Vodafone.is - 3G Netfrelsi

3G Netfrelsi

Með Netfrelsi ferð þú aldrei umfram gagnamagnið!

Með Netfrelsi greiðir þú fyrir notkunina fyrirfram. Þú byrjar á að kaupa þér nettengil (eða tölvu með innbyggðu 3G), setur símkortið í og kaupir því næst 5 GB eða 10 GB gagnamagn.

3G Netfrelsi er ódýr og þægileg leið til að vera í netsambandi heima við, í sumarbústað eða hvert sem þú leggur leið þína innanlands (sjá kort af útbreiðslu 3G og EDGE).

Gagnamagnið gildir í 30 daga frá áfyllingu. Þú fyllir á þegar þér hentar eða virkjar sjálfvirka áfyllingu af debet- eða kreditkorti til að hafa 3G alltaf virkt. Netfrelsi virkar ekki í útlöndum og ekki er hægt að nota neina símaþjónustu á símkortinu.

Verðskrá 3G Netfrelsis

Gagnamagn Verð
5 GB 1.990 kr.
10 GB 3.990 kr.

Aldrei er farið umfram gagnamagnið í Netfrelsi, heldur þarf að fylla aftur á ef gagnamagnið klárast.

Fylltu á Netfrelsið

Skráðu þig inn á Mínar síður með fullri auðkenningu (í heimabanka).

Á Mínum síðum getur þú fyllt á Netfrelsið þitt af kreditkorti eða virkjað sjálfvirka áfyllingu af debet- eða kreditkorti.

3G Netfrelsi (frh.)

Svona kaupir þú Netfrelsi

Netfrelsi getur þú keypt í næstu Vodafone verslun eða með einu símtali í 1414.

Svona fyllir þú á Netfrelsið

Farðu inn á Mínar síður og fylltu á af kreditkorti eða virkjaðu sjálfvirka áfyllingu af debet- eða kreditkorti. Einfalt og fljótlegt.

Hvaða búnað þarf?

Til að nota 3G Netfrelsi þarft þú að vera með 3G net í tölvunni þinni.

Essassú?

Þér býðst að kaupa 3G USB nettengil (3G pungur) á 7.990 kr. en Vodafone Gull viðskiptavinir okkar fá að auki 1.000 kr. afslátt. Þessi nettengill styður 7,2 Mbit/s gagnaflutningshraða og er því leiftursnöggur!

Við seljum einnig Dell Inspiron Mini 10 3G fistölvuna (sem er með innbyggðu 3G neti) á aðeins 6.990 kr. á mánuði í 12 mánuði og 5 GB Netfrelsi fylgir með.

Kíktu á Essasú auglýsinguna með froskinum á YouTube (þessi upphaflega). Essasú auglýsingin er hér.

 

Tungumál

Mínar síður

Innskrá | Týnt lykilorð? | Nýskrá