Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra:

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Hvar sem er, hvenær sem er með MiFi

Vodafone MiFi er fyrirferðarlítill beinir sem gerir þér kleift að hafa allt að fimm tæki, sem eru með virkt WiFi (t.d tölvu, ipad, leikjatölvu og tónlistarspilara), tengd yfir eina þráðlausa 3G nettengingu á öruggan máta.

3G hotspot

Þú kemur tækjunum þínum á netið með færanlegum 3G heitum reit frá okkur. Ótrúlega þægilegt, meðfærilegt og einfalt.

MiFi gengur fyrir rafhlöðu, sem hlaðin er með USB snúru eða straumbreyti, en með því opnast sá möguleiki að vera með nettengingu til dæmis í sumarbústaðnum, í bílnum og í útlöndum. Kynntu þér 3G verð erlendis.

Einnig er hægt að setja microSDHC minniskort (fylgir ekki með) í beininn en það gerir þér kleift að deila gögnum með þeim sem líka eru tengdir við beininn.

Hvað þarftu?

Til þess að geta notað beininn verður tækið sem þú ætlar að tengja við hann að styðja WiFi 802.11 b/g og hafa internetvafra.

Beinirinn hefur allt að 7,2 Mbit/s flutningshraða og styður HSDPA, UMTS, EDGE og GPRS. Líftími rafhlöðunnar er allt að 4 tímar.

Vodafone MiFi er hægt að hafa bæði í áskrift og frelsi. Hann er seldur í verslunum Vodafone og í netversluninni hér á síðunni.

Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn