Um fyrirtækjasvið
Við einföldum hlutina með hagkvæmum og öruggum lausnum sem eru sérsniðnar fyrir hvert fyrirtæki. Með réttri nálgun og markvissri ráðgjöf fyrirtækjasviðs Vodafone gætir þú mögulega lækkað fjarskiptakostnað þíns fyrirtækis verulega. Við hvetjum þig til að hafa samband við fyrirtækjaþjónustu Vodafone í síma 599-9500 eða senda okkur póst á firma@vodafone.is og saman finnum við lausn sem hentar þínu fyrirtæki.
Hafðu samband
Fyrirtækja kvót
Þetta hafa viðskiptavinir okkar að segja
Garðabær
„Sveitarfélagið Garðabær hefur verið í viðskiptum við Vodafone í mörg ár. Við erum mjög ánægð með þjónustuna sem er persónuleg og einn tengiliður hjá fyrirtækinu sér um öll okkar mál. Hann eltist við lausa enda fyrir okkar hönd og við þurfum því ekki að hafa samband við ólíka aðila innan Vodafone sem sinna ólíkum verkefnum. Í þessu felst mikið hagræði fyrir okkur.“
Vala Dröfn Hauksdóttir, deildarstjóri tölvudeildar. Í viðskiptum við Vodafone frá 2005
Hafnarfjörður
„Samskipti okkar við Vodafone ná yfir áratug og hafa alla tíð verið með miklum ágætum. Viðskiptastjórarnir sem hafa starfað fyrir okkur hafa í öllum tilvikum verið þjónustulundaðir og alltaf leyst vel úr þeim málum sem upp hafa komið. Boðleiðir eru einfaldar og samstarf tæknifólks á okkar vegum og tæknimanna Vodafone hefur verið frábært. Slíkt samstarf er ein af forsendunum fyrir góðri fjarskiptaþjónustu.“
Guðmundur Ragnar Ólafsson, innkaupastjóri. Í viðskiptum við Vodafone frá 2001
ÍAV
„Traust fjarskiptasamband um allt land, jafnt á hálendi og láglendi, er ÍAV mjög mikilvægt. Við treystum Vodafone til að tryggja öruggt samband en auk þess hefur samband okkar við starfsfólk Vodafone verið frábært - bæði viðskiptastjóra okkar hjá Vodafone og annað starfsfólk, sem fær okkar bestu meðmæli.“
Þóroddur Ottesen, fjármálastjóri. Í viðskiptum við Vodafone frá 2002
Fiskistofa
„Öruggt og gott netsamband er afar mikilvægt fyrir Fiskistofu. Allar löndunarhafnir landsins eru tengdar gagnagrunni okkar. Uppitími netkerfisins skiptir okkur því miklu máli. Okkar reynsla af MetroNeti Vodafone er mjög góð og við erum ánægð með viðskiptastjórann okkar, sem sýnir okkar málum mikinn áhuga og skilning.“
Steingrímur Guðjónsson, forstöðumaður tölvusviðs. Í viðskiptum við Vodafone frá 2009


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?