GSM og 3G þjónustusvæði innanlands
GSM þjónustusvæði Vodafone er það stærsta á Íslandi, með tilkomu nýrra langdrægra GSM senda sem m.a. tryggja viðskiptavinum Vodafone talsamband í allt að 100 kílómetra á haf út og á hálendinu. Allir farsímar geta notað langdræga kerfið - ekki þarf sérstök símtæki til að geta nýtt sér það.
Þjónustusvæði
Veldu 3G eða GSM til að birta þjónustusvæði. Einnig má leita að heimilisfangi eða örnefni í leitarglugganum.
3G GSM
Betra samband í Húnavatnssýslu
Síðustu daga hefur GSM samband Vodafone verið bætt umtalsvert í Húnavatnssýslu. M.a. fá nú nokkrir bæir GSM samband í fyrsta skipti.
Lesa meiraEnn eflist 3G net Vodafone
Nýir 3G-sendar Vodafone spretta upp eins og gorkúlur þessa dagana og þar með fjölgar enn þeim stöðum þar sem viðskiptavinir Vodafone komast í háhraða netsamband.
Lesa meiraNýir 3G-sendar
27. maí s.l. fóru gang fimm nýir 3G sendistaðir á Austfjörðum, á Seyðisfirði, í Neskaupsstað, á Eskifirði, Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði, og hafa þeir verið komið vel út úr prófunum eins og 3G-gagnahraða, vídeó-samtölum og öðru slíku.
Lesa meiraÖryggið á oddinn
Kortið hér að ofan sýnir þjónustusvæðið, með því að smella á annað hvort GSM- eða 3G-hnappana má sjá hvort þjónustusvæði fyrir sig. Gott er að hafa í huga að þar sem GSM-samband næst geta símar og þráðlaus nettengibúnaður nettengst þótt gagnasendingar innan 3G-þjónustusvæðis séu jafnan hraðvirkari.
Langdræga kerfið er hrein viðbót við núverandi GSM kerfi og bylting í öryggismálum fyrir marga sjófarendur og ferðalanga á hálendinu. Með uppsetningu skapast tækifæri fyrir fólk að nota GSM símann sinn miklu víðar en hingað til og ekki þarf að skipta um símtæki þegar farið er út á sjó eða upp á hálendi.
Önnur þjónustusvæði
Vilt þú skoða fleiri þjónustusvæði hjá okkur?


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?