Hjálp - Reikningar
FAQ
Algengar spurningar
-
Hvað er útskriftargjald?
Útskriftargjald reikninga sem berast í pósti er 250 kr.
Hægt er að afþakka reikninga í pósti. Viðskiptavinir fá þá rafræna greiðsluseðla fyrir ógreidda reikninga, sem birtast í heimabanka og hægt að greiða þá handvirkt í heimabankanum. Útskriftargjald rafrænna greiðsluseðla er 60 kr. Ef greitt er með boðgreiðslum með greiðslukorti fellur útskriftargjald niður.
Valmöguleikar eru þrír:
1) Reikningur sendur með pósti: Útskriftargjald 250 kr. (Hvort sem greitt er í banka, heimabanka eða skuldfært af greiðslukorti).
2) Pappírsreikningur afþakkaður, reikningur birtur í heimabanka og greiddur þar: 60 kr.
3) Pappírsreikningur afþakkaður, skuldfært sjálfkrafa með boðgreiðslu með greiðslukorti: 0 kr.
Hægt er að breyta útskriftarfyrirkomulagi á netinu eða hafa samband við þjónustuver Vodafone.
-
Hvernig er innheimtuferli Vodafone?
Eindagi er 2. dagur í mánuði, t.d. 02.08.2012.
1 dagur frá eindaga:
SMS sent. Reikningur fallinn á gjalddaga.2 dagar frá eindaga:
Bréf sent frá banka með innheimtuviðvörun, kr. 650. Aðvörun um lokun eftir 30 daga.16 dagar frá eindaga:
Bréf sent. Milliinnheimtubréf nr. 1 (krafa komin til innheimtuþjónustu). Breytilegur kostnaður, frá 850 kr.24-28 dagar frá eindaga:
Hringt í viðskiptavin frá innheimtuþjónustu og hann hvattur til að greiða. 500 kr.30 dagar frá eindaga:
SMS sent. Verið að fara að loka á þjónustuna.31-34 dagar frá eindaga:
Lokun - t.d. 02.09.2012 - Lokað á útfarandi þjónustu/ekki hægt að hringja út.31-34 dagar frá eindaga:
Bréf sent. Lokaaðvörun. Ítrekun á milliinnheimtubréfi og tilkynnt um að krafa verði send í lögfræðiinnheimtu.60 dagar frá eindaga:
Þjónustu lokað. -
Hvernig er reikningstímabilinu skipt niður?
Reikningstímabil er frá fyrsta til síðasta dags hvers mánaðar. Eindagi (síðasti greiðsludagur án dráttarvaxta og kostnaðar) er 2. hvers mánaðar og gjalddagi 7 dögum fyrr. Reikningar eru sendir út í kringum 15. dag hvers mánaðar.
Dæmi: Reikningur er sendur út í kringum 15. ágúst 2010. Með honum er gjaldfært fyrir notkun og mánaðargjaldi 1.-31. júlí . Eindagi er þá 2. næsta mánaðar eða 2. september.
-
Hvenær er send út innheimtuviðvörun?
Innheimtuviðvörun frá banka er send út tveimur dögum eftir eindaga ef reikningur hefur ekki verið greiddur. Kostnaður við innheimtuviðvörun frá banka er 650 kr.
-
Má senda reikninga og sundurliðanir í tölvupósti?
Vodafone má senda reikninga og sundurliðanir til viðskiptavina með tölvupósti svo lengi sem tryggt er að viðtakandi tölvupósts sé sá sami og rétthafi viðkomandi reiknings. Við bendum notendum hins vegar eindregið á að nýta sér Mínar síður á Vodafone.is, þar sem hægt er að nálgast alla reikninga og sundurliðanir.
-
Rukkar Vodafone vanskilagjald vegna ógreiddra reikninga?
Nei.
Frá og með 1.maí 2009 hætti Vodafone að leggja vanskilagjald á viðskiptavini. Var þetta gert í samræmi við ný lög (sjá reglugerðina hér).
Kostnaður sem fellur á viðskiptavini vegna vanskila er innheimtur eins og hér segir:
- Bankinn sendir innheimtuviðvörun í pósti - 650 kr.
- Innheimtuþjónusta sendir annað innheimtubréf í pósti - breytilegur kostnaður, frá 850 kr.
- Símtal frá Intrum - 500 kr.
- Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga ef greitt er eftir eindaga
-
Hvað kostar að fá greiðslufrest?
Í hvert skipti sem veittur er greiðslufrestur leggjast 1.100 kr ofan á næsta reikning viðskiptavinar.
Gjaldið er til komið vegna mikils fjölda greiðslufresta sem óskað er eftir, en frestunum fylgir kostnaður sem fellur á Vodafone.
-
Rukkar Vodafone greiðslufrestsgjald um hver mánaðamót?
Ef við gerum greiðslusamkomulag við viðskiptavin þá rukkum við eingöngu fyrir greiðslufrest á fyrsta reikningi.
-
Er hægt að nota American Express í boðgreiðslur?
Já það er hægt að nota American Express kreditkort til að versla á boðgreiðslum hjá Vodafone.
-
Hvenær er lokað fyrir vegna vanskila?
Þegar tveir útsendir reikningar eru komnir yfir eindaga er lokað fyrir símtöl úr númerinu og ekki opnað fyrr en greitt hefur verið fyrir vanskil eða samið um greiðslu.
Ef viðskiptavinur greiðir reikning daginn sem lokun á sér stað er sett tímabundin opnun á þjónustur hans til að koma í veg fyrir lokun en bókun á greiðslu reikningsins á sér svo stað næsta dag.
-
Hvernig geta viðskiptavinir millifært á Vodafone frá útlöndum?
Ef viðskiptavinir okkar vilja millifæra erlendis frá þá geta þeir gert eftirfarandi:
Procedure to follow when transferring funds in EUR
Landsbanki Íslands
Laugavegi 77
101 Reykjavík
Iceland
Iban number IS41 0111 3871 0358 4709 0517 40
Swift (BIC) LAISISRE
Procedure to follow when transferring funds in USD
Landsbanki Íslands
Laugavegi 77
101 Reykjavík
Iceland
Iban number: IS63 0111 3810 0891 4709 051740
SWIFT (BIC) LAISISRE
Procedure to follow when transferring funds in GBP
Landsbanki Íslands
Laugavegi 77
101 Reykjavík
Iceland
Iban number: IS74 0111 3820 0308 4709 0517 40
SWIFT (BIC) LAISISRE
Procedure to follow when transferring funds in DKK
Landsbanki Íslands
Laugavegi 77
101 Reykjavík
Iceland
Iban number: IS42 0111 3840 0116 4709 0517 40
SWIFT (BIC) LAISISRE
-
Hvert beini ég athugasemdum við reikninginn?
Vodafone leggur mikla áherslu á að reikningar sem við sendum frá okkur séu í samræmi við þá þjónustu og notkun sem hefur verið á tilgreindu tímabili. Við svörum gjarnan spurningum þínum um reikninginn í næstu Vodafone verslun, í gjaldfrjálsu númeri þjónustuvers 1414 eða með tölvupósti á netfangið vodafone(at)vodafone.is.
Hafðu í huga að það getur verið gott að þú hafir reikninginn við höndina (eða uppi á skjánum) þegar þú hefur samband og að ef málið þarfnast frekari skoðunar getur tekið nokkra daga að fá endanleg svör við fyrirspurnum.
Reikningar
Allskonar
- Þú getur skoðað reikninginn þinn á Mínum síðum
- Sparnaðarráð Vodafone
- Pappírslaus reikningur


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?