Hjálp - Internet - Ljósleiðari
YouTube
Gagnleg myndbönd (5)
FAQ
Algengar spurningar
-
Er stofnkostnaður á ljósleiðara?
Gagnaveitan setur upp ljósleiðaraboxið en enginn kostnaður er við það. Hins vegar þarf að gera 6 mánaða samning við Gagnaveituna til að hægt sé að fá þjónustu um ljósleiðara.
Viðskiptavinir í Vodafone Gull fá fyrstu uppsetningu ljósleiðara án endurgjalds frá tæknimanni Vodafone.
-
Fæ ég reikning frá Gagnaveitunni?
Já þú færð sér reikning frá Gagnaveitunni
Til að fá þjónustu um ljósleiðara þarf að greiða gagnaveitu mánaðarlegt aðgangsgjald. Á höfuðborgarsvæðinu er þetta gjald greitt til Gagnaveitunnar. Nánari upplýsingar um verð má finna á verðskrá ljósleiðarans.
Hafa ber í huga við verðsamanburð að ljósleiðaratengingar eru ódýrari en hefðbundnar ADSL tengingar.
-
Get ég tengst ljósleiðara?
Gagnaveita Reykjavíkur sér um að ljósleiðaravæða heimili á höfuðborgarsvæðinu.
Á Akureyri sér Tengir um uppsetningu á netaðgangi og öðrum búnaði.
Í Skagafirði sér Tengill um uppsetningu á netaðgangi en Pardus Raf sér um annan búnað.
Til þess að sjá hvort heimili þitt geti tengst ljósleiðara geturðu flett því upp hér.
-
Hvaða þjónustu er hægt að fá um ljósleiðara?
Vodafone býður nettengingu, síma- og sjónvarpsþjónustu um ljósleiðara.
Ljósleiðaratenging er hraðvirkasta og öruggasta tengingin sem völ er á og öll framangreind þjónusta er veitt yfir eina og sömu ljósleiðaratenginguna. Yfir ljósleiðara má fá háskerpu-sjónvarpsútsendingu og hægt er að hafa allt að þrjá myndlykla tengda gegnum ljósleiðara á hverju heimili.
-
Hvernig mæli ég hraða á tengingunni minni?
Vodafone býður upp á tvö hraðapróf, annað er ætlað ADSL tengingum en hitt er fyrir ljósleiðaratengingar hjá Gagnaveitu Reykjavíkur.
Prófin virka eins. Hraðinn er mældur með því að taka tímann á því hversu lengi tölvan er að sækja/senda ákveðið magn af gögnum og út frá því er upp- og niðurhalshraði ákvarðaður.
Hlekkir:
Speed.c.is Hraðapróf Vodafone, aðeins fyrir ADSL tengingar Vodafone
Speedtest.gagnaveita.is Hraðapróf fyrir ljósleiðaratengingar hjá Gagnaveitu ReykjavíkurTil fróðleiks um Hraðamælingar
Við notum Kb fyrir kilobit, KB fyrir kilobyte, Mb fyrir megabit og MB í megabyte í hraðaprófunum.Þegar þú sérð B ritað með hástaf, þá þýðir það byte en með lágstaf þýðir það bit.
M (mega eða milljón) er einfaldlega 1000 sinnum stærra en K (kilo eða þúsundir) og 8b (bits) eru 1B (byte).Hefð hefur skapast fyrir því að nota bits (lítið b) í hraðaupplýsingum en byte (stórt B) í skráarstærðum. Þessar tvær ritunaraðferðir þýða að samanburður er flóknari en hann þyrfti ella að vera.
Mæling uppá 8,40 Mb/s (með litlu b-i) er það sama og 1,05 MB/s (með stóru B-i) sem aftur er það sama og um 1050 KB/s eða 8400 Kb/s. Þetta þýðir að það þarf rúmlega 8 Mb/s hraða til að hala 1 MB skrá á einni sekúndu.
Til gamans þá er niðurhalshraði hjá flest öllum internetþjónustuaðilum auglýstur í Mb/s. Þegar verið er að hala niður efni á tölvum, þá sýna tölvurnar oftast hraðann í MB/s (eða KB/s) og veldur þessi munur stundum ruglingi hjá notendum.
-
Hvernig tryggi ég öryggi á þráðlausu neti (WiFi)?
Við mælum með notkun á WPA dulkóðun á þráðlausum netum. Til að geta notað WPA þarf tölvan og beinirinn að styðja WPA dulkóðun. Sé stuðningur ekki til staðar þarf að notast við eldri dulkóðun sem nefnist WEP.
Hér fyrir neðan eru leiðbeiningar til að stilla á WPA dulkóðun fyrir þrjá af algengustu beinunum frá okkur:
- Vodafone Box (hvítur beinir merktur Vodafone)
- ZyXEL D1
- ZyXEL NBG
Athugið að ítarlegri útgáfa af leiðbeiningunum hér fyrir neðan ásamt skjámyndum má finna með því að smella á tenglana hér fyrir neðan.Vodafone Box
Byrjaðu á að fara inn á router með því að opna vafra og fara inn á slóðina http://192.168.1.1. Lengst til vinstri er smellt á Þráðlaust net (WiFi). Þá kemur upp síða með upplýsingum um þráðlaust net. Því næst er valið WPA2-PSK undir Öryggi og lykilorð til að tengjast þráðlausa netinu er sett í reitinn Lykilorð (Ascii). Það er best að nota tölustafi og bókstafi. T.d. kennitölu og nafn (012345AbcdEf6789). Næst þarf að breyta SSID nafni til að geta tengst nýju neti í tölvunni, t.d. Vodafone_2heimA.
Áður en þetta er vistað þarf að slökkva á SSID 2 með því að haka við Óvirkur.
Næst er smellt á >Í lagi takka sem finna má neðst á síðunni. ATH - Ef takkinn birtist ekki í Internet Explorer 9 þarf að prófa annan vafra, t.d. Google Chrome.
Ítarlegri útgáfa af leiðbeiningum fyrir Vodafone Box.
ZyXEL D1
Byrjaðu á að fara inn á routerinn með því að opna vafra og fara inn á slóðina http://192.168.1.1. Þá ætti að koma upp síða sem biður um lykilorð. Ef lykilorðinu hefur aldrei verið breytt þá á það að vera admin
Næst er farið í Network lengst til vinstri og smellt á Wireless LAN. Þá kemur upp síða með upplýsingum um þráðlausa netið.
Fyrir besta öryggið á þráðlausa netinu þá er valið WPA-PSK undir Security Mode. Því næst þarf að setja lykilorð í Pre-Shared Key. Það er best að nota tölustafi og bókstafi. T.d. kennitölu og nafn (012345AbcdEf6789). Áður en þetta er vistað þá þarf að breyta Network Name (SSID) til að tengjast nýju neti í tölvunni, t.d. Vodafone_2heimA.
Næst er smellt á Apply til að vista.
Ítarlegri útgáfa af leiðbeiningum fyrir ZyXEL D1.
ZyXEL NBG
Byrjaðu á að fara inn á routerinn með því að opna vafra og fara inn á slóðina http://192.168.1.1. Þá ætti að koma upp síða sem biður um lykilorð. Ef lykilorðinu hefur aldrei verið breytt þá á það að vera admin.
Smelltu á Advanced setup ef síða kemur upp þar sem velja þarf á milli Wizard, Basic og Advanced.
Næst er farið í Network lengst til vinstri og smellt á Wireless LAN. Þá kemur upp síða með upplýsingum um þráðlausa netið.
Fyrir besta öryggið á þráðlausa netinu þá er valið WPA-PSK undir Security Mode. Því næst þarf að setja lykilorð í Pre-Shared Key. Það er best að nota tölustafi og bókstafi. T.d. kennitölu og nafn (012345AbcdEf6789). Áður en þetta er vistað þá þarf að breyta Name (SSID) til að tengjast nýju neti í tölvunni, t.d. Vodafone_2heimA.
Næst er smellt á Apply til að vista.
Ítarlegri útgáfa af leiðbeiningum fyrir ZyXEL NBG.
-
Er hægt að setja ljósleiðaratenginguna upp sjálfur?
Ef ljósleiðarabox er til staðar í húsnæði þá er það hægt, hinsvegar ef það á eftir að setja upp ljósleiðarabox þá kemur tæknimaður frá Gagnaveitu Reykjavíkur og setur það upp, sú þjónusta kostar ekki neitt.
Að því loknu getur þú sótt þann búnað sem þarf frá Vodafone eða fengið tæknimann frá Vodafone heim.
-
Get ég notað minn eigin beini?
Þú hefur val þar á milli, en Vodafone býður upp á beini með sinni þjónustu. Ef þú notar þinn eigin beini er ekki hægt að veita þér þjónustu við hann í gegnum síma þjónustuvers.
Ef þú vilt nota þinn eigin þarf að passa upp á það að hann sé með WAN Uplink svo að hann geti verið notaður fyrir ljósleiðarann. Hægt er að lesa um uppsetningu Vodafone-beinis fyrir ljósleiðara hægra megin á þessari síðu. -
Hvað er Netvörn Vodafone?
Við bjóðum nú Netvörn Vodafone, en með henni getur þú stjórnað því hvernig hægt er að nota nettenginguna á heimilinu. Í boði eru nokkrir læsingarflokkar, þú einfaldlega velur það sem þú telur henta þér og tekur þannig stjórnina.
Nánari upplýsingar fyrir netvörnina má sjá hér. -
Hvernig búnað þarf fyrir ljósleiðaraþjónustu?
Fyrir nettengingu er í boði þráðlaus beinir til leigu.
Fyrir sjónvarpsþjónustu þarf myndlykil (Aminet110) sem er tengdur með netsnúru við aðgangspunkt heimilisins. Hægt er að fá allt að þrjá myndlykla og er hægt að horfa á allar opnar stöðvar á sama tíma á öllum lyklum.
Hægt er að nálgast allan búnað í verslunum okkar, Skútuvogi 2, Kringlunni og Smáralind.
-
Hvernig tengist allur búnaður?
Beinirinn er tengdur beint í ljósleiðaraboxið og hægt er að tengjast beininum gegnum þráðlaust net eða með kapli.
Myndlykill tengist einnig beint í ljósleiðaraboxið eða gegnum powerline búnað sem leiðir merkið gegnum rafmagn. Ef þú ert með þrjá myndlykla þarf netskipti til að dreifa merkinu frá ljósleiðaraboxinu.
Sjá dæmi á mynd.

Nánari leiðbeiningar má sjá hér
-
Af hverju er hraðinn settur í 56 Kb/sek á erlendu niðurhali þegar hámarks gagnamagni er náð?
Þetta er í sjálfu sér aukin þjónusta fyrir viðskiptavinina og kemur í veg fyrir að óþarfa kostnaður leggist á þá.
Í stað þess að fá reikning með óvæntum kostnaði vegna umframgagnamagns, þá hægist á erlendu niðurhali og viðskiptavinurinn þarf sjálfur að ákveða hvort hann opni fyrir það aftur með stærri gagnamagnspakka eða bíði til næstu mánaðamóta.
-
Er send aðvörun um að það verði lokað fyrir erlent gagnamagn?
Já, ef þú ert t.d með 30 GB hámark þá muntu fá tölvupóst þegar þú ert búinn með 80% af inniföldu gagnamagni. Einnig færðu tölvupóst ef til þess kemur að við þurfum að loka fyrir erlent niðurhal. Erlend umferð fer svo í eðlilegt horf fyrsta hvers mánaðar.
Þó svo dæmið hér að ofan tali um 30 GB þá á þetta við um allar þjónustuleiðir.
„Lokunin“ sem um ræðir felst í því að hraðinn til útlanda er lækkaður í 56 Kb/sek.
-
Hvað er erlent niðurhal?
Erlent niðurhal er allt það efni sem þú skoðar eða sækir frá útlöndum.
Þetta á við um allar vefsíður sem þú skoðar og allt efni sem á þeim er, jafnframt á þetta við um gögn sem þú sækir með öðrum forritum, til dæmis svokölluðum skráardeiliforritum (Peer to peer) á borð við Kazaa, Bittorrent og DC++, en það er misjafnt eftir forritum hvort möguleiki er á að stýra hvort gögn eru sótt innanlands eða ekki. -
Ég er að flytja, hvernig á ég að tilkynna það?
Þegar viðskiptavinur flytur þarf að tilkynna það til Vodafone með góðum fyrirvara svo flutningur á heimasíma, nettengingu og sjónvarpsþjónustu gangi sem best fyrir sig.
Hafa þarf samband í þjónustuver Vodafone í síma 1414. Hafa þarf eftirfarandi við hendina: nýja heimilisfangið, fyrra símanúmer á nýja heimilisfanginu, íbúðarnúmer ef kostur er, og dagsetningu flutnings.
Allt að tíu dagar geta liðið frá því að tilkynning berst til Vodafone og þar til flutningur getur átt sér stað, þannig að best er að panta með a.m.k. 10 daga fyrirvara. Flutningsgjald má sjá í verðskrá heimasíma.
-
Er hægt að vera með fasta IP tölu á ljósleiðaratengingu?
Nei, það er ekki í boði að vera með fasta IP tölu gegnum kerfi Gagnaveitunar.
-
Er Vodafone með verkstæði fyrir tölvubúnað?
Já. Vodafone er með verkstæði þar sem lagfærð eru vandamál við að nettengja tölvur yfir ADSL, ljósleiðara eða með 3G-búnaði.
Meðal verkefna verkstæðisins er að:
- Setja upp Vodafone-búnað
- Framkvæma almenna bilanagreiningu fyrir þráðlaust net og sambandsleysi
- Setja upp rekla vegna Vodafone-búnaðar
- Skoðun á endabúnaði eða netkortum sem eru í ábyrgð (2 ár) og keypt hjá Vodafone.
Starfsmenn verkstæðis sinna hins vegar ekki verkefnum á borð við að:
- Setja upp stýrikerfi, vírusvarnir eða önnur forrit
- Stilla aðra netbeina en Vodafone netbeina fyrir sjónvarp um ADSL
- Setja upp eða hreinsa tölvur
Nánari upplýsingar um verkstæðið fást hér. Athugið að greiða þarf sérstakt gjald ef ekki er byrjað á að hafa samband við tækniver Vodafone í síma 1414-2 eða með Netspjalli.
-
Hver eru viðmiðunarmörk Vodafone vegna erlends upphals eða niðurhals?
Þau eru mismunandi hverju sinni og taka mið af getu og álagi á burðarlagi. Mætti segja að að viðmiðunarmörk væri tvöfalt það magn sem er innifalið í þjónustuleiðinni (Vodafone 140 væri þá með 280GB sem viðmiðunarmörk).
Burðarlag er bakendi á interneti Vodafone. Og ef álagið verður of mikið á því t.d. vegna bilunar getur það leitt til tímabundnar þjónustuskerðingar
-
Ég er með hægt net, hvað gæti verið að?
Það geta margir hlutir komið til greina ef netið er hægvirkt.
Með því að smella hér geturðu séð helstu orsakir og lausnir. -
Ég get ekki sent póst, hvað gæti verið að?
Það kemur ýmislegt til greina, t.d vanstillt póstforrit, vírusvörn eða eldveggur sem gætu verið að loka á póstforritið.
Með því að smella hér geturðu séð helstu orsakir og lausnir. -
Ég get ekki tengst heimasvæðinu mínu, hvað gæti verið að?
Líklegasta örsökin er það sé innsláttarvilla einhvers staðar, ef leiðbeiningarnar leysa ekki vandamálið þá er hægt að hafa samband við nethjálp í 1414.
Ef þú tengist gegnum skráarskiptaforrit (FTP) þá geturðu smellt hér til að sjá helstu orsakir og lausnir.
Ef þú tengist beint inn á heimasvæði gegnum vefmiðmót þá geturðu smellt hér fyrir leiðbeiningar.
-
Hvernig tryggi ég öryggi á þráðlausu neti (WiFi)?
Við mælum með notkun á WPA dulkóðun á þráðlausum netum. Til að geta notað WPA þarf tölvan og beinirinn að styðja WPA dulkóðun. Sé stuðningur ekki til staðar þarf að notast við eldri dulkóðun sem nefnist WEP.
Hér fyrir neðan eru leiðbeiningar til að stilla á WPA dulkóðun fyrir þrjá af algengustu beinunum frá okkur:
- Vodafone Box (hvítur beinir merktur Vodafone)
- ZyXEL D1
- ZyXEL NBG
Athugið að ítarlegri útgáfa af leiðbeiningunum hér fyrir neðan ásamt skjámyndum má finna með því að smella á tenglana hér fyrir neðan.Vodafone Box
Byrjaðu á að fara inn á router með því að opna vafra og fara inn á slóðina http://192.168.1.1. Lengst til vinstri er smellt á Þráðlaust net (WiFi). Þá kemur upp síða með upplýsingum um þráðlaust net. Því næst er valið WPA2-PSK undir Öryggi og lykilorð til að tengjast þráðlausa netinu er sett í reitinn Lykilorð (Ascii). Það er best að nota tölustafi og bókstafi. T.d. kennitölu og nafn (012345AbcdEf6789). Næst þarf að breyta SSID nafni til að geta tengst nýju neti í tölvunni, t.d. Vodafone_2heimA.
Áður en þetta er vistað þarf að slökkva á SSID 2 með því að haka við Óvirkur.
Næst er smellt á >Í lagi takka sem finna má neðst á síðunni. ATH - Ef takkinn birtist ekki í Internet Explorer 9 þarf að prófa annan vafra, t.d. Google Chrome.
Ítarlegri útgáfa af leiðbeiningum fyrir Vodafone Box.
ZyXEL D1
Byrjaðu á að fara inn á routerinn með því að opna vafra og fara inn á slóðina http://192.168.1.1. Þá ætti að koma upp síða sem biður um lykilorð. Ef lykilorðinu hefur aldrei verið breytt þá á það að vera admin
Næst er farið í Network lengst til vinstri og smellt á Wireless LAN. Þá kemur upp síða með upplýsingum um þráðlausa netið.
Fyrir besta öryggið á þráðlausa netinu þá er valið WPA-PSK undir Security Mode. Því næst þarf að setja lykilorð í Pre-Shared Key. Það er best að nota tölustafi og bókstafi. T.d. kennitölu og nafn (012345AbcdEf6789). Áður en þetta er vistað þá þarf að breyta Network Name (SSID) til að tengjast nýju neti í tölvunni, t.d. Vodafone_2heimA.
Næst er smellt á Apply til að vista.
Ítarlegri útgáfa af leiðbeiningum fyrir ZyXEL D1.
ZyXEL NBG
Byrjaðu á að fara inn á routerinn með því að opna vafra og fara inn á slóðina http://192.168.1.1. Þá ætti að koma upp síða sem biður um lykilorð. Ef lykilorðinu hefur aldrei verið breytt þá á það að vera admin.
Smelltu á Advanced setup ef síða kemur upp þar sem velja þarf á milli Wizard, Basic og Advanced.
Næst er farið í Network lengst til vinstri og smellt á Wireless LAN. Þá kemur upp síða með upplýsingum um þráðlausa netið.
Fyrir besta öryggið á þráðlausa netinu þá er valið WPA-PSK undir Security Mode. Því næst þarf að setja lykilorð í Pre-Shared Key. Það er best að nota tölustafi og bókstafi. T.d. kennitölu og nafn (012345AbcdEf6789). Áður en þetta er vistað þá þarf að breyta Name (SSID) til að tengjast nýju neti í tölvunni, t.d. Vodafone_2heimA.
Næst er smellt á Apply til að vista.
Ítarlegri útgáfa af leiðbeiningum fyrir ZyXEL NBG.
-
Hvernig kveiki ég á þráðlausa netinu í tölvunni minni?
Mismunandi er eftir tegundum fartölva hvernig kveikt og slökkt er á þráðlausa netinu í þeim. Hér er listi yfir nokkrar fartölvutegundir og hvaða aðferðir eru notaðar á þeim. Listinn er ekki tæmandi, en ef tölvan þín er ekki í listanum er a.m.k. gæti hann þó gefið vísbendingar um hvernig kveikt og slökkt sé á þráðlausa netinu í þinni tölvu.
- Acer Extensa 2000/2500 Series --- Takki lengst til hægri fyrir ofan lyklaborðið
- Acer Travelmate C Series ---Takki lengst til vinstri, svo þarftu að velja WLAN
- Acer Aspire 1000 Series --Fyrir ofan lyklaborðið
- Acer Aspire 1640Z ---- Fyrir ofan lyklaborðið
- Acer Aspire 1690 ---- Fyrir ofan lyklaborðið
- Acer Aspire 2000 Series ---- Framan á tölvunni
- Acer Aspire 2012 ---- Fyrir ofan lyklaborðið
- Acer Ferrari 3000 ---- Takki framan á tölvunni
- Acer Ferrari 3020 ---- Takki framan á tölvunni
- Acer Ferrari 3400 ---- Takki framan á tölvunni
- Acer Ferrari 4000 ---- Takki framan á tölvunni
- Advent 7086 ---- Takki við hliðina á PWR takka
- Advent 7096 ---- Takki við hliðina á PWR takka
- Advent 7100 ---- Fn / F2
- Advent 7104 ---- Fn / F2
- Advent 7201 ---- Takki efst til hægri og svo smella á Fn / F2
- Advent 8117 ---- Slide switch framan á tölvunni
- Asus ---- Fn / F2 (sumar týpur eru með switch)
- BenQ Joybook 5000u-d09 ---- Fn / F12
- Compaq Armada Services ---- Enginn þráðlaus búnaður til staðar
- Compact presario ---- Takki aftan á tölvu
- Compact presario M2000 ---- Takki með mynd af loftneti fyrir ofan lyklaborðið
- Dell Inspiron series ---- Fn / F2
- Dell Inspiron 500M ---- Fn / F2
- Dell Inspiron 600M ---- Fn / F2
- Dell Inspiron 1510 ---- Fn / F2
- Dell Inspiron 1520 ---- Slide takki á vinstri hlið, á að vera staðsettur við miðju.
- Dell Inspiron 5100 ---- Enginn þráðlaus búnaður til staðar
- Dell Inspiron 6000 ---- Fn / F2
- Dell Inspiron 8600 ---- Fn / F2
- Dell Inspiron 9300 ---- Fn / F2
- Dell Latitude D400 ---- Fn / F2
- Dell Latitude D500 ---- Fn / F2
- Dell Latitude D600 ---- Fn / F2
- Dell Latitude D610 ---- Fn / F2
- Dell Latitude D620 ---- Slider á vinstri hlið við hliðinna á headphone jacknum
- Dell Latitude D800 ---- Fn / F2
- Dell Latitude X300 ---- Fn / F2
- Dell Vostro 1500 ---- Stór takki á vinstri hlið tölvu
- Dell XPS M1330 ---- Slide takki á hægri hlið
- e-machines M series ---- Fn / F2
- E-System 3115 ---- Slide switch framan á tölvu FN / F5 virkar einnig.
- Flybook v331 ---- Fn / F2
- Fujitsu Siemens Amilo A Series ---- Takki hægra megin fyrir ofan lyklaborðið
- Fujitsu Siemens Amilo D Series ---- Takki hægra megin fyrir ofan lyklaborðið
- Fujitsu Siemens Amilo K Series ---- Enginn þráðlaus búnaður til staðar
- Fujitsu Siemens Amilo L/EL Series ---- Fn / F1 til að kveikja/slökkva
- Fujitsu Siemens Amilo La Series ---- Fn / F2 til að kveikja/slökkva
- Fujitsu Siemens Amilo Li Series ---- "Easy launch" takki (einn af þremur) fyrir ofan lyklaborðið
- Gateway Laptop ---- Switch á hlið og svo smella á Fn / F2
- HP nc4000 ---- Takki fyrir ofan lyklaborðið
- HP nc4010 ---- Takki fyrir ofan lyklaborðið
- HP nc4220 ---- Takki á vinstri hlið við hliðina á USB porti
- HP nc6000 ---- Takki fyrir ofan lyklaborðið
- HP nc6220 ---- Takki fyrir ofan lyklaborðið
- HP nx9010 ---- Takki framan á tölvu
- HP omnibook 6200 ---- Takki til vinstri
- IBM T43 ---- Fn / F5
- IBM X32 ---- Fn / F5
- Lenevo ---- Takki framan á tölvu
- Medion ---- Fn / F1
- Packard Bell EasyNote E2 ---- Fn / F1
- packard bell: easy-note MV46/008 ---- Fn / F1 til að kveikja/slökkva
- packard bell MZ36-U024 ---- Fn / F2 til að kveikja
- Sharp Laptops ---- Fn / F2 til að kveikja
- Sony Viao ----- Takki framan á eða hægra megin / Gæti líka verið switch
- Sony VAIO VGN-AX570G ---- Vinstra megin fyrir ofan lyklaborðið
- Targa Companion 811 ---- Fn / F2
- Toshiba Eqium Series ---- Slide switch framan á tölvu
- Toshiba Libretto Series ---- Slide switch á vinstri hlið tölvu
- Toshiba M1 ---- Switch á vinstri hlið tölvu
- Toshiba M2 ---- Switch á vinstri hlið tölvu
- Toshiba Portege Series ---- Switch á vinstri hlið tölvu
- Toshiba Qosmio Series ---- Switch á vinstri hlið tölvu
- Toshiba Quantium Series ---- Switch á vinstri hlið tölvu
- Toshiba R100 ---- Switch á hægri hlið tölvu
- Toshiba Satego Series ----- Slide Switch á hægri hlið tölvu
- Toshiba Satelitte ---- Framan á tölvu og svo smella á Fn / F8
- Toshiba Satellite Pro ---- Á hlið eða framan á tölvu
- Toshiba Tecra 2100 ---- Switch á vinstri hlið tölvu
- Toshiba TE2000 ---- Switch á vinstri hlið tölvu
-
Hvernig nota ég heimasvæðið mitt?
Ef þú ert með ADSL-áskrift hjá Vodafone þá færðu 2 GB heimasvæði með.
Til að nota það þá geturu skráð þig inn í gegnum gamla vefpóstinn hér og farið í vefsvæði.
Einnig er hægt að nota skráarskiptaforrit (FTP).
Þá notaru eftirfarandi stillingar:
Host: Internet.is
Username: þittnetfang@internet.is
Password: Sama lykilorð og þú notar fyrir netfangið.
Hægt er að fá leiðbeiningar fyrir FTP forrit hér
Hægt er að fá leiðbeiningar fyrir heimasvæðið gegnum gamla vefpóstinn hér -
Hvernig opna ég fyrir port / nat?
Hægt er að nálgast leiðbeiningar um uppsetningu beina hægra megin á þessari síðu.
Ef þinn beinir er ekki þar geturðu nálgast leiðbeiningar um aðra beina hér. -
Hvernig tengist ég þráðlaust?
Hægt er að nálgast leiðbeiningar hér.
-
Get ég leigt efni gegnum myndlykil?
Vodafone býður upp á að leigja efni með með ADSL- og ljósleiðaramyndlyklum.
Á leigunni eru kvikmyndir, barnaefni, fréttir ofl. Bæði er boðið upp á nýtt og gamalt efni.
Einnig er boðið upp á ýmislegt frítt efni.
Hægt er að sjá nánari upplýsingar hér.
-
Hvaða sjónvarpsstöðvum næ ég?
-
Hvaða stöðvar eru ókeypis?
Stöðvar í opinni dagskrá eru: RÚV, RÚV+, Omega, Nova TV, N4, ÍNN, CCTV-9 og Alþingi.
-
Hvar fæ ég meiri upplýsingar um fjarstýringuna?
Við höfum sett upp sérstaka síðu þar sem hægt er að sækja upplýsingar og leiðbeiningar fyrir hinar ýmsu fjarstýringar okkar.
-
Hvernig get ég horft á háskerpu útsendingar?
Hægt er að horfa á HD-útsendingar í gegnum örbylgjuloftnet, CAM-kort og ljósleiðara. Til að taka á móti HD-útsendingu um örbylgjuloftnet þarf sérstakan HD-lykil, en þeir eru uppseldir hjá Vodafone og verða ekki pantaðir inn aftur. Ef þú átt ekki slíkan lykil nú þegar getur þú einungis fengið HD-útsendingu í gegnum ljósleiðara eða CAM-kort.
Þær stöðvar sem senda út í háskerpu eru National Geographic HD og Stöð2Sport HD. Sjá nánar um HD-útsendingar hér. -
Hvernig tengist allur búnaður?
Beinirinn er tengdur beint í ljósleiðaraboxið og hægt er að tengjast beininum gegnum þráðlaust net eða með kapli.
Myndlykill tengist einnig beint í ljósleiðaraboxið eða gegnum powerline búnað sem leiðir merkið gegnum rafmagn. Ef þú ert með þrjá myndlykla þarf netskipti til að dreifa merkinu frá ljósleiðaraboxinu.
Sjá dæmi á mynd.

Nánari leiðbeiningar má sjá hér
-
Er hægt að læsa Leigunni á IPTV?
Það er hægt að læsa leigunni með því að velja "Allt læst" í stillingum, þá er öllu efni á Leigunni læst og þarf að opna fyrir það aftur með PIN númeri.
-
Eru útvarpsrásir á IPTV Vodafone?
Eftirfarandi útvarpsrásir fylgja í sjónvarpsþjónustu Vodafone gegnum ADSL:
121 Bylgjan
122 FM957
124 Rondo
125 LéttBylgjan
126 Latibær
127 BBC World Service
128 X-ið
130 Gullbylgjan
131 Rás 1
132 Rás 2
-
Hvað get ég verið með marga myndlykla?
Hvert heimili getur tengt þrjá myndlykla og er opið á sömu stöðvarnar á þeim öllum, ólíkt hefðbundnum Digital loftnetslyklum.
Ef þú vilt tengja þrjá myndlykla við ljósleiðaraboxið, þá þarftu netskipti (switch) til að tengja þá alla við ljósleiðaraboxið.
-
Hvaða tengimöguleikar eru fyrir sjónvarp um ADSL og ljósleiðara?
Amino 110 (gráa) myndlykilinn er hægt að tengja af mini-DIN útgangi myndlykils í SCART tengi sjónvarpstækis, S-Video eða RCA (composite merki). Fyrir SCART tengið er hægt að velja RGB, S-Video eða composite merki. Tegund merkis fyrir SCART er valið í stillingavalmynd (undir Á döfinni - Stillingar - Myndlykill).
Amino 140 (svarta) myndlykilinn er hægt að tengja með sama hætti, en að auki HDMI snúru.
Báða myndlyklana er einnig hægt að tengja við sjónvarp með loftnetsmerki (RF-signal), hafa skal í huga að slík tenging gefur lökustu myndina.
Beinar
| Beinir | Leiðbeiningar | ||
|---|---|---|---|
| Bewan Vodafone Box (VOX) | Uppsetning | Opna port | Öryggi |
| ZyXEL P-660HW-D1 | Uppsetning | Opna port | Öryggi |
| ZyXEL P-660HW-61 | Uppsetning | Opna port | |
| Linksys WAG54G | Uppsetning | ||
| Netopia Cayman 3341 | Uppsetning | Opna port | |
| Netopia Cayman 3347 | Uppsetning | Opna port | |
| ZyXEL P NBG420N | Opna port | Öryggi | |
| Tengja harðan disk við VOX | Uppsetning | ||
| Tengja prentara við VOX | Uppsetning |


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?