Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra:

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Á netið með símanum

Flesta nýja síma er nú hægt að tengja við tölvur og nýta þá til að nettengjast yfir 3G net. Þannig er hægt að komast á netið í tölvunni hvar sem síminn kemst í gagnasamband!

Á netið með símanum

Það er þægilegt að nota bara símtækið til að fara á netið. Við mælum einnig með gagnamagnsáskrift með farsímaáskriftinni.

Símtækið kemur tölvunni þinni á netið

Með viðeigandi hugbúnaði getur þú notað símtækið þitt til að fara á netið í tölvunni. Notkun er þá greidd af farsímanúmerinu þínu. Hugbúnaðurinn sem fylgdi með símanum býður oftast upp á þennan möguleika, en einnig er hægt að nota hugbúnaðinn Via the Phone - sjá leiðbeiningar hér neðar á síðunni.

Þegar þú nettengist með þessum hætti getur þú vafrað um internetið í tölvunni svo lengi sem gagnasamband næst. Hringt og tekið á móti símtölum þó svo að síminn sé tengdur við tölvuna og þarft engar áhyggjur að hafa af líftíma rafhlöðunnar því flestir símar hlaða sig í gegnum tölvuna á meðan þeir eru tengdir með USB-snúru.

Þráðlausar tengingar

Nýjustu snjallsímarnir, t.d. iPhone 4 og Android í útgáfu 2.3, geta búið til þráðlaust net sem nærstaddar tölvur geta tengst. Þannig er ekki lengur þörf á að nota snúru til að tengja símann og tölvuna. Hafa skal þó í huga að með þessi eiginleiki tæmir rafhlöðu símans hratt þegar hann er notaður.

Gagnamagn

Mikilvægt er að huga að því að áskriftaleiðin þín innihaldi nægjanlegt gagnamagn til þess að ekki komi til aukakostnaðar við niðurhal efnis af netinu. Lestu þér til um áskriftarleiðir Vodafone.

Gagnamagn erlendis

Þú getur líka notað símtækið til að tengjast netinu í gegnum tölvuna erlendis, en viðskiptavinir Vodafone þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að símreikningar fari langt fram úr áætlunum vegna gagnaflutnings. Allir viðskiptavinir Vodafone eru nú sjálfkrafa með 50 evru þak á mánuði vegna slíkrar netnotkunar, hvar sem er í heiminum.

Ef þú þarft meira gagnamagn geturðu stillt notkunina eftir þörfum á Mínum síðum eða með einu símtali í 1414.

Leiðbeiningar fyrir Via the Phone

  • Sæktu Via the Phone hugbúnaðinn fyrir Windows
  • Tengdu símtækið við tölvuna með usb-snúru eða bluetooth
  • Tvísmelltu á skrána sem þú sóttir og fylgdu leiðbeiningunum á skjánum.
  • Eftir að uppsetningu er lokið mun glugginn „Vodafone Mobile Connect via the phone“ birtast, en þar tengist þú og aftengist þjónustunni
  • Ítarlegar leiðbeiningar.(PDF)

Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn