FAQ
Algengar spurningar
-
Get ég fylgst með gagnamagni 3G nettengils?
Já, á Mínum síðum getur þú fylgst með stöðunni á 3G áskrift og 3G netfrelsi.
Til að sjá nettengilinn þinn á Mínum síðum þarft þú að fara í gegnum fulla auðkenningu, en þá er rafrænt skjal sent í heimabankann þinn. Þetta er gert til að tryggja að óviðkomandi aðili komist ekki í upplýsingar um notkun þína. Á fullauðkenndum aðgangi hefur þú aðgang að allri þjónustu sem þú ert notandi að og/eða greiðandi fyrir.
-
Get ég fylgst með notkuninni í tölvunni minni?
Í forritinu sem fylgir með nettenglinum og notað er til þess að tengjast netinu má fylgjast með notkuninni. Það er gert með því að fara í View usage gluggann þar sem sjá má hversu mikið gagnamagn hefur verið notað í mánuðinum. Þessar tölur eru ekki 100% nákvæmar en gefa mjög góða mynd af því hversu mikil notkun hefur átt sér stað.

Hægt er að stilla hugbúnaðinn þannig að hann komi í veg fyrir að notað sé meira en ákveðið. Það er gert með að fara í “Set Limit” í “View Usage” glugganum og velja þar hversu mikið gagnamagn viðkomandi vill geta notað. Athugið að stillingarnar í gluggunum segja til um samtals gagnamagn. Ef tækð er mest notað á 3G getur borgað sig að setja þar inn þá tölu sem skal nota en hafa þá eitthvað minna eða ekki neitt í GPRS hlutanum.

-
Hvar er hægt að nota 3G net hjá Vodafone?
Hægt er að sjá 3G útbreiðslusvæðið með því að smella hér.
Þar sem 3G net er ekki í boði þá er hægt að tengjast gegnum EDGE / GPRS sem er talsvert hægara en virkar vel fyrir mobile síður sem eru smærri. -
Hvað er 3G net í áskrift?
3G áskrift gerir þér kleift að komast í þráðlaust netsamband með netbúnaði fyrir tölvur þar sem 3G eða GPRS er að finna.
Með 3G net í áskrift getur þú valið um 1 GB, 5 GB, 15 GB eða 30 GB á mánuði, gagnamagnið gildir um alla notkun netbúnaðar á Íslandi.
Þegar farið er til útlanda getur þú valið um að greiða daggjald (50 MB innifalin hvern dag). Einnig er hægt að fá gagnamagn með frelsi.
Nánari upplýsingar um 3G áskrift og frelsi. -
Hvað er 3G netfrelsi?
3G netfrelsi gerir þér kleift að komast í þráðlaust netsamband með netbúnaði þar sem 3G eða GPRS er að finna.
3G netfrelsi virkar þannig að þú kaupir þér 5 eða 15 GB gagnamagnspakka og þegar allt gagnamagnið hefur verið nýtt þá lokast fyrir niðurhalið og því myndast engir bakreikningar.
Gagnamagnið gildir í 30 daga og hægt er að kaupa það á Mínum síðum, á öruggum vef Vodafone, í verslunum og símleiðis í 1414.
Einnig er hægt að kaupa gagnamagn í áskrift. Nánari upplýsingar um áskrift og frelsi hér.
-
Hvað er 3G Nettengill?
Nettengill gerir þér kleift að vera í þráðlausu netsambandi með fartölvunni þinni alls staðar þar sem 3G og EDGE nýtur við, jafnt innanlands sem utan.
Þú getur skoðað og sent tölvupóst, SMS, vafrað á internetinu og tengst vinnumhverfi þínu (VPN).
Nettengillinn styður jafnt HSDPA, UMTS, EDGE og GPRS. Hraðinn sem þú nærð fer eftir því í hvers konar sambandi þú ert og hversu gott sambandið er hverju sinni. Nánari upplýsingar má finna hér.
-
Hversu mikinn hraða fæ ég á 3G nettengli?
Með 3G er hægt að ná allt að 7.2 Mb/s
Með EDGE er hægt að ná allt að 230 kb/s
Með GPRS er hægt að ná allt að 43 kb/s
Hægt er að sjá útbreiðslu 3G sambandsins hér.
-
Get ég notað einn nettengil fyrir margar tölvur?
Já,
Vodafone Box (VOX) beinirinn er með rauf fyrir 3G nettengil, þannig er hægt að láta beininn deila netsambandinu yfir á nokkrar vélar. Þessir nettenglar virka með VOX beininum: Huawei: E220, E270, E272, E172, K3715, K3760, K352. ZTE: K3765.
Einnig er hægt að fá Vodafone MiFi búnað og Vodafone netbeini til að tengja saman allt að fimm tölvur með einum 3G netbúnaði. Tölvurnar tengjast græjunni með þráðlausu neti og er með rafhlöðu fyrir þá sem eru á ferðinni. Meira um MiFi hér og netbeininn hér. -
Hvað kostar að nota Nettengilinn í útlöndum?
Hægt er að sjá verðskrána með því að smella hér.
-
Hvernig er uppsetningarferlið?
Þegar þú stingur USB nettenglinum í samband við tölvuna þína ætti uppsetningarferlið að hefjast sjálfkrafa.
Sæktu þér Quick start guide (bækling) til að fræðast nánar um uppsetningu og virkni nettengilsins.
Sækja þarf hugbúnaðinn sérstaklega fyrir Mac OSX og Linux
Í sumum tilvikum þarf að ná í hugbúnað fyrir Windows 7 áður en nettengill er settur upp. Hægt er að nálgast hann hér. -
Ég var að fá 3G-búnað í áskrift hjá ykkur. Fæ ég fullt gagnamagn fyrir fyrsta mánuðinn?
Þegar viðskiptavinir fá nýjan 3G búnað og áskrift að gagnamagni fæst EKKI fullt gagnamagn fyrir fyrsta mánuðinn, nema búnaðurinn sé keyptur 1. dag mánaðarins. Gagnamagnið fyrir fyrsta mánuðinn er í hlutfalli við það hversu mikið er eftir af mánuðinum þegar áskriftin hefst.
T.d. ef áskrift hefst 20. dag 30 daga mánaðar færð þú 1/3 gagnamagnsins (af því að 1/3 er eftir af mánuðinum) af þinni áskrift fyrir þann mánuð. Að sjálfsögðu er upphæð fyrsta reiknings áskriftarinnar einnig í hlutfalli við það hversu mikið var eftir af mánuðinum þegar áskrift hófst. Í þessu dæmi myndi fyrsti reikningurinn vera 1/3 af hefðbundinni mánaðaráskrift.
Við hvetjum viðskiptavini til að hafa þetta í huga við upphaf áskriftar - sérstaklega ef áskrift hefst seint í mánuðinum.
-
Er öll notkun talin?
Já,
Bæði innlend og erlend notkun er talin. -
Get ég notað nettengilinn í fleiri en einni tölvu?
Já. En ef þú notar nettengilinn þinn í tveimur eða fleiri tölvum og vilt fylgjast með niðurhali þarftu að leggja saman gagnamagnið sem hugbúnaður í hvorri tölvu segir til um að þú hafir notað til að glöggva þig á heildarnotkuninni á hverju tímabili.
Dæmi: Ef þú hleður niður 2 GB í annarri tölvunni og 1 GB í hinni (alls 3 GB), þá áttu 2 GB eftir af 5 GB inniföldu gagnamagni. Þú getur líka fylgst með gagnanotkun þinni á mínum síðum. -
Hvaða vélbúnaðarkröfur eru gerðar?
Til að geta notað USB Nettengilinn þarft þú að vera með að minnsta kosti Windows XP, Windows Vista eða Mac OS X 10.3.9.
Einnig þarf að vera a.m.k. 50 MB laust diskpláss og 256 MB í vinnsluminni. Tölvan þarf svo auðvitað að vera með USB 2.0 innstungu. -
Hverrar tegundar er USB Nettengillinn?
USB nettengillinn er framleiddur af ZTE fyrir Vodafone og hefur númerið K3765.
-
Ef uppsetning á Vodafone forritinu virkar ekki (VMCLite)
1. Endurræstu tölvu
2. Hægrismelltu á My Computer og smelltu á Properties, veldu því næst Hardware og opnaðu Device Manager.
3. Stækkaðu „Universal Serial Bus Controllers“
4. Hægrismelltu á „USB Mass Storage Device“ og veldu Uninstall.
5. Smelltu á „Action“ og „Scan for Hardware changes“
6. Endurræstu tölvu
-
Ef þú nærð ekki að tengjast
1. Bíddu í nokkrar mínútur og reyndu að tengjast aftur, þetta er mjög oft tímabundið vandamál, sérstaklega ef þú ert að fá „Error 631“ eða „Error 619“.
2. Farðu í File og Exit, ræstu svo forritið og reyndu aftur.
3. Endurræstu tölvuna
4. (Windows) Smelltu á „Manage Devices“ veldu búnaðinn og smelltu á edit og prufaðu að velja annað en „3G Only“ t.d GPRS/EDGE Preferred.
4b.(Mac) Í aðalglugganum prufaðu að velja annað en „3G Only“ t.d GPRS/EDGE Preferred.
-
Ef þú sérð ekki USB nettengilinn undir Devices
1. Fjarlægðu USB nettengilinn úr tölvunni
2. Endurræstu vélina
3. Tengdu USB nettengilinn aftur -
Hvað geri ég ef engin net finnast?
1. Breyttu um staðsetningu innanhúss, farðu nær glugga, farðu hærra upp eða farðu út. Einnig er alltaf gott að prófa að endurræsa allan búnað.
Til að leita að þráðlausum netum:
2. Veldu View og View Available Mobile Connections og athugaðu hvort að þú náir að tengjast handvirkt
2b. Veldu Tools og Select Network.
2c. (Macintosh) Connections, smella á plúsinn og Select Networks
-
Hvað þýða ljósin á nettenglinum?
Blikkandi grænt ljós = Lykillinn er að keyra sig inn / Lykillinn er að reyna að tengjast á 2G.
Blikkandi blátt ljós = Lykillinn að reyna að tengjast.
Stöðugt blátt ljós = Lykillinn er tengdur á 3G.
Stöðugt grænt ljós = Lykillinn er tengdur á 2G.
Ekkert ljós = Lykillinn er ekki í sambandi eða ekki að reyna að tengjast. -
Hvernig fylli ég 3G nettengil í frelsi?
Netfrelsi getur þú keypt í næstu Vodafone verslun eða með einu símtali í 1414.
Einnig eru nokkrar leiðir til að gera það sjálf/ur.
Þú getur fyllt á með kreditkorti hér. Þú getur einnig skráð þig inn á Mínar síður og fyllt á af kreditkorti eða virkjað sjálfvirka áfyllingu af debet- eða kreditkorti.
Til að kaupa gegnum sjálfvirka áfyllingu er eftirfarandi gert:
*126*1990*PIN*Númer netfrelsis# Hringja - Þetta eru 5GB.
*126*3990*PIN*Númer netfrelsis# Hringja - Þetta eru 15GB. -
Hvernig leita ég að netum og tengist handvirkt?
Hægt er að sjá leiðbeiningar með því að smella hér
-
Stækka notkunartakmörk i samræmi við þjónustuleið
Ef þú ert með 15GB þjónustuleið þá geturðu látið forritið vara þig við þegar þú nálgast þá takmörkun. Einnig er mögulegt að forritið sé stillt á 5GB þótt þú sért með stærri þjónustuleið og forritið hindri þig þannig í að nýta alla inneignina.
Smelltu hér til að fá leiðbeiningar til að breyta þessu.

























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?