Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra:

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Netið hér, netið þar, netið allsstaðar

3G Nettengillinn gefur þér tækifæri á að taka nettenginguna með þér, hvert sem þú ferð. Nettengillinn er mjög fyrirferðarlítill og einfaldur í notkun. Honum er stungið í samband við tölvuna og fyrr en varir getur þú notað internetið á allt að 7,2 Mb/s hraða.

Nettengillinn virkar jafnt fyrir Windows og Mac, fartölvur og borðtölvur. Hann er USB tengdur og styður HSDPA, UMTS, EDGE og GPRS.

3G nettengill

USB nettengillinn, stundum nefndur 3G pungur, er einfaldlega stungið í USB rauf tölvunnar og þá er komið á blússandi netsambandi víðs vegar um landið... og heiminn!

Fyrir hvern er nettengillinn ?

Nettengillinn hentar vel fyrir þá sem eru mikið á ferðinni og vilja hafa möguleikann á að tengjast internetinu hvar sem er, hvenær sem er, í sumarhúsinu, á ferðalaginu og jafnvel í útlöndum. Kynntu þér 3G verð erlendis.

Með nettenglinum koma þrjár hliðar, hvítar, rauðar og svartar. Hægt er að búa til sínar eigin hliðar.

Gott er að hafa í huga að aftengja nettengilinn eftir notkun, þar sem forrit í tölvunni þinni gætu verið að nota tenginguna og þar með notað gagnamagnið þitt án þess að þú takir eftir því.

Viltu tengja fleiri en eina tölvu? Skoðaðu Vodafone Mifi og Netbeininn.

Áskrift eða frelsi

3G net er hægt að hafa bæði í áskrift og frelsi. Viðskiptavinum í áskrift bjóðast fjölbreyttari gerðir gagnamagnspakka og þeir fá nettengilinn á hagstæðara verði. Frelsi hentar aftur á móti þeim sem nota 3G netið einstaka sinnum og fylla þá á þegar hentar.
Kynntu þér möguleikana.

Hvar fæ ég nettengil?

Þú getur keypt nettengil í verslunum Vodafone eða með því að panta hann hér í netverslun Vodafone.is. Við minnum einnig á að Vodafone Gull viðskiptavinir fá nettengla á sérkjörum!


Leiðbeiningar

Uppsetningarferlið byrjar sjálfkrafa eftir að þú hefur stungið nettenglinum í samband við tölvuna. Þú kemst fyrirvaralaust í samband með 3G eða EDGE víðs vegar um landið. Hér má líka finna leiðbeiningarbækling á ensku.

Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn