Hjálp - Internet - ADSL
YouTube
Gagnleg myndbönd (5)
FAQ
Algengar spurningar
-
Ég er að flytja ADSL til Vodafone, hvernig er ferlið?
Fyrsta skrefið er að leggja inn pöntun hjá Vodafone, ferlið hefst þegar búnaður hefur verið sóttur/sendur og þegar það er búið að skrifa undir samning í verslun eða í gegnum tölvupóst.
Því næst getur það tekið um 5-10 virka daga fyrir tenginguna að verða virka.
Þegar flutning er lokið þá mun Vodafone segja upp þeim samning sem þú hafðir hjá fyrra fjarskiptafyrirtæki. Vodafone sér um uppsögnina til að sporna við netleysi á meðan flutningur á sér stað. Alltaf er mögulegt að þjónusturof eigi sér stað á meðan á flutningi stendur, þótt það standi jafnan ekki lengi yfir.Einnig er mælst til þess að viðskiptavinur hafi samband við fyrri þjónustuaðila til að tryggja að uppsögn sé örugglega gengin í gegn. Oft þarf einnig að skila inn endabúnaði (t.d. netbeini eða sjónvarpsmóttakara) til fyrri þjónustuaðila.
-
Get ég skipt út ADSL endabúnaði ef hann bilar?
Ef þú ert með beini á leigu þá geturðu fengið nýjan ADSL endabúnað ef sá gamli bilar. Þá þarf að skila bilaða búnaðinum í verslun Vodafone og fá um leið afhentan nýjan búnað. Mælt er með því að hafa samband fyrst við nethjálp í 1414.
-
Hvar er ADSL þjónustusvæði Vodafone?
Við höfum byggt upp öflugt ADSL kerfi sem tryggir háhraða gagnaflutninga. Viðskiptavinir okkar geta því treyst því að Internetið sé alltaf í gangi og umferðartafir í algjöru lágmarki.
Hér er hægt að sjá hvar Vodafone veitir ADSL þjónustu.
-
Hvað er innifalið í ADSL tengingu hjá Vodafone?
Þegar þú kaupir ADSL tengingu frá Vodafone færð þú 3 @internet.is netföng (með 1 GB pósthólfi fyrir hvert þeirra). Viðskiptavinir í Vodafone Gull fá 3 pósthólf með 2 GB geymsluplássi. Með netfangi frá Vodafone getur þú lesið póstinn þinn hvar sem er í heiminum gegnum vefpóstinn
Með hverri áskrift fylgir 2 GB pláss fyrir vefsvæði (4 GB í Vodafone Gull).
Einnig bjóðum við öfluga vírus- og ruslpóstvörn sem heldur pósthólfinu þínu ómenguðu af rusli og hættulegum pósti.
Þú hefur alltaf aðgang að þjónustuveri okkar í gjaldfrjálsu símanúmeri 1414, en net- og sjónvarpshjálp okkar er til taks frá morgni til kvölds að aðstoða þig við vandamál sem upp kunna að koma.
-
Hvernig mæli ég hraða á tengingunni minni?
Vodafone býður upp á tvö hraðapróf, annað er ætlað ADSL tengingum en hitt er fyrir ljósleiðaratengingar hjá Gagnaveitu Reykjavíkur.
Prófin virka eins. Hraðinn er mældur með því að taka tímann á því hversu lengi tölvan er að sækja/senda ákveðið magn af gögnum og út frá því er upp- og niðurhalshraði ákvarðaður.
Hlekkir:
Speed.c.is Hraðapróf Vodafone, aðeins fyrir ADSL tengingar Vodafone
Speedtest.gagnaveita.is Hraðapróf fyrir ljósleiðaratengingar hjá Gagnaveitu ReykjavíkurTil fróðleiks um Hraðamælingar
Við notum Kb fyrir kilobit, KB fyrir kilobyte, Mb fyrir megabit og MB í megabyte í hraðaprófunum.Þegar þú sérð B ritað með hástaf, þá þýðir það byte en með lágstaf þýðir það bit.
M (mega eða milljón) er einfaldlega 1000 sinnum stærra en K (kilo eða þúsundir) og 8b (bits) eru 1B (byte).Hefð hefur skapast fyrir því að nota bits (lítið b) í hraðaupplýsingum en byte (stórt B) í skráarstærðum. Þessar tvær ritunaraðferðir þýða að samanburður er flóknari en hann þyrfti ella að vera.
Mæling uppá 8,40 Mb/s (með litlu b-i) er það sama og 1,05 MB/s (með stóru B-i) sem aftur er það sama og um 1050 KB/s eða 8400 Kb/s. Þetta þýðir að það þarf rúmlega 8 Mb/s hraða til að hala 1 MB skrá á einni sekúndu.
Til gamans þá er niðurhalshraði hjá flest öllum internetþjónustuaðilum auglýstur í Mb/s. Þegar verið er að hala niður efni á tölvum, þá sýna tölvurnar oftast hraðann í MB/s (eða KB/s) og veldur þessi munur stundum ruglingi hjá notendum.
-
Hvernig tryggi ég öryggi á þráðlausu neti (WiFi)?
Við mælum með notkun á WPA dulkóðun á þráðlausum netum. Til að geta notað WPA þarf tölvan og beinirinn að styðja WPA dulkóðun. Sé stuðningur ekki til staðar þarf að notast við eldri dulkóðun sem nefnist WEP.
Hér fyrir neðan eru leiðbeiningar til að stilla á WPA dulkóðun fyrir þrjá af algengustu beinunum frá okkur:
- Vodafone Box (hvítur beinir merktur Vodafone)
- ZyXEL D1
- ZyXEL NBG
Athugið að ítarlegri útgáfa af leiðbeiningunum hér fyrir neðan ásamt skjámyndum má finna með því að smella á tenglana hér fyrir neðan.Vodafone Box
Byrjaðu á að fara inn á router með því að opna vafra og fara inn á slóðina http://192.168.1.1. Lengst til vinstri er smellt á Þráðlaust net (WiFi). Þá kemur upp síða með upplýsingum um þráðlaust net. Því næst er valið WPA2-PSK undir Öryggi og lykilorð til að tengjast þráðlausa netinu er sett í reitinn Lykilorð (Ascii). Það er best að nota tölustafi og bókstafi. T.d. kennitölu og nafn (012345AbcdEf6789). Næst þarf að breyta SSID nafni til að geta tengst nýju neti í tölvunni, t.d. Vodafone_2heimA.
Áður en þetta er vistað þarf að slökkva á SSID 2 með því að haka við Óvirkur.
Næst er smellt á >Í lagi takka sem finna má neðst á síðunni. ATH - Ef takkinn birtist ekki í Internet Explorer 9 þarf að prófa annan vafra, t.d. Google Chrome.
Ítarlegri útgáfa af leiðbeiningum fyrir Vodafone Box.
ZyXEL D1
Byrjaðu á að fara inn á routerinn með því að opna vafra og fara inn á slóðina http://192.168.1.1. Þá ætti að koma upp síða sem biður um lykilorð. Ef lykilorðinu hefur aldrei verið breytt þá á það að vera admin
Næst er farið í Network lengst til vinstri og smellt á Wireless LAN. Þá kemur upp síða með upplýsingum um þráðlausa netið.
Fyrir besta öryggið á þráðlausa netinu þá er valið WPA-PSK undir Security Mode. Því næst þarf að setja lykilorð í Pre-Shared Key. Það er best að nota tölustafi og bókstafi. T.d. kennitölu og nafn (012345AbcdEf6789). Áður en þetta er vistað þá þarf að breyta Network Name (SSID) til að tengjast nýju neti í tölvunni, t.d. Vodafone_2heimA.
Næst er smellt á Apply til að vista.
Ítarlegri útgáfa af leiðbeiningum fyrir ZyXEL D1.
ZyXEL NBG
Byrjaðu á að fara inn á routerinn með því að opna vafra og fara inn á slóðina http://192.168.1.1. Þá ætti að koma upp síða sem biður um lykilorð. Ef lykilorðinu hefur aldrei verið breytt þá á það að vera admin.
Smelltu á Advanced setup ef síða kemur upp þar sem velja þarf á milli Wizard, Basic og Advanced.
Næst er farið í Network lengst til vinstri og smellt á Wireless LAN. Þá kemur upp síða með upplýsingum um þráðlausa netið.
Fyrir besta öryggið á þráðlausa netinu þá er valið WPA-PSK undir Security Mode. Því næst þarf að setja lykilorð í Pre-Shared Key. Það er best að nota tölustafi og bókstafi. T.d. kennitölu og nafn (012345AbcdEf6789). Áður en þetta er vistað þá þarf að breyta Name (SSID) til að tengjast nýju neti í tölvunni, t.d. Vodafone_2heimA.
Næst er smellt á Apply til að vista.
Ítarlegri útgáfa af leiðbeiningum fyrir ZyXEL NBG.
-
Af hverju er hraðinn settur í 56 Kb/sek á erlendu niðurhali þegar hámarks gagnamagni er náð?
Þetta er í sjálfu sér aukin þjónusta fyrir viðskiptavinina og kemur í veg fyrir að óþarfa kostnaður leggist á þá.
Í stað þess að fá reikning með óvæntum kostnaði vegna umframgagnamagns, þá hægist á erlendu niðurhali og viðskiptavinurinn þarf sjálfur að ákveða hvort hann opni fyrir það aftur með stærri gagnamagnspakka eða bíði til næstu mánaðamóta.
-
Er send aðvörun um að það verði lokað fyrir erlent gagnamagn?
Já, ef þú ert t.d með 30 GB hámark þá muntu fá tölvupóst þegar þú ert búinn með 80% af inniföldu gagnamagni. Einnig færðu tölvupóst ef til þess kemur að við þurfum að loka fyrir erlent niðurhal. Erlend umferð fer svo í eðlilegt horf fyrsta hvers mánaðar.
Þó svo dæmið hér að ofan tali um 30 GB þá á þetta við um allar þjónustuleiðir.
„Lokunin“ sem um ræðir felst í því að hraðinn til útlanda er lækkaður í 56 Kb/sek.
-
Hvað er erlent niðurhal?
Erlent niðurhal er allt það efni sem þú skoðar eða sækir frá útlöndum.
Þetta á við um allar vefsíður sem þú skoðar og allt efni sem á þeim er, jafnframt á þetta við um gögn sem þú sækir með öðrum forritum, til dæmis svokölluðum skráardeiliforritum (Peer to peer) á borð við Kazaa, Bittorrent og DC++, en það er misjafnt eftir forritum hvort möguleiki er á að stýra hvort gögn eru sótt innanlands eða ekki. -
Hvað er Netvörn Vodafone?
Við bjóðum nú Netvörn Vodafone, en með henni getur þú stjórnað því hvernig hægt er að nota nettenginguna á heimilinu. Í boði eru nokkrir læsingarflokkar, þú einfaldlega velur það sem þú telur henta þér og tekur þannig stjórnina.
Nánari upplýsingar fyrir netvörnina má sjá hér. -
Hvaða hraða má ég búast við yfir ADSL?
Hraði ADSL-tenginga Vodafone er allt að 12 Mbit við bestu mögulegu aðstæður.
Ýmislegt getur haft áhrif á þennan hraða en helstu orsakir fyrir að hraði minnki geta verið gæði símalínu, lagnir og lengd frá næstu símstöð. Jafnframt getur móttaka sjónvarps gegnum ADSL dregið úr hraða nettengingarinnar í einhverjum tilvikum.
Ef þú ert ósátt/ur við þinn hraða, endilega hafðu samband við nethjálp í síma 1414.
-
Er stofngjald á venjulegu ADSL?
Já, það er stofngjald á ADSL-tengingu án heimasíma, sjá verðskrá. Stofngjaldið er hins vegar fellt niður við 6 mánaða samning.
-
Get ég skráð mig í Vodafone Gull ef ég er með ADSL án heimasíma?
Já. Það er hægt að skrá sig í Vodafone Gull með því að vera með þrjár þjónustuleiðir hjá Vodafone. Með því að vera t.d. með ADSL, GSM í áskrift eða frelsi með sjálfvirkri áfyllingu og Vodafone Sjónvarp er hægt að fá skráningu í Vodafone Gull.
-
Ég er að flytja, hvernig á ég að tilkynna það?
Þegar viðskiptavinur flytur þarf að tilkynna það til Vodafone með góðum fyrirvara svo flutningur á heimasíma, nettengingu og sjónvarpsþjónustu gangi sem best fyrir sig.
Hafa þarf samband í þjónustuver Vodafone í síma 1414. Hafa þarf eftirfarandi við hendina: nýja heimilisfangið, fyrra símanúmer á nýja heimilisfanginu, íbúðarnúmer ef kostur er, og dagsetningu flutnings.
Allt að tíu dagar geta liðið frá því að tilkynning berst til Vodafone og þar til flutningur getur átt sér stað, þannig að best er að panta með a.m.k. 10 daga fyrirvara. Flutningsgjald má sjá í verðskrá heimasíma.
-
Er Vodafone með verkstæði fyrir tölvubúnað?
Já. Vodafone er með verkstæði þar sem lagfærð eru vandamál við að nettengja tölvur yfir ADSL, ljósleiðara eða með 3G-búnaði.
Meðal verkefna verkstæðisins er að:
- Setja upp Vodafone-búnað
- Framkvæma almenna bilanagreiningu fyrir þráðlaust net og sambandsleysi
- Setja upp rekla vegna Vodafone-búnaðar
- Skoðun á endabúnaði eða netkortum sem eru í ábyrgð (2 ár) og keypt hjá Vodafone.
Starfsmenn verkstæðis sinna hins vegar ekki verkefnum á borð við að:
- Setja upp stýrikerfi, vírusvarnir eða önnur forrit
- Stilla aðra netbeina en Vodafone netbeina fyrir sjónvarp um ADSL
- Setja upp eða hreinsa tölvur
Nánari upplýsingar um verkstæðið fást hér. Athugið að greiða þarf sérstakt gjald ef ekki er byrjað á að hafa samband við tækniver Vodafone í síma 1414-2 eða með Netspjalli.
-
Get ég notað minn eigin beini?
Já.
Það þarf að setja beininn upp í samræmi við okkar kerfi og einnig úthlutum við notendanafni og lykilorði fyrir beininn. Mögulegt er að fá frekari aðstoð við uppsetningu beinisins með því að koma á verkstæði Vodafone en ekki er hægt að veita aðstoð við notkun annarra beina en okkar eigin í þjónustuveri Vodafone í síma 1414.
Ef þig vantar notendanafn og lykilorð fyrir þína tengingu hafðu samband við nethjálp í 1414.
-
Get ég sett ADSL í geymslu?
Nei,
Það er hinsvegar hægt að breyta þjónustuleið sinni í Internet um ADSL 0 sem er okkar ódýrasta nettenging með engu inniföldu gagnamagni. Sjá betur í verðskrá.
-
Hvernig virkar ADSL 0 (Internet 0)?
ADSL 0 þjónustuleiðin hefur ekkert innifalið erlent niðurhal og er borgað 1,2 kr. per megabæt (MB). Öll innlend umferð sem og erlent upphal eru innifalin.
Á þessari þjónustuleið er mest hægt að niðurhala 2000 MB erlendis frá á einum mánuði. Ef allt þetta niðurhal er notað eru greiddar 2.400 krónur fyrir erlent niðurhal (1,2 x 2000) auk mánaðargjaldsins skv. verðskrá. Eftir það er verulega hægt á erlendu niðurhali, en hægt er að kaupa auka niðurhal (10 eða 30 GB, sjá verðskrá) til að auka aftur hraðann.
Þessi þjónustuleið er hugsuð fyrir þá sem þurfa ekki mikið gagnamagn og vilja greiða eftir notkun. Þetta er einnig ódýrasta ADSL grunnþjónustan, og hentar því vel fyrir þá sem hafa áhuga á ADSL sjónvarpi en þurfa netið lítið eða ekkert. Einnig er þessi þjónustuleið sniðugt fyrir þá sem nota netið lítið sem ekkert á sumrin, í staðinn fyrir að segja upp netinu og missa netsamband.
-
Ég er að lenda í þvi að netið er að detta út, hvað gæti verið að?
Það geta margir hlutir komið til greina þegar netið er að detta út.
Með því að smella hér geturðu séð yfirlit yfir helstu orsakir og lausnir. -
Ég er með hægt net, hvað gæti verið að?
Það geta margir hlutir komið til greina ef netið er hægvirkt.
Með því að smella hér geturðu séð helstu orsakir og lausnir. -
Ég get ekki sent póst, hvað gæti verið að?
Það kemur ýmislegt til greina, t.d vanstillt póstforrit, vírusvörn eða eldveggur sem gætu verið að loka á póstforritið.
Með því að smella hér geturðu séð helstu orsakir og lausnir. -
Ég get ekki tengst heimasvæðinu mínu, hvað gæti verið að?
Líklegasta örsökin er það sé innsláttarvilla einhvers staðar, ef leiðbeiningarnar leysa ekki vandamálið þá er hægt að hafa samband við nethjálp í 1414.
Ef þú tengist gegnum skráarskiptaforrit (FTP) þá geturðu smellt hér til að sjá helstu orsakir og lausnir.
Ef þú tengist beint inn á heimasvæði gegnum vefmiðmót þá geturðu smellt hér fyrir leiðbeiningar.
-
Hvernig tryggi ég öryggi á þráðlausu neti (WiFi)?
Við mælum með notkun á WPA dulkóðun á þráðlausum netum. Til að geta notað WPA þarf tölvan og beinirinn að styðja WPA dulkóðun. Sé stuðningur ekki til staðar þarf að notast við eldri dulkóðun sem nefnist WEP.
Hér fyrir neðan eru leiðbeiningar til að stilla á WPA dulkóðun fyrir þrjá af algengustu beinunum frá okkur:
- Vodafone Box (hvítur beinir merktur Vodafone)
- ZyXEL D1
- ZyXEL NBG
Athugið að ítarlegri útgáfa af leiðbeiningunum hér fyrir neðan ásamt skjámyndum má finna með því að smella á tenglana hér fyrir neðan.Vodafone Box
Byrjaðu á að fara inn á router með því að opna vafra og fara inn á slóðina http://192.168.1.1. Lengst til vinstri er smellt á Þráðlaust net (WiFi). Þá kemur upp síða með upplýsingum um þráðlaust net. Því næst er valið WPA2-PSK undir Öryggi og lykilorð til að tengjast þráðlausa netinu er sett í reitinn Lykilorð (Ascii). Það er best að nota tölustafi og bókstafi. T.d. kennitölu og nafn (012345AbcdEf6789). Næst þarf að breyta SSID nafni til að geta tengst nýju neti í tölvunni, t.d. Vodafone_2heimA.
Áður en þetta er vistað þarf að slökkva á SSID 2 með því að haka við Óvirkur.
Næst er smellt á >Í lagi takka sem finna má neðst á síðunni. ATH - Ef takkinn birtist ekki í Internet Explorer 9 þarf að prófa annan vafra, t.d. Google Chrome.
Ítarlegri útgáfa af leiðbeiningum fyrir Vodafone Box.
ZyXEL D1
Byrjaðu á að fara inn á routerinn með því að opna vafra og fara inn á slóðina http://192.168.1.1. Þá ætti að koma upp síða sem biður um lykilorð. Ef lykilorðinu hefur aldrei verið breytt þá á það að vera admin
Næst er farið í Network lengst til vinstri og smellt á Wireless LAN. Þá kemur upp síða með upplýsingum um þráðlausa netið.
Fyrir besta öryggið á þráðlausa netinu þá er valið WPA-PSK undir Security Mode. Því næst þarf að setja lykilorð í Pre-Shared Key. Það er best að nota tölustafi og bókstafi. T.d. kennitölu og nafn (012345AbcdEf6789). Áður en þetta er vistað þá þarf að breyta Network Name (SSID) til að tengjast nýju neti í tölvunni, t.d. Vodafone_2heimA.
Næst er smellt á Apply til að vista.
Ítarlegri útgáfa af leiðbeiningum fyrir ZyXEL D1.
ZyXEL NBG
Byrjaðu á að fara inn á routerinn með því að opna vafra og fara inn á slóðina http://192.168.1.1. Þá ætti að koma upp síða sem biður um lykilorð. Ef lykilorðinu hefur aldrei verið breytt þá á það að vera admin.
Smelltu á Advanced setup ef síða kemur upp þar sem velja þarf á milli Wizard, Basic og Advanced.
Næst er farið í Network lengst til vinstri og smellt á Wireless LAN. Þá kemur upp síða með upplýsingum um þráðlausa netið.
Fyrir besta öryggið á þráðlausa netinu þá er valið WPA-PSK undir Security Mode. Því næst þarf að setja lykilorð í Pre-Shared Key. Það er best að nota tölustafi og bókstafi. T.d. kennitölu og nafn (012345AbcdEf6789). Áður en þetta er vistað þá þarf að breyta Name (SSID) til að tengjast nýju neti í tölvunni, t.d. Vodafone_2heimA.
Næst er smellt á Apply til að vista.
Ítarlegri útgáfa af leiðbeiningum fyrir ZyXEL NBG.
-
Hvernig kveiki ég á þráðlausa netinu í tölvunni minni?
Mismunandi er eftir tegundum fartölva hvernig kveikt og slökkt er á þráðlausa netinu í þeim. Hér er listi yfir nokkrar fartölvutegundir og hvaða aðferðir eru notaðar á þeim. Listinn er ekki tæmandi, en ef tölvan þín er ekki í listanum er a.m.k. gæti hann þó gefið vísbendingar um hvernig kveikt og slökkt sé á þráðlausa netinu í þinni tölvu.
- Acer Extensa 2000/2500 Series --- Takki lengst til hægri fyrir ofan lyklaborðið
- Acer Travelmate C Series ---Takki lengst til vinstri, svo þarftu að velja WLAN
- Acer Aspire 1000 Series --Fyrir ofan lyklaborðið
- Acer Aspire 1640Z ---- Fyrir ofan lyklaborðið
- Acer Aspire 1690 ---- Fyrir ofan lyklaborðið
- Acer Aspire 2000 Series ---- Framan á tölvunni
- Acer Aspire 2012 ---- Fyrir ofan lyklaborðið
- Acer Ferrari 3000 ---- Takki framan á tölvunni
- Acer Ferrari 3020 ---- Takki framan á tölvunni
- Acer Ferrari 3400 ---- Takki framan á tölvunni
- Acer Ferrari 4000 ---- Takki framan á tölvunni
- Advent 7086 ---- Takki við hliðina á PWR takka
- Advent 7096 ---- Takki við hliðina á PWR takka
- Advent 7100 ---- Fn / F2
- Advent 7104 ---- Fn / F2
- Advent 7201 ---- Takki efst til hægri og svo smella á Fn / F2
- Advent 8117 ---- Slide switch framan á tölvunni
- Asus ---- Fn / F2 (sumar týpur eru með switch)
- BenQ Joybook 5000u-d09 ---- Fn / F12
- Compaq Armada Services ---- Enginn þráðlaus búnaður til staðar
- Compact presario ---- Takki aftan á tölvu
- Compact presario M2000 ---- Takki með mynd af loftneti fyrir ofan lyklaborðið
- Dell Inspiron series ---- Fn / F2
- Dell Inspiron 500M ---- Fn / F2
- Dell Inspiron 600M ---- Fn / F2
- Dell Inspiron 1510 ---- Fn / F2
- Dell Inspiron 1520 ---- Slide takki á vinstri hlið, á að vera staðsettur við miðju.
- Dell Inspiron 5100 ---- Enginn þráðlaus búnaður til staðar
- Dell Inspiron 6000 ---- Fn / F2
- Dell Inspiron 8600 ---- Fn / F2
- Dell Inspiron 9300 ---- Fn / F2
- Dell Latitude D400 ---- Fn / F2
- Dell Latitude D500 ---- Fn / F2
- Dell Latitude D600 ---- Fn / F2
- Dell Latitude D610 ---- Fn / F2
- Dell Latitude D620 ---- Slider á vinstri hlið við hliðinna á headphone jacknum
- Dell Latitude D800 ---- Fn / F2
- Dell Latitude X300 ---- Fn / F2
- Dell Vostro 1500 ---- Stór takki á vinstri hlið tölvu
- Dell XPS M1330 ---- Slide takki á hægri hlið
- e-machines M series ---- Fn / F2
- E-System 3115 ---- Slide switch framan á tölvu FN / F5 virkar einnig.
- Flybook v331 ---- Fn / F2
- Fujitsu Siemens Amilo A Series ---- Takki hægra megin fyrir ofan lyklaborðið
- Fujitsu Siemens Amilo D Series ---- Takki hægra megin fyrir ofan lyklaborðið
- Fujitsu Siemens Amilo K Series ---- Enginn þráðlaus búnaður til staðar
- Fujitsu Siemens Amilo L/EL Series ---- Fn / F1 til að kveikja/slökkva
- Fujitsu Siemens Amilo La Series ---- Fn / F2 til að kveikja/slökkva
- Fujitsu Siemens Amilo Li Series ---- "Easy launch" takki (einn af þremur) fyrir ofan lyklaborðið
- Gateway Laptop ---- Switch á hlið og svo smella á Fn / F2
- HP nc4000 ---- Takki fyrir ofan lyklaborðið
- HP nc4010 ---- Takki fyrir ofan lyklaborðið
- HP nc4220 ---- Takki á vinstri hlið við hliðina á USB porti
- HP nc6000 ---- Takki fyrir ofan lyklaborðið
- HP nc6220 ---- Takki fyrir ofan lyklaborðið
- HP nx9010 ---- Takki framan á tölvu
- HP omnibook 6200 ---- Takki til vinstri
- IBM T43 ---- Fn / F5
- IBM X32 ---- Fn / F5
- Lenevo ---- Takki framan á tölvu
- Medion ---- Fn / F1
- Packard Bell EasyNote E2 ---- Fn / F1
- packard bell: easy-note MV46/008 ---- Fn / F1 til að kveikja/slökkva
- packard bell MZ36-U024 ---- Fn / F2 til að kveikja
- Sharp Laptops ---- Fn / F2 til að kveikja
- Sony Viao ----- Takki framan á eða hægra megin / Gæti líka verið switch
- Sony VAIO VGN-AX570G ---- Vinstra megin fyrir ofan lyklaborðið
- Targa Companion 811 ---- Fn / F2
- Toshiba Eqium Series ---- Slide switch framan á tölvu
- Toshiba Libretto Series ---- Slide switch á vinstri hlið tölvu
- Toshiba M1 ---- Switch á vinstri hlið tölvu
- Toshiba M2 ---- Switch á vinstri hlið tölvu
- Toshiba Portege Series ---- Switch á vinstri hlið tölvu
- Toshiba Qosmio Series ---- Switch á vinstri hlið tölvu
- Toshiba Quantium Series ---- Switch á vinstri hlið tölvu
- Toshiba R100 ---- Switch á hægri hlið tölvu
- Toshiba Satego Series ----- Slide Switch á hægri hlið tölvu
- Toshiba Satelitte ---- Framan á tölvu og svo smella á Fn / F8
- Toshiba Satellite Pro ---- Á hlið eða framan á tölvu
- Toshiba Tecra 2100 ---- Switch á vinstri hlið tölvu
- Toshiba TE2000 ---- Switch á vinstri hlið tölvu
-
Hvernig nota ég heimasvæðið mitt?
Ef þú ert með ADSL-áskrift hjá Vodafone þá færðu 2 GB heimasvæði með.
Til að nota það þá geturu skráð þig inn í gegnum gamla vefpóstinn hér og farið í vefsvæði.
Einnig er hægt að nota skráarskiptaforrit (FTP).
Þá notaru eftirfarandi stillingar:
Host: Internet.is
Username: þittnetfang@internet.is
Password: Sama lykilorð og þú notar fyrir netfangið.
Hægt er að fá leiðbeiningar fyrir FTP forrit hér
Hægt er að fá leiðbeiningar fyrir heimasvæðið gegnum gamla vefpóstinn hér -
Hvernig opna ég fyrir port / nat?
Hægt er að nálgast leiðbeiningar um uppsetningu beina hægra megin á þessari síðu.
Ef þinn beinir er ekki þar geturðu nálgast leiðbeiningar um aðra beina hér. -
Hvernig set ég upp minn eigin beini?
Þú þarft að byrja á því að fá notendaupplýsingar frá okkur, notendanafnið og lykilorðið hjá nethjálp í 1414.
Kjörstillingar eru,
Encapsulation: PPPoE
Multiplexing: LLC
VPI: 0
VCI: 33
Ef þú ert utan heimasvæðis Vodafone þá breytirðu:
VPI: 8
VCI: 48
Einnig þarftu að láta notendanafnið enda á @internet.is.
Helstu leiðbeiningar um uppsetningu beina eru hægra megin á þessari síðu. -
Hvernig tengist ég þráðlaust?
Hægt er að nálgast leiðbeiningar hér.
-
Get ég leigt efni gegnum myndlykil?
Vodafone býður upp á að leigja efni með með ADSL- og ljósleiðaramyndlyklum.
Á leigunni eru kvikmyndir, barnaefni, fréttir ofl. Bæði er boðið upp á nýtt og gamalt efni.
Einnig er boðið upp á ýmislegt frítt efni.
Hægt er að sjá nánari upplýsingar hér.
-
Hvar er IPTV Vodafone í boði?
Hægt er að sjá hvar ADSL sjónvarp Vodafone býðst með því að smella hér.
Á höfuðborgarsvæðinu, Akranesi, Akureyri, Hvolsvelli, Hellu og Sauðárkróki er þjónustan jafnframt í boði um ljósleiðaratengingar.
Hér má lesa meira um ADSL sjónvarp.
-
Hvaða sjónvarpsstöðvum næ ég?
-
Hvaða stöðvar eru ókeypis?
Stöðvar í opinni dagskrá eru: RÚV, RÚV+, Omega, Nova TV, N4, ÍNN, CCTV-9 og Alþingi.
-
Ég er með myndlykil gegnum netið, virkar hann hvar sem er?
Nei.
Allir myndlyklar sem taka við mynd gegnum ADSL eða ljósleiðara eru fastir við heimilisfang.
-
Er hægt að vera með aukamyndlykil yfir ADSL?
Það er ekki hægt að vera með aukamyndlykil á ADSL eins og mál standa í dag.
Yfir ljósleiðara er hægt að vera með allt að þrjá myndlykla.
-
Hvar fæ ég meiri upplýsingar um fjarstýringuna?
Við höfum sett upp sérstaka síðu þar sem hægt er að sækja upplýsingar og leiðbeiningar fyrir hinar ýmsu fjarstýringar okkar.
-
Þarf ég að tengja myndlykilinn við beininn?
Myndlykillinn þarf að tengja með netsnúru í tengi 4 á beininum, merkt TV.
Ef ekki er hægt að hafa snúru milli beinis og myndlykils er hægt að kaupa Powerline búnað, sem leiðir netstrauminn gegnum rafmagn. Sá búnaður sem við seljum ber allt að 200 Mbit.
Dæmi um Powerline tengingu.
-
Er hægt að læsa Leigunni á IPTV?
Það er hægt að læsa leigunni með því að velja "Allt læst" í stillingum, þá er öllu efni á Leigunni læst og þarf að opna fyrir það aftur með PIN númeri.
-
Eru útvarpsrásir á IPTV Vodafone?
Eftirfarandi útvarpsrásir fylgja í sjónvarpsþjónustu Vodafone gegnum ADSL:
121 Bylgjan
122 FM957
124 Rondo
125 LéttBylgjan
126 Latibær
127 BBC World Service
128 X-ið
130 Gullbylgjan
131 Rás 1
132 Rás 2
-
Get ég fengið HD-sjónvarp yfir ADSL?
Nei, ADSL-tengingin getur ekki flutt sjónvarpsefni í HD-gæðum, en hægt er að fá HD-sjónvarp yfir ljósleiðara.
-
Hvaða tengimöguleikar eru fyrir sjónvarp um ADSL og ljósleiðara?
Amino 110 (gráa) myndlykilinn er hægt að tengja af mini-DIN útgangi myndlykils í SCART tengi sjónvarpstækis, S-Video eða RCA (composite merki). Fyrir SCART tengið er hægt að velja RGB, S-Video eða composite merki. Tegund merkis fyrir SCART er valið í stillingavalmynd (undir Á döfinni - Stillingar - Myndlykill).
Amino 140 (svarta) myndlykilinn er hægt að tengja með sama hætti, en að auki HDMI snúru.
Báða myndlyklana er einnig hægt að tengja við sjónvarp með loftnetsmerki (RF-signal), hafa skal í huga að slík tenging gefur lökustu myndina.
Beinar
| Beinir | Leiðbeiningar | ||
|---|---|---|---|
| Bewan Vodafone Box (VOX) | Uppsetning | Opna port | Öryggi |
| ZyXEL P-660HW-D1 | Uppsetning | Opna port | Öryggi |
| ZyXEL P-660HW-61 | Uppsetning | Opna port | |
| Linksys WAG54G | Uppsetning | ||
| Netopia Cayman 3341 | Uppsetning | Opna port | |
| Netopia Cayman 3347 | Uppsetning | Opna port | |
| ZyXEL P NBG420N | Opna port | Öryggi | |
| Tengja harðan disk við VOX | Uppsetning | ||
| Tengja prentara við VOX | Uppsetning |


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?