3G net í áskrift eða Netfrelsi?
Veldu á milli þess að greiða fyrir notkunina fyrirfram með Netfrelsi eða vera í áskrift og þurfa þannig aldrei að pæla í áfyllingunni.
3G Áskrift
Með því að vera með 3G net í áskrift getur þú valið gagnamagnspakka sem hentar þinni notkun. Í boði eru 1 GB, 5 GB, 15 GB og 30 GB pakkar.
Sértu í áskrift getur þú líka notað 3G netbúnaðinn þinn í útlöndum. Allir viðskiptavinir Vodafone eru sjálfkrafa með 50 evru gagnamagnsþak erlendis. Þú getur breytt gagnamagnsþakinu á Mínum síðum. Kynntu þér líka 3G verð erlendis.
3G Netfrelsi
Þú greiðir fyrir notkunina fyrirfram. Ekkert fast mánaðargjald og þú kaupir þér inneign þegar þér hentar. Þú getur valið um tvo gagnamagnspakka 5 GB og 15 GB.
Þú getur keypt inneign hér á vefnum okkar með kreditkorti eða virkjað sjálfvirka áfyllingu af debet- eða kreditkorti á Mínum síðum.
Gagnamagnið gildir í 30 daga frá áfyllingu og fyrnist eftir það. Ef fyllt er á innan 30 daga bætist það gagnamagn við það sem fyrir var á Netfrelsinu og gildistíminn framlengist um 30 daga.
Netfrelsið virkar ekki í útlöndum.
Verðskrá allra 3G net leiða
Eins og sjá má í töflunni eru 4 leiðir í boði í áskrift og 2 í Netfrelsi.
| Gagnamagn | Verð | Áskrift | Netfrelsi |
|---|---|---|---|
| 1 GB | 1.090 kr. | ||
| 5 GB | 1.990 kr. | ||
| 15 GB | 3.990 kr. | ||
| 30 GB | 4.990 kr. |
Í 3G net er allt gagnamagn talið (ólíkt ADSL og ljósleiðara). Hægt er að fylgjast með notkuninni á Mínum síðum. Umframnotkun gagnamagns í áskrift kostar 2 kr./MB.
3G net í áskrift getur þú tekið með í fríið eða vinnuferðina út fyrir landsteinana. Notkun í útlöndum er greidd skv. útlandaverðskrá, en þar gildir almenn verðskrá þar sem heiminum er skipt upp í 3 svæði.
Í ákveðnum löndum innan Evrópu er einnig í boði daggjald, 22 evrur, fyrir 50 MB á dag. Skráning í daggjald í útlöndum kostar ekkert aukalega. Lestu meira um 3G notkun í útlöndum.Verðskrá 3G netbúnaðar
Þú færð 3G netbúnað til að fá nettengingu gegnum farsímanetið í verslunum Vodafone. Ef þú ert í Vodafone Gull færðu afslátt af ákveðnum netbúnaði og eins er veittur afsláttur af kaupum á búnaði ef gerður er 6 mánaða samningur um áskrift á 5, 15 eða 30 GB gagnamagni.
| Búnaður | Verð | Gull verð | Með 6 mánaða samningi |
|---|---|---|---|
| Nettengill | 8.690 kr. | 6.952 kr. | 0 kr. |
| Mifi | 16.990 kr. | 13.592 kr. | 3.990 kr. |
| Netbeinir | 28.990 kr. | 23.192 kr. | 15.990 kr. |


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?