Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra:

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Hjálp - Heimasími

FAQ

Algengar spurningar

  • Hvernig á að aftengja vakningu hjá Vodafone?

    Til að aftengja (hætta við) vakningu þá þarf að hringja úr sama síma og vakningin var pöntuð úr.

    Hringt er í 534 4444 og þá er gefinn möguleiki á að :

    -   hætta við vakningu:    velja   1
    -   breyta vakningu:        velja   2

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvernig á að stilla vakningu?

    Til að virkja vakningu er hringt í símanúmerið 534 4444 og símsvarinn leiðir í gegnum hvernig á að gera þjónustuna virka.

    Eftir að vakningarþjónustan hefur verið gerð virk, gerir símstöðin:

    -      3 tilraunir til að hringja til baka
    -      með 3 mínútna millibili.

    Þjónustuna er hægt að virkja einn sólarhring fram í tímann.
    (þ.e. ekki hægt að stilla inn vakningartíma eftir t.d. viku).

    Hægt er að aftengja þjónustuna með því að hringja í símanúmerið 534 4444 fyrir settan vakningartíma.

    Hægt er að velja um tvennt:

    -     Afvirkja vakningu (hætta við)        velja  1
    -     Breyta vakningartímanum             velja  2

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvernig á að stilla símtal bíður?

    Hægt er að stilla símann þannig að það heyrist stutt hljóðmerki ef hringt er á meðan símtali stendur. Þá er hægt að „geyma“ þann viðmælanda og svarað þeim er hringir

    Þjónustan er virkju á eftirfarandi hátt:

    Þjónustan tengd:     velja   *43#
    Þjónustan aftengd:  velja   #43#

    Til að svara símtali sem bíður er valið:

    -          R2  þá er símtal nr 2 tengt.  
    -          Til að skipta á milli símtala er valið R.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvernig á að stilla símtalsflutning / hringiflutning?

    1. Símtalsflutningur ef ekki er svarað:

    Flutningur  tengdur, velja: *61*símanúmer# sem á flytja símtölin í.
    Dæmi: *61*5123456#

    Flutningur aftengdur, velja: #61#

    Ef engin tímalengd er stillt sem á að líða áður en símtal flyst þá flyst símtalið eftir 15 sekúndur. (u.þ.b 4 hringingar).

    Ef annarrar tímalengdar er óskað er slegið inn: *61* símanúmer* (sekúndur) #

    Sekúndur = tíminn sem á að líða áður en símtal flyst.

    Tímalengdin getur verið 5, 10, 15, 20, 25 eða 30 sekúndur.

    Dæmi: *61*5123456*25#, við þetta flyst númerið í 512 3456 eftir 25 sekúndur. 

     

    2. Hringiflutningur – allar hringingar

    Flutningur tengdur: *21*símanúmer #

    Flutningur aftengdur, velja:  #21#  

    Dæmi: *21*5123456#, við þetta flytjast allar hringingar úr heimanúmerinu í númerið 512 3456

     

    3. Hringiflutningur – þegar er á tali

    Flutningur tengdur: *69*símanúmer#

    Flutningur aftengdur, velja: #69#

    Dæmi: *69*5123456#, við þetta flytjast öll símanúmer úr heimanúmerinu í númerið 512 3456

     

    Einnig er hægt að stilla hringiflutning á Mínum síðum fyrir farsíma.

    Athuga virkar ekki fyrir ISDN númer

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvernig er hægt að geyma símtal?

    Hægt er að geyma símtal og hringja í annan viðmælanda án þess að sá sem bíður heyri símtal númer tvö.

    Þetta er gert með því að:

    -      velja R og bíða eftir sóni,
    -      síðan er valið seinna símanúmerið.
    -      Til að skipta yfir á upphaflega símtalið er valið R1 og þá slitnar símtalið við seinna símanúmerið.
    -      Til að tala við báða í einu þannig að þeir heyri í hvor öðrum er valið R3.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvernig á að stilla þriggja manna tal?

    Þriggja manna tal í heimasíma býður upp á möguleikann að tala við tvo í einu.

    Allir þátttakendur heyra í hver öðrum og geta talað saman.

    -          Byrjað er á að velja fyrra símanúmerið
    -          Þegar því hefur verið svarað er valið R og beðið eftir són
    -          svo er seinna símanúmerið valið.
    -          Þegar seinna símanúmerið hefur svarað er valið R3 til þess að allir geti talað saman.

    Dæmi:   512 3456  >  R  (beðið eftir són)  >  500 0000 > (seinna númeri hefur verið svarað) R3 

    -          Einnig er hægt að skipta á milli viðmælenda með því að nota R2.

    Það er ekki hægt að stofna til þriggja manna tals úr farsíma.

    En hægt er að bjóða farsímanúmeri í samtalið sem fyrsta eða öðrum viðmælanda.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvað er símtalslæsing?

    Símtalslæsing er notuð til að koma í veg fyrir að hægt sé að hringja út úr tilteknu símtæki.

    Þó svo að símtalslæsing sé virk á símtæki er engu að síður hægt að móttaka símtöl.

    Hægt er að velja úr eftirfarandi símtalsflokkum, hvort sem einn eða fleiri flokkar séu valdir til að láta læsa fyrir.

    1. Símtöl til útlanda
    2. Símtöl í farsíma
    3. Þjónustunúmer
    4. Öll 900 númer

    Til þess að skrá læsingarflokk, farið inn á „mínar síður“ eða hafið samband við þjónustuver 1414.

    Til þess að aflétta læsingarflokki, þarf rétthafi símanúmers að mæta í verslun og framvísa skilríkjum (þ.e.a.s. ef föst símtalslæsing hefur verið valin, þ.e. án lykilnúmers).

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvernig á að stilla símtalslæsingu með lykilnúmeri?

    Til þess að eiga kost á að nota símtalslæsingu með lykilnúmeri, þarf rétthafi símanúmersins að hafa samband við þjónustuver 1414 úr tilteknum síma eða mæta í verslun.

    Rétthafi velur þar lykilorð og læsingarflokk  sem notað er til að læsa og aflæsa völdum flokki.

     

    Til að virkja símtalslæsingu er valið *33*lykilnúmerið#

    Dæmi: * 33 * 1234 #

     

    Til að taka læsingu af er valið #33*lykilnúmerið#

    Dæmi: # 33 * 1234 #

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvað er númeraleynd?

    Með númeraleynd er komið í veg fyrir að símanúmer sem hringt er úr, birtist á númerabirti þess sem hringt er í.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvernig á að stilla númeraleynd?

    Til að fela númerið sem hringt er úr, er valið *31*# til að virkja númeraleyndina.

    Til að birta númerið aftur er valið *31#

     

        - Virkja       : *31*#

        - Aftengja    : *31#

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvernig á að taka símtalslæsingu af í heimasíma?

    Til að taka af fastar læsingar þá þarft þú að koma í verslun og framvísa skilríkjum.

    Kóðalæsingu getur þú aftengt beint en ef þú manst ekki kóðann þá verður þú að koma í verslun okkar með skilríki og fá hann uppgefinn. Ekki er hægt að fá upplýsingar um kóðann í gegnum síma.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvernig á að boða símafund með Fundarsímanum?

     

    Hægt er að boða allt að 10 gesti á fund hvar og hvenær sem er.

    Fundarstjóri skilgreinir :

    -       tíma
    -       símanúmer  
    -       auðkennisnúmer fundarins.

    Fundarmenn hringja síðan í 757 5000 og slá inn:

    -       símanúmer fundarstjóra
    -       auðkennisnúmer fundar (sem fundarstjóri hefur þegar sent út, t.d. með tölvupósti).
    -       Staðfesting er spiluð þegar nýr fundarmaður tengist símafundi.
    -       Hægt er að hringja í 757 5000 úr öllum símum og frá útlöndum, en þá er hringt í +354 757 5000.

     

    Skref-fyrir-skref

    Sá sem boðar fund (fundarstjóri) þarf að ákveða tíma og fjögurra stafa lykilorð.

    Hann þarf einnig að slá inn símanúmerið sitt sem hann hringir úr.

    Þessum upplýsingum kemur fundarstjóri til annarra fundargesta.

    Hægt að notast við t.d. tölvupóst og SMS til þess að koma skilaboðunum áleiðis. 

     

    Ekki þarf að stofna fundinn sérstaklega,

    -       heldur hringja allir fundargestir í 757 5000 á tilsettum tíma.

    -       Fundurinn verður til í símkerfinu við það að fyrsti þátttakandi hringir inn,

    -       Sá fyrsti sem hringir inn einkennir fundinn með því að slá sitt símanúmer inn, því næst velur hann auðkennisnúmer.

    Talvél svarar og í framhaldi er símanúmer fundarstjóra slegið inn og svo ýtt á #. Því næst er fjögurra stafa auðkennisnúmer sem fundarstjóri hefur úthlutað slegið inn og svo ýtt á #.

     

    Dæmi:

    -       Hringt er í 757 5000

    -       Slegið inn númeri fundarstjóra : 5123456 # 1234 #

    -       Þátttakandi fær samband við fundinn

    -       Talvélin tilkynnir um nýjan þátttakanda

    -       Þátttakandi yfirgefur fundinn með því að leggja á.

     

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Getur fundarstjóri greitt fyrir allt símtalið?

    Nei, hver og einn fundarmeðlimur greiðir fyrir sitt símtal.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvað geta margir talað saman í einu?

    Hægt er að boða allt að 10 gesti á fund hvar og hvenær sem er.

    Fundarstjóri skilgreinir:

    -       Tíma
    -       Símanúmer  
    -       Auðkennisnúmer fundarins.

    Fundarmenn hringja síðan í 757 5000 og slá inn símanúmer fundarstjóra og auðkennisnúmer fundar sem fundarstjóri hefur þegar sent út, t.d. með tölvupósti.

    Við þetta fæst samband við símafundinn.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei
  • Hvað kostar að nota Fundarsímann?

    Upphafsgjald

    9,97 kr.

    Mínútuverð

    4,98 kr.


    Allir þátttakendur greiða sama mínútuverð og er það óháð því hvort hringt er úr GSM eða heimilissíma eða hvaða símafyrirtæki þátttakandi skiptir við.

    Ekkert mánaðargjald né stofngjald er rukkað í Fundarsíma Vodafone.

    Var þetta svar hjálplegt? Nei

Hugbúnaður / Uppsetning

Mínar síður

  • Fylltu á Frelsið þitt eða fylgstu með notkuninni. Þú getur skoðað reikninginn á Mínum síðum.

    Innskrá
Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn