Netið í bústaðinn, bátinn og bílinn
Vodafone Netbeinir (Huawei B260) hentar mjög vel til að setja upp þráðlaust net og deila 3G nettengingu. Beininn má tengja við loftnet til að tryggja enn betra samband og því er hann vinsæll fyrir sumarbústaðaeigendur og einnig í báta, trillur og bíla.
Beinirinn hentar afar vel fyrir þá sem vilja komast í netsamband þar sem ekki er ADSL eða ljósleiðari. Nóg er að vera á hefðbundnu GSM-þjónustusvæði til að geta nettengst, þótt meiri gagnaflutningshraði náist jafnan á 3G-þjónustusvæði heldur en gegnum hefðbundna farsímakerfið.
Netbeinir er nettur en fer þó ekkert sérstaklega vel í vasa. Við mælum með léttri handtösku undir gripinn.
Beinirinn er með innbyggðu loftneti en einnig er hægt að tengja utanáliggjandi loftnet við hann og ná þannig ennþá betra sambandi. Hann hentar því vel á jaðarsvæðum 3G-þjónustusvæðisins.
Heimasími utan heimilis
Netbeininn er hægt að tengja við hefðbundið símtæki og þannig getur þú fengið heimasíma utan heimilis. Sé netbeinirinn tengdur við loftnet veitir hann jafnan mun betra talsamband en hefðbundinn farsími og því getur hann bætt símasambandið í sumarbústaðnum, bátnum eða bílnum umtalsvert.
Með honum má því slá tvær flugur í einu höggi - fá öruggara símasamband og nettengja tölvuna og aðrar internetgræjur utan heimilisins.
Áskriftarmöguleikar
Þú getur valið hvort þú kaupir áskrift eða frelsi. Viðskiptavinum í áskrift bjóðast fjölbreyttar gerðir gagnamagnspakka og netbeinirinn á hagstæðari kjörum.
Kjósir þú að nota hann bara fyrir nettengingu kaupir þú 3G netáskrift. Viljir þú nýta möguleikann á símasambandi með beininum kaupir þú farsímaáskrift og getur bætt við hana gagnamagnspakka.
Í eftirfarandi skjali má fá nánari leiðbeiningar um uppsetningu netbeinisins (PDF).


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?