Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra:

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Hjálp - Sjónvarp - Digital

FAQ

Algengar spurningar

  • Hvernig stilli ég stöðvar inn á myndlykilinn?

    Ýtt á Menu á fjarstýringunni, flett á sjálfvirka leit og ýtt á OK. Ef beðið er um pin nr þá er það 0000. Þá kemur upp rammi með Kerfisleit af Leitartegund allt. Þessu þarf ekki að breyta heldur bara ýta á OK og þá byrjar lykillinn að leita að stöðvum.

    Ekki þarf að ýta á neitt fyrr en það kemur á skjáinn Leit Lokið, ýtt er þá 3x á OK takkann til að vista og þá kemur aðalvalmynd aftur upp og þá er ýtt á Exit.

    Ef engar stöðvar fundust er mögulegt að loftnetið sé ekki rétt tengt við myndlykilinn.

    Sért þú með Amino myndlykil (móttaka um ADSL- eða ljósleiðaratengingu) koma nýjar stöðvar inn sjálfkrafa eða þegar þú endurræsir myndlykilinn.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvaða búnað þarf ég til að ná útsendingunum?

    Til að ná stafrænum útsendingum þarf stafrænan búnað.

    Þegar þú kaupir áskrift að pakka á Vodafone Sjónvarpi Digital færð þú stafrænan myndlykil. Sért þú ekki með áskrift að neinum stöðvum getur þú leigt myndlykil gegn vægu gjaldi til að geta notið stafrænna gæða á fríum stöðvum (RÚV, ÍNN o.fl.).

    Á höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesi og hluta suðurlands er hægt að nota venjulegt UHF-loftnet en til að ná öllum stöðvum þarf örbylgjuloftnet. Annars staðar, þar sem útsending er á UHF tíðni, dugir venjulegt UHF-loftnet.

    Til að sjá hvaða stöðvar eru í boði fyrir þig getur þú flett upp þínum heimabæ hér.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvernig loftnet þarf til að ná útsendingu Digital Ísland?

    Digital Ísland sendir bæði út á Örbylgju (SV-hornið og hluti Suðurlands) og eins á UHF bandi um allt land.

    Þar sem viðskiptavinir ná örbylgjuútsendingum geta þeir notað örbylgjugreiður (MMDS loftnet) og þar er mest framboð sjónvarpsstöðva.

    Til að ná UHF útsendingum Digital Ísland þarf UHF loftnet (hefðbundið loftnet, ekki örbylgjugreiðu).

    Framboð stöðva á UHF kerfum Digital Íslands er takmarkaður við 8 eða 16 stöðvar eftir svæðum.

    Loftnet geta verið mismunandi að gæðum og gildir því sú regla að því tæpara merki sem viðkomandi nær (td ef búseta er langt frá sendi eða í skugga) því betra loftnet þarf. Lágsuðs loftnetsmagnarar geta oft á tíðum bætt móttöku merkja til muna þar sem tæpt er.


    Loftnetin fást hjá raftækja- og loftnetsverslunum.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvar panta ég áskrift að sjónvarpsstöðvum?

    Í verslunum Vodafone, áskriftarþjónustu Stöðvar 2 í síma 512-5100 og á áskriftarvef Stöðvar 2 er seld áskrift að Stöð 2, sportstöðvum Stöðvar 2 og erlendum sjónvarpsstöðvum (Stöð 2 Fjölvarp). 

     

    Áskrift að SkjáEinum og SkjáGolf má panta á vef Skjásins og í áskriftarsíma Skjásins, 595 6000.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvað er Vodafone Sjónvarp?

    Vodafone Sjónvarp er stafrænt sjónvarpsdreifikerfi Vodafone á Íslandi. Vodafone Sjónvarp má fá annars vegar með UHF- eða örbylgjusendingum og kallast þá Vodafone Sjónvarp - Digital (einnig kallað Digital Ísland).

    Vodafone Sjónvarp má einnig fá gegnum ADSL- eða ljósleiðaratengingar en þá fæst jafnframt aðgangur að Leigunni, þar sem hægt er að panta sjónvarpsefni af ýmsu tagi. Nánari upplýsingar um Vodafone Sjónvarp og hvaða þjónustuleiðir standa þér til boða má finna hér.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvar fæ ég nýjan myndlykil?

    Hægt er að nálgast stafræna myndlykla í næstu Vodafone verslun og hjá umboðsmönnum Vodafone Digital Íslands um land allt.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hverjir geta fengið sumarbústaðarlykil?

    Nokkrar mismunandi áskriftarleiðir eru í boði fyrir sumarbústaðaráskriftir. Yfirlit yfir þær má finna hér.

    356 miðlar (þjónustuver þeirra er með símann 512 5100) sjá um opnun á sumarbústaðarlyklum en Vodafone sér um að afhenda þá.

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Ég fæ bara lokuð rás

    Ef það er búið að greiða fyrir áskriftina að viðkomandi stöð þá þarf að hafa samband við Vodafone.
    Ef allar rásir sýna "lokuð rás" athugið þá hvort loftnetsmerkið er til staðar með því að styðja á bláa takkann. Þá kemur S og Q mæling neðst á skjáinn. Ef S og Q er 0% athugið þá hvort loftnetssnúran sé í sambandi við myndlykilinn. Lág gildi á S og Q benda til að annað hvort viðkomandi loftnetskerfi eða útsending hafi bilað.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Ég fæ mjög óskýra mynd

    Þegar þú tengir myndlykilinn við sjónvarpið eingöngu með RF snúru (loftnetssnúru) þá skila myndgæði sér ekki eins vel í sjónvarpið og þegar notuð er SCART eða RCA snúra.

    Við mælum því með að notuð sé SCART snúra (eða RCA) þar sem því verður komið við. Einnig gæti verið að myndgæði batni til muna þegar skipt er um útgangsrás á lyklinum:

    1. Menu
    2. Uppsetning
    3. RF útgangsrás (PIN númer = 0000)
    4. Það hægt að færa útgangsrásina frá 33 yfir á t.d. 35 (hún má vera frá 21-45)
    Svo er bara um að gera að prófa næstu útgangsrás og athuga hvort myndin lagist.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Ég fæ „No signal / Ekkert merki“

    Styðjið á bláa takkann á fjarstýringunni og ath S og Q %.  Ef S og Q er 0% ath þá hvort loftnetssnúran er tengd við myndlykilinn. Ef S og Q gildin eru lág þá getur viðkomandi loftnetskerfi eða útsending hafa bilað.

    Prófaðu að taka myndlykilinn úr sambandi í 30 sekúndur og stinga honum svo aftur í samband. Því næst ferðu í sjálfvirku leitina (Menu -> Sjálfvirk leit) og leyfir myndlyklinum að rúlla í gegnum það.

    Ef það leysir ekki vandann þá þarf að skoða eftirfarandi hluti.
    1. Er myndlykill rétt tengdur
    2. Skipta út loftnetssnúru frá vegg í myndlykil.
    3. Mögulega bilaður myndlykill.
    4. Mögulega bilað loftnet.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Ég fæ „Scrambled channel“

    Það þýðir að myndlykillinn nær ekki að lesa áskrift af kortinu. Fyrir þessu eru aðallega 2 ástæður:

    1. Þegar nýr myndlykill er settur í samband eða nýtt kort í myndlykil tekur alla jafna um 30-60 mín fyrir áskrift að opnast og kemur þá Scrambled Channel á skjáinn á meðan.

    2. Ýtið á Menu á fjarstýringunni fyrir myndlykilinn og veljið Aðgangskerfi á skjánum
          Þarna inni á að standa CAS RAUF 1: CONAX CA

    Ef eitthvað annað stendur þar þá þarf að taka kortið út úr lyklinum og þurrka af því. Einnig má prófa að blása í kortarauf myndlykilsins og setja kortið aftur inn. Ef myndin lagast ekki við það er næsta skref að skipta kortinu út í næstu verslun Vodafone eða hjá næsta umboðsmanni.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Ég fæ „Smartcard wrong inserted“

    Prófaðu að taka myndlykilinn úr sambandi í 30 sekúndur og stinga honum svo aftur í samband.

    Ef ekkert breytist við það, þá er líklegt að smartkortið snúi vitlaust í lyklinum.

    Á venjulegum Digital Ísland myndlykli þá á gullkubburinn að snúa niður. Á upptökulykli (PVR) og háskerpulykli (HD) þá á gullkubburinn að snúa upp.

    Ef vandamál er enn til staðar þá þarf að skipta út búnaði.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvað getur valdið truflunum á loftneti?

    Helstu þættir sem geta valdið truflunum á móttöku sjónvarpsmerkja um loftnet eru:

    * Ef raki kemst í loftnetskapalinn eða loftnetið sjálft getur það haft truflandi áhrif á móttökugæðin.

    * Eitthvað skyggir á sendinn, t.a.m. tré eða byggingar.

    * Sé merki tæpt geta truflanir orðið vegna veðurs (sérstaklega mikillar snjókomu eða rigningar).

    * Einnig getur valdið vandamálum þegar merki berst yfir sjó (t.d. á Suðurnesjum frá aðalsendi örbylgjunnar). Við ákveðin skilyrði getur endurkast frá sjó borist í loftnetið ásamt merkinu frá sendinum, þetta getur valdið tímabundnum truflunum.

    * Truflanir geta verið frá einhverju tæki sem notar örbylgjutíðni, t.d. þráðlausum tengingum, örbylgjuofni eða öðru þvíumlíku (gildir aðeins um móttöku frá örbylgjuloftnetum).

    * Spennugjafar fyrir örbylgjuloftnet geta bilað. Lýsir sér oft í truflunum þegar mest rafnotkun er, t.d. í kringum kvöldmatarleytið.

    Í þeim tilvikum sem merki loftnetsins berst til myndlykilsins um loftnetskerfi fjölbýlishúss getur lofnetskerfið verið að valda truflunum. Tengi geta verið biluð eða komið slit í þau. Of sterkt merki getur valdið truflunum.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Get ég horft á háskerpuútsendingar í sjónvarpinu mínu?

    Til að horfa á háskerpuútsendingar þarftu sérstakan háskerpumyndlykil, örbylgjuloftnet (á Akureyri þarf aðeins UHF loftnet) og áskrift að háskerpusjónvarpsstöðvum á Digital Ísland dreifikerfinu. Háskerpumyndlyklar eru uppseldir hjá Vodafone og verða ekki pantaðir aftur. Ef þú ert ekki þegar með slíkan lykil hefur þú tvo aðra möguleika til að taka á móti HD-útsendingum, annars vegar CAM-sjónvarpskort, ef sjónvarpið þitt getur tekið við slíku korti, eða sjónvarpsaðgang gegnum ljósleiðara. Sjá nánar um möguleikana hér.

    Til að njóta gæðanna til fulls þarftu háskerpusjónvarp (HD eða HD ready) og þú getur leitað upplýsinga um þitt tæki hjá þeim sem seldi þér tækið.  

    Þær stöðvar sem eru sendar út í háskerpu eru National Geographic HD og Stöð2 Sport HD.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvar eru háskerpuútsendingar í boði?

    Háskerpuútsendingar Digital Ísland eru í boði þar sem örbylgjuútsendinga nýtur við á Suðvesturhorni landsins og einnig þar sem hægt er að tengjast ljósleiðara.

    Háskerpuútsendingar eru einnig í boði á Akureyri. 

    Þú getur séð hvaða möguleikar eru í boði í þínu byggðarlagi með því að velja það úr listanum hér. Þú getur jafnframt séð hvort þitt heimili sé tengt ljósleiðara með því að fletta því upp hér

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvaða stöðvar eru sendar út í háskerpu?

    Tvær stöðvar eru sendar út í háskerpu á Digital Ísland. Annars vegar er um að ræða Stöð 2 Sport HD, sem sýnir valda leiki úr enska boltanum í háskerpu.

    Hins vegar sjónvarpsstöðina National Geographic HD, þar sem áhersla er lögð náttúrulífs- og fræðsluefni af ýmsu tagi. Kaupa þarf áskrift að þessum stöðvum hjá Stöð 2, nánari upplýsingar hér.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Eru háskerpulyklarnir með myndmótara?

    Háskerpumyndlyklar Vodafone eru ekki með myndmótara.

    Það þýðir að myndin frá lyklunum er ekki að mótast inn á loftnetskerfi notandans. Myndin fæst bara með Scart, HDMI tengi (Composite fyrir þá sem ekki nota HDMI) eða RCA tengi.

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvar fæ ég háskerpu myndlykil?

    Háskerpumyndlyklar eru uppseldir hjá Vodafone og verða ekki pantaðir aftur inn. Ef þú átt ekki nú þegar slíkan myndlykil er einfaldasta leiðin til að ná HD-útsendingu að fá hana í gegnum ljósleiðaratengingu.

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Ég fæ bara svarthvíta mynd

    Ef sjónvarpið þitt sýnir allt svarthvítt úr Digital Ísland myndlyklinum skalt þú prófa að ýta á P.STD takkann á fjarstýringunni og skipta yfir á PAL eða sjálfvirkt.

    Ef það virkar ekki og þú ert með afruglarann tengdan í sjónvarp með skarttengi þá geturðu prófað að fara í (Menu -> Uppsetning -> Scart út) og skipta um stillingu.
     
    Einnig getur þú líka kannað hvort scarttengið sé alveg fast í tengi á annaðhvort sjónvarpi eða afruglara.
    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvar fæ ég loftnetsþjónustu?

    Á vefsíðu Samtaka atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði (SART) getur þú séð lista yfir fyrirtæki sem sinna loftnetsþjónustu. Fjölmörg fyrirtæki að auki selja loftnet og lagnaefni fyrir uppsetningar á loftnetskerfum. Gulu síðurnar á Já og Gula línan geta gefið upplýsingar um þessar verslanir.
    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvað er PIN númerið?

    PIN númerið er 0000.

    Það er hægt að breyta því.
    1. Menu
    2. Uppsetning
    3. 0000
    4. Breyta PIN-Númeri
    5. Hægri píla
    6. Slærð inn gildandi PIN-Númer (0000)
    7. Nýtt PIN-Númer
    8. Staðfesta
    9. Exit
    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hverni tengi ég myndbandstæki við myndlykilinn?

    Hægt er að nálgast leiðbeiningar fyrir það með að smella hér
    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvernig endurraða ég stöðvalistanum?

    Veljið MENU á fjarstýringu og farið svo eftir skrefunum hér að neðan:

    1. Veljið Endurraða stöðvalista.
    2. PIN: 0000 (nema þú sért búinn að breyta því).
    3. Ýtt á rauða takkann (SUB-T)
    4. Veljið svo hreyfa með OK takkanum.
    5. Farið með örina á stöðina sem á að færa til og ýtið á OK (bæta við vallista)
    6. Ýtið á bláa takkann (hreyfa)
    7. Færið píluna upp á þá rás sem óskað er eftir og ýtið á OK.
    8. Ýtið svo á Exit, veljið OK við spurningu um hvort eigi að vista. Endurtakið til að raða fleiri stöðvum.
    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvernig læsi ég einstaka stöðvum?

    1. Veldu Menu.
    2. Veldu Endurraða stöðvalista og ýttu á Ok.
    3. Sláðu inn leyninúmer (0000)
    4. Ýttu á rauða takkann (fara í vallista)
    5. Veldu Læsa (með örvunum) og ýttu á Ok.
    6. Finndu þá stöð sem þú vilt læsa og smelltu á Ok, þá á sú stöð að fara yfir í hægri gluggann.
    7. Stöðin er læst, því næst geturu ýtt á Exit.
    8. Ýttu á Ok (viltu vista) Nú ætti viðkomandi stöð að vera læst og biður um PIN-númerið til að opna hana.

    Við mælum með því að þú breytir PIN númerinu þínu úr 0000 í einhverja aðra fjögurra stafa talnarunu. Það er gert svona:

    1. Menu
    2. Uppsetning og slærð inn gildandi PIN-Númer (0000).
    4. Breyta PIN-Númeri.
    5. Ýtir á hægri pílu.
    6. Slærð inn gildandi PIN-Númer (0000).
    7. Stimplar inn nýja PIN-Númerið.
    8. Staðfestir með Ok takkanum.
    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvernig næ ég stöðvunum inn á sjónvarpið mitt?

    Ef þú ert í vandræðum með að horfa á dagskrá í gegnum sjónvarpið sjálft (þ.e. þegar ekki er stillt á myndlykilinn) þarf að setja "loopu" á myndlykilinn.

    Það þarf að setja eina loftnetsnúru í loop götin aftan á myndlyklinum. Inn á "ant inn" (ekki þar sem myndin af loftnetinu er heldur við hlið þess) og inn á "loop through" sem er ská fyrir neðan.

    Þegar búið er að gera þetta þá áttu að ná stöðvum eins og Rúv á sjónvarpinu sjálfu. Þú þarft þá að skipta yfir á sjónvarpið til að horfa á þær.

    Hægt er að sjá mynd af loopu hér.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvernig tengi ég saman aðallykil, aukalykil og myndbandstæki?

    Hægt er að nálgast leiðbeiningar fyrir það með því að smella hér
    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvernig virkar fjarstýringin?

    Með því að smella hér sérðu ítarlega mynd sem sýnir hvernig fjarstýringin fyrir hefðbundinn lykil og háskerpumyndlykil virkar.

    Með því að smella hér sérðu fjarstýringuna fyrir upptökulykil.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvar fæ ég upptökumyndlykil?

    Upptökumyndlyklar eru uppseldir hjá Vodafone og verða ekki pantaðir inn aftur. Ef þú ert ekki nú þegar með slíkan lykil getum við því miður ekki boðið hann.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Helstu eiginlegar upptökulykilsins

    Hér má sjá lista yfir helstu eiginlega PVR lykilsins.

    • Þú getur hakað í það sem þú vilt taka upp fram í tímann og lykillinn sér um að taka það upp fyrir þig.
    • Upptökulykillinn getur tekið upp á tveimur stöðvum meðan horft er á þá þriðju.
    • Lykillinn er með 160GB harðan disk sem skiptist í 100GB fyrir upptöku og 60GB fyrir "Pay per view" sjónvarp.
    • Hægt að taka upp í allt að 50 klukkustundir.
    • Hægt að setja á pásu alveg upp í klukkustund.
    • Hægt að spóla tilbaka allt að klukkustund í tímann (Svo framarlega sem ekki er skipt um rás á þeim tíma)
    • Upptakan geymist í 6 mánuði
    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvað get ég tekið upp margar klukkustundir af efni?

    Harði diskurinn sem er í upptökulyklinum er 160 GB.

    100 GB sem hægt er að nýta til upptöku og 60 GB sem eru nýtt í "Pay per view" sjónvarp.

    Það eru allt að 50 klukkustundir af efni.
    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvernig virkar upptökulykill?

    Með Digital Ísland upptökumyndlyklinum getur þú tekið stjórnina á sjónvarpinu þínu. Þú getur sett á pásu þegar þú horfir á sjónvarpið og spólað fram og til baka í upptökunni.

    Horfðu á tvær stöðvar í einu með mynd-í-mynd (tveir móttakarar) og færðu myndina til á skjánum eins og þér hentar.

    Stilltu upptöku fram í tímann og horfðu á upptekið efni allt að þremur vikum síðar. Upptökulykillinn er einnig með yfirliti yfir dagskrána hverju sinni með svokallað EPG-Grid.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei

Hugbúnaður / Uppsetning

Myndlyklar

Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn