynsamlegra marka. Verðskrá niðurhals erlendis má finna hér, auk upplýsinga um daggjaldsþjónustu Vodafone, sem tryggir talsvert ódýrari gagnamagnsþjónustu hjá völdum símafélögum í hátt í 30 löndum.

Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn