Hjálp - Sjónvarp - IPTV
FAQ
Algengar spurningar
-
Hvar er IPTV Vodafone í boði?
Hægt er að sjá hvar ADSL sjónvarp Vodafone býðst með því að smella hér.
Á höfuðborgarsvæðinu, Akranesi, Akureyri, Hvolsvelli, Hellu og Sauðárkróki er þjónustan jafnframt í boði um ljósleiðaratengingar.
Hér má lesa meira um ADSL sjónvarp.
-
Hvaða sjónvarpsstöðvum næ ég?
-
Hvaða stöðvar eru ókeypis?
Stöðvar í opinni dagskrá eru: RÚV, RÚV+, Omega, Nova TV, N4, ÍNN, CCTV-9 og Alþingi.
-
Ég er með myndlykil gegnum netið, virkar hann hvar sem er?
Nei.
Allir myndlyklar sem taka við mynd gegnum ADSL eða ljósleiðara eru fastir við heimilisfang.
-
Get ég leigt efni gegnum myndlykil?
Vodafone býður upp á að leigja efni með með ADSL- og ljósleiðaramyndlyklum.
Á leigunni eru kvikmyndir, barnaefni, fréttir ofl. Bæði er boðið upp á nýtt og gamalt efni.
Einnig er boðið upp á ýmislegt frítt efni.
Hægt er að sjá nánari upplýsingar hér.
-
Hvar fæ ég meiri upplýsingar um fjarstýringuna?
Við höfum sett upp sérstaka síðu þar sem hægt er að sækja upplýsingar og leiðbeiningar fyrir hinar ýmsu fjarstýringar okkar.
-
Hvað get ég verið með marga myndlykla?
Gegnum ADSL er einungis hægt að vera með einn myndlykil, hinsvegar gegnum ljósleiðara er hægt að vera með allt að þrjá.
Alla ljósleiðaralykla þarf að tengja við ljósleiðaraboxið. Verðskrá grunnáskriftar og aukalykla má finna hér.
-
Eru útvarpsrásir á IPTV Vodafone?
Eftirfarandi útvarpsrásir fylgja í sjónvarpsþjónustu Vodafone gegnum ADSL:
121 Bylgjan
122 FM957
124 Rondo
125 LéttBylgjan
126 Latibær
127 BBC World Service
128 X-ið
130 Gullbylgjan
131 Rás 1
132 Rás 2
-
Hvað er Vodafone Sjónvarp?
Vodafone Sjónvarp er stafrænt sjónvarpsdreifikerfi Vodafone á Íslandi. Vodafone Sjónvarp má fá annars vegar með UHF- eða örbylgjusendingum og kallast þá Vodafone Sjónvarp - Digital (einnig kallað Digital Ísland).
Vodafone Sjónvarp má einnig fá gegnum ADSL- eða ljósleiðaratengingar en þá fæst jafnframt aðgangur að Leigunni, þar sem hægt er að panta sjónvarpsefni af ýmsu tagi. Nánari upplýsingar um Vodafone Sjónvarp og hvaða þjónustuleiðir standa þér til boða má finna hér.
-
Hvaða tengimöguleikar eru fyrir sjónvarp um ADSL og ljósleiðara?
Amino 110 (gráa) myndlykilinn er hægt að tengja af mini-DIN útgangi myndlykils í SCART tengi sjónvarpstækis, S-Video eða RCA (composite merki). Fyrir SCART tengið er hægt að velja RGB, S-Video eða composite merki. Tegund merkis fyrir SCART er valið í stillingavalmynd (undir Á döfinni - Stillingar - Myndlykill).
Amino 140 (svarta) myndlykilinn er hægt að tengja með sama hætti, en að auki HDMI snúru.
Báða myndlyklana er einnig hægt að tengja við sjónvarp með loftnetsmerki (RF-signal), hafa skal í huga að slík tenging gefur lökustu myndina.
-
Hvernig get ég horft á háskerpu útsendingar?
Hægt er að horfa á HD-útsendingar í gegnum örbylgjuloftnet, CAM-kort og ljósleiðara. Til að taka á móti HD-útsendingu um örbylgjuloftnet þarf sérstakan HD-lykil, en þeir eru uppseldir hjá Vodafone og verða ekki pantaðir inn aftur. Ef þú átt ekki slíkan lykil nú þegar getur þú einungis fengið HD-útsendingu í gegnum ljósleiðara eða CAM-kort.
Þær stöðvar sem senda út í háskerpu eru National Geographic HD og Stöð2Sport HD. Sjá nánar um HD-útsendingar hér.
-
Er hægt að læsa Leigunni á IPTV?
Það er hægt að læsa leigunni með því að velja "Allt læst" í stillingum, þá er öllu efni á Leigunni læst og þarf að opna fyrir það aftur með PIN númeri.
-
Get ég stjórnað notkun minni á Leigunni?
Já, allir viðskiptavinir Vodafone eru með 50.000 kr. þak á Leigunni. Þú getur breytt þakinu með því að hringja í 1414.
































Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?