Hjálp - Farsími - Áskrift
FAQ
Algengar spurningar
-
Er hægt að flytja símaskrána milli SIM korta?
Þegar skipt er um SIM kort er hægt að biðja starfsfólk verslana Vodafone að færa upplýsingarnar sem eru vistaðar á gamla SIM kortinu yfir á nýja SIM kortið. Þannig færast allar upplýsingar úr símaskránni yfir á nýja SIM kortið.
Einnig er hægt að afrita símaskrána af gamla SIM kortinu yfir á það nýja beint í GSM símanum með því að afrita upplýsingar um tengiliði af gamla SIM kortinu yfir á minni símtækisins og þaðan yfir á nýja SIM kortið. Fer það eftir símtækinu hvernig þetta er gert, en fyrir flest símtæki þá er þetta gert svona:
Valmynd - Símaskrá - Afrita, svo þarf að velja alla tengiliði og færa yfir á minni símans.
-
Er hægt að vera með tvö SIM kort á sama símanúmeri?
Með Dual SIM (Aukakort) er hægt að vera með sama GSM númerið á tveimur SIM kortum. Notandi Dual SIM getur því haft eitt og sama númerið í tveimur GSM símum annars vegar eða í einu símtæki og einum GSM búnaði í bifreið hins vegar. Aðeins er hægt að hafa kveikt á öðru símtækinu í einu.
Aukakortið kemur að góðum notum fyrir þá sem vilja hafa auka GSM síma en einungis eitt GSM númer. Verð fyrir aukakort má sjá í gjaldskránni.
-
Get ég fengið nýtt SIM kort á sama símanúmer?
Ef SIM kort glatast eða skemmist þá er alltaf hægt að koma við í einni af verslunum Vodafone, fá nýtt SIM kort og halda gamla símanúmerinu.
Nýtt kort kostar 500 kr og nauðsynlegt er að framvísa skilríkjum við afhendingu í verslun.
-
Hringitónn barst ekki í símann - hvað gæti verið að?
Ef viðskiptavinur er í frelsi þarf að gæta þess að næg innistæða sé á símanúmerinu.
Annar möguleiki er að niðurhal hafi mistekist og þá þarf að fara aftur á Rautt.is og smella aftur á "Sækja" hnappinn til að senda tóninn aftur í símann.
Ef villan er viðvarandi hvetjum við þig til að hafa samband við þjónustuver Vodafone í síma 1414 og fá aðstoð.
-
Hvað á að gera ef SIM kortið glatast?
Ef SIM kort glatast er mikilvægt að tilkynna það sem fyrst til að koma í veg fyrir misnotkun. Viðskiptavinur ber ábyrgð á SIM kortinu og notkun þess þar til tilkynnt hefur verið um að það hafi glatast.
Upplýsingar sem aðeins voru vistaðar á SIM kortinu tapast ef kortið týnist.
-
Hvert er númer skeytamiðstöðvar?
Númer skeytamiðstöðvar á að vera +3546999099 í viðeigandi stillingum fyrir viðskiptavini okkar. Sjá nánar á stillingasíðu okkar.
-
Hvað kostar þjónustan "Hver hringdi?"
Þjónustan Hver hringdi kostar ekkert.
-
Hvernig á að panta læsingu á símanúmer?
Viðskiptavinir geta pantað læsingar á símanúmer með því að hringja í þjónustuver Vodafone í síma 1414 úr númerinu sem á að setja læsingarnar á.
Af öryggisástæðum er ekki hægt að taka læsingar af í gegnum símann og verður því að framvísa skilríkjum í verslun til að taka læsinguna af.
-
Hvernig get ég fengið PUK númer?
PUK númer er hægt að nálgast á Mínum síðum, í verslunum eða þjónustuveri og aðeins skráður rétthafi eða skráður notandi geta fengið uppgefið PUK.
Ekki er hægt að fá PUK númer uppgefið fyrir óskráð símanúmer. Notendur óskráðra frelsisnúmera þurfa að koma í verslun, sýna skilríki og skrá símanúmerið sitt til að fá PUK.
Ef símanúmer er skráð á fyrirtæki geta aðeins skráður notandi eða skráður tengiliður fyrirtækisins fengið uppgefið PUK.
-
Hvernig virkar talhólf?
Talhólf er símsvari sem hægt er að stilla til þess að taka á móti skilaboðum þegar: slökkt er á símanum, hann utan þjónustusvæðis eða er á tali.
Til að stilla talhólfið þarf að hringja í 1415. Uppsetning talhólfsins felur í sér að slá inn nýtt aðgangsnúmer og lesa inn ávarpið. Ávarpið er það sem fólk heyrir þegar það hringir í símanúmerið og símtalið er flutt í talhólfið.
Tilkynning um ný skilaboð í talhólfinu berast með SMS skilaboðum.
Það kostar ekkert að hringja í talhólfsnúmerið 1415 til að hlusta á skilaboðin.
Einnig er boðið upp á Hver Hringdi? þjónustuna. Hún virkar þannig að þegar hringt er í símann þegar hann er á tali, ekki er svarað eða hann utan þjónustusvæðis þá fær eigandi hans skilaboð með SMS um að reynt hafi verið að ná í hann. Það kostar ekkert að vera með Hver Hringdi? þjónustuna.
Athugið að ekki er hægt að hafa bæði talhólf og Hver Hringdi? þjónustuna á sama tíma.
-
Símtal bíður/call waiting.
Hægt er að svara annarri símhringingu á meðan talað er í símann. Stutt hljóðmerki heyrist ef hringt er meðan á símtali stendur, þá er boðið upp á að geyma það símtal á meðan næsta er svarað. Einnig er hægt að ljúka núverandi símtali og fá þá beint samband við þann sem hringir.
Þjónustan tengd: *43#hringja
Þjónustan aftengd: #43#hringjaEinnig er hægt að stilla þessa þjónustu í símanum sjálfum en það er misjafnt eftir símtækjum. Hér eru nokkur dæmi um hvernig þetta er gert í mismunandi símtækjum, en listinn er ekki tæmandi og einstakar tegundir síma frá eftirtöldum framleiðendum geta þurft aðrar skipanir en þær sem nefndar eru hér.
CALL WAITING - SÍMTAL BÍÐUR
Nokia:
- menu - settings - call - call waiting
- valmynd - stillingar - símtalsstillingar - biðþjónusta símtala
Nokia Symbian:
- menu - tools - settings - phone - call/call settings - call waiting
- vamynd - verkfæri - stillingar - sími - símtöl/símtalsstillingar - símtal í bið
Sony Ericsson:
- menu - settings - calls (þriðji flipi til hægri) - manage calls - call waiting
- valmynd - stillingar - símtöl (þriðji flipi til hægri) - vinna með símtöl - símtal bíður
Samsung:
- menu -
- í sumum símum þarf að fara beint í network services - call waiting
-settings - network services - call waiting
- valmynd -
-í sumum símum þarf að fara beint í þjónusta símkerfis-símtal bíður
- stillingar - þjónusta símkerfis - símtal bíður
Motorola:
- menu - settings - in call setup - call waiting
HTC:
- start - settings - phone - call waiting
BlackBerry:
- menu - call log - menu (takkinn með blackberry logoinu) - options - call waiting
Android:
- Stillingar - símtalsstillingar - viðbótarstillingar - símtal í bið
- Settings - call settings - additional settings - call waiting
-
Hvað kostar að nota farsímann erlendis?
Þegar GSM-síminn er notaður erlendis er greitt skv. þeirri áskriftarleið sem viðskiptavinur er skráður í.
Almenn verðskrá - Þegar hringt er í þig greiðir þú fyrir millilandasímtalið, en sá sem hringir greiðir hefðbundið símtal (að því gefnu að hann sé á Íslandi).
Vodafone Passport - Þessi þjónusta er eingöngu í boði fyrir þá sem eru með GSM í áskrift. Eitt upphafsgjald og síðan mínútuverð eins og hringt væri heima á Íslandi. Aðeins er rukkað upphafsgjald fyrir móttekin símtöl. Þú nýtir Vodafone Passport gjaldskrána í þeim löndum sem Passport þjónustan gildir (að því gefnu að númerið sé skráð í Vodafone Passport). Skráning kostar ekkert. Nánari upplýsingar má finna hér.Kynntu þér gjaldskrá símtala erlendis áður en haldið er af stað. Sjá gjaldskrá.
-
Hvernig er ódýrast að nota farsíma í útlöndum?
Með Vodafone Passport er greitt ákveðið upphafsgjald og síðan mínútuverð rétt eins og um innanlandssímtal á Íslandi væri að ræða. Nánar um Vodafone Passport. Athugið þó að Vodafone Passport hentar ekki ef oftast eru hringd mjög stutt símtöl erlendis, heldur fæst sparnaður þjónustunnar frekar þegar hringd eru lengri símtöl.
Sé númerið ekki skráð í Vodafone Passport er verð háð hverju landi fyrir sig, heiminum er skipt í 5 svæði og sama verð hjá öllum símafélögum. Sjá reikiverðskrá. Vodafone Passport er eingöngu í boði fyrir þá sem eru með farsíma í áskrift.
Hafðu þetta í huga:
- Það er ódýrara í flestum tilvikum að hringja frekar en að eiga „SMS samtal“.
- Það kostar ekkert að taka á móti SMS erlendis.
- Þú getur alltaf sent ókeypis SMS af vodafone.is ef þú hefur aðgang að netinu erlendis.
- Símtal á milli tveggja íslenskra símanúmera í útlöndum er tvöfalt útlandasímtal – fyrst heim og síðan aftur út. Þótt viðmælandinn sé við laugina og þú á ísbarnum rétt hjá!
- Ef þú ert að ferðast utan EES/ESB landanna og símtöl til þín fara í talhólfið þitt þá ertu að borga tvöfalt útlandasímtal: fyrst frá Íslandi til útlanda og síðan aftur í talhólfið á Íslandi. Jafnvel þótt slökkt sé á símanum! Þú getur slökkt á símtalsflutningi í talhólfið með því að slá inn ##002# og ýta á hringja hnappinn.
- Ekki svara ef þú vilt ekki borga! En þá verður þú líka að taka talhólfið alveg úr sambandi, því talhólfssvar jafngildir svari ef þú ert utan EES/ESB landanna.
- Ef þú vilt vita hver hringdi þá getur þú skráð þig ókeypis í Hver hringdi þjónustuna og þá færðu eitt SMS með öllum þeim sem reyndu að ná í þig á meðan þú varst með slökkt á símanum eða utan svæðis. Þjónustan er algjörlega gjaldfrjáls, líka í útlöndum. Frelsisnúmer geta kveikt á þjónustunni með því að slá inn *133# og ýta á hringja, en númer í áskrift með því að slá inn **62*6899000# og ýta á hringja.
- Þegar sent er SMS með séríslenskum stöfum fækkar stöfum á hvert SMS úr 160 í 70. Þannig getur eitt SMS sem er án séríslenskra stafa breyst í tvö til þrjú SMS með séríslenskum stöfum og kostnaðurinn verður þar af leiðandi meiri.
- Athugið að þegar ferðast er til Bandaríkjanna eru símtöl í 800-númer ekki gjaldfrjáls ef hringt er úr íslensku farsímanúmeri. 800-númer eru einungis gjaldfrjáls þegar hringt er úr bandarísku símanúmeri. Margir kaupa sérstök skafkort fyrir útlandasímtöl í Bandaríkjunum til að lækka verð útlandasímtala og þá virka kortin þannig að hringt er í ákveðið 800-númer til að nota inneign skafkortanna. Alls ekki ætti að hringja í þetta 800-númer úr íslensku farsímanúmeri, heldur nota landlínu, t.d. almenningssíma.
- Ítarlegar upplýsingar veitir þjónustuverið okkar í síma 1414.
-
Hvernig á að skipta á milli símkerfa í útlöndum?
OPERATOR / NETWORK SELECTION - VAL Á SÍMKERFI
Hér eru nokkur dæmi um skipt er milli símkerfa í mismunandi símtækjum. Listinn er ekki tæmandi og einstakar tegundir síma frá eftirtöldum framleiðendum geta þurft aðrar skipanir en þær sem nefndar eru hér.
Nokia:
- menu - settings - phone settings - phone - operator selection
- valmynd - stillingar - símastillingar - val símafyrirtækis
Nokia Symbian:
- menu - tools - settings -
-í sumum símum þarf að fara í phone
-network - operator selection
- valmynd - verkfæri - stillingar -
- í sumum símum þarf að fara í sími
- símkerfi - val á símafyrirtæki
Sony Ericsson:
- menu - settings - connectivity (fjórði flipi til hægri) - mobile networks - select network
- valmynd - stillingar - tengingar (fjórði flipi til hægri) - farsímakerfi - velja símkerfi
Samsung:
- menu -
-í sumum símum þarf að fara beint í network services- network selection
-settings - network services - network selection
- valmynd -
-í sumum símum þarf að fara beint í þjónusta símkerfis-val á símkerfi
- stillingar - þjónusta símkerfis - val á símkerfi
Motorola:
- menu - settings - network - avail. networks
HTC:
- start - settings - phone - networks
BlackBerry:
- menu - options - mobile network
-
Hvernig er hringt til Íslands frá útlöndum?
Þegar hringt er til Íslands frá útlöndum er valið 00354 eða +354 á undan símanúmerinu. Frá Bandaríkjunum er hins vegar valið 011 til að fá línu út úr landinu og myndi þá líta svona út 011354*******.
Til þess að hringja í talhólfið erlendis frá þá er valið 0035462006200 og til þess að ná í þjónustuverið þá er hringt í 003545999001. (Fyrir Bandaríkin þá þarf að passa að velja 011354 á undan)
Þegar ná þarf sambandi við Vodafone geta bæði áskrifendur og frelsisnotendur hringt gjaldfrjálst í þjónustuver, talhólf og til að athuga/fylla á innistæðu með því að hringja í *111*1414# (þjónustuver) *111*1400# (innistæða) og *111*1415# (talhólf).
-
Er hægt að loka fyrir innkomandi símtöl meðan á dvöl erlendis stendur?
Já það er hægt.
Hér eru nokkur dæmi um hvernig þetta er gert í mismunandi símtækjum. Listinn er þó ekki tæmandi og einstakar tegundir síma frá eftirtöldum framleiðendum geta þurft aðrar skipanir en þær sem nefndar eru hér:
Nokia:
- menu - settings - security - call barring service - voice calls
- valmynd - settings - öryggis stillingar - útilokunarþjónusta - símtöl
Nokia Symbian:
- menu - tools - settings - phone - call barring
-í sumum símum þarf að fara í voice call barring
- valmynd - verkfæri - stillingar - sími - útilokanir
-í sumum símum þarf að fara í útilokun farsíma
Sony Ericsson:
- menu - settings - calls (þriðji flipi til hægri) - manage calls - restrict calls
- valmynd - stillingar - símtöl (þriðji flipi til hægri) - vinna með símtöl - læsingar símatala
Samsung
- menu -
-í sumum símum þarf að fara beint í network services-call barring
- settings - network services - call barring
- valmynd -
-í sumum símum þarf að fara beint í þjónusta símkerfis-læsingar símtala
- stillingar - þjónusta símkerfis - læsingar
Motorola:
- menu - settings - security - call barring
HTC:
- start - settings - phone - call barring
Android:- stillingar - símtalsstilingar - útilokun símtala - kveikja á "Móttekin ef erlendis".
- settings - call Settings - call barring - kveikja á "Incoming when abroad".
-
Er hægt að nota MMS í útlöndum?
Það er hægt að nota MMS í þeim löndum sem GPRS-gagnaflutningur býðst viðskiptavinum Vodafone. Með því að velja land í landalista Vodafone sérðu hvort GPRS-þjónusta (og þar með MMS-skilaboð) sé í boði í viðkomandi landi.
-
Get ég hringt gjaldfrjálst í Vodafone frá útlöndum?
Já. Þegar ná þarf sambandi við Vodafone geta bæði áskrifendur og frelsisnotendur hringt gjaldfrjálst í þjónustuver, og til að athuga/fylla á innistæðu með því að hringja í *111*1414# (þjónustuver) og *111*1400# (innistæða)
-
Get ég nettengst í símanum í öllum löndum þar sem 3G er í boði?
Nei, eingöngu er hægt að nettengjast í símanum í þeim löndum þar sem Vodafone hefur gert GPRS-samninga. Með því að velja land í landalistanum getur þú séð hvort GPRS-samningur er í gildi í viðkomandi landi.
-
Hvaða gengi er miðað við í útlandaverðskrá Vodafone?
Útlandaverðskrá Vodafone er birt í krónum, en miðast við gengi Evru. Gengið ákvarðast mánaðarlega út frá gengi Seðlabanka Íslands.
Nánari upplýsingar um verðskrá Vodafone í útlöndum.
-
Hver borgar fyrir símtöl til útlanda?
Ef farsími er notaður erlendis greiðir eigandi símans fyrir millilandasímtöl, þ.e. þegar hringt er í hann frá öðru landi en hann er staddur í. Þetta á við um almenna verðskrá. Ekki þarf hins vegar að greiða fyrir millilandasímtal með Vodafone Passport - þá gildir íslenskur innanlandstaxti að því undanskildu að greitt er tengigjald við upphaf símtals og svo á 20 mínútna fresti. Vodafone Passport er einungis í boði fyrir þá sem eru með GSM í áskrift. Nánar um Vodafone Passport.
Dæmi: Viðskiptavinur A er á Íslandi en viðskiptavinur B er í útlöndum. Þegar A hringir í B þá greiðir A venjulegt innanlandsverð en B greiðir fyrir að móttaka símtal samkv. erlendri gjaldskrá. -
Í hvaða löndum er hægt að nota farsíma frá Vodafone?
Á síðunni Farsími í útlöndum er hægt er að sjá við hvaða lönd Vodafone er með reikisamninga, hvaða þjónustuleiðir eru í boði í viðkomandi landi og hvaða tíðnisvið GSM símtækin þurfa að styðja til að virka í viðkomandi landi.
Athugið að Vodafone er ekki með 3G eða GPRS reikisamninga við öll símafyrirtæki þótt GSM-reikisamningar séu til staðar.
-
Virkar Kollekt þjónustan í útlöndum?
Viðskiptavinir geta móttekið Kollektbeiðnir í útlöndum og samþykkt þær. Viðkomandi þarf þá að greiða fyrir símtalið samkvæmt verðskrá erlenda símafyrirtækisins.
Viðskiptavinur getur ekki óskað eftir Kollektsímtali ef hann er staddur í útlöndum.
Kollekt þjónustan er aðeins virk innan kerfis Vodafone.
-
Virkar síminn í Asíu, S-Ameríku eða öðrum fjarlægum stöðum?
GSM farsímakerfi á Íslandi (og Evrópu) eru á tveimur tíðnum; 900Mhz og 1800Mhz. Sumsstaðar utan Evrópu er notast við önnur tíðnisvið og því eru ekki allir GSM símar sem virka nema þeir séu samhæfðir við tíðnina sem farsímafélögin notast við.
Tri-band símar styðja 900/1800 og 1900 kerfin.Quad-band símar styðja 850/900/1800 og 1900 kerfin.
Hafa skal í huga þegar farið er til eftirfarandi landa:
Argentína, Kólumbía, Paragvæ (1900 og sums staðar 850)
Chile, Mexíkó, Níkaragúa, Perú (1900)
Bandaríkin og Kanada (mest 1900 í bland við 850)
Í ofangreindum löndum er engin þjónusta á 900 og 1800, en í sumum löndum er samblanda af 900/1800 og 1900/850:
Cayman eyjar, Dóminíska lýðveldið, El Salvador, Jamaíka, Taíland og Úrúgvæ. Í þessum löndum getur því verið að 900/1800 virki á sumum farsímanetum eða á ákveðnum svæðum.
Í Suður-Kóreu í Japan er eingöngu hægt að nota 3G farsíma, þannig að ef farsíminn þinn er með 3G getur þú því notað hann í þessum löndum. Ef síminn þinn er eingöngu með GSM þarftu að kaupa 3G síma (þeir eru allir með GSM líka) til að nota í Suður-Kóreu og Japan. Farsímar með 3G fást í öllum verðflokkum bæði hér heima og erlendis.
Ítarefni um þetta málefni er að finna á síðu GSM World (þar er valið land og upp koma upplýsingar um öll farsímakerfi á því svæði og útbreiðslu þeirra).Á GSM Arena er hægt að sjá hvaða kerfi símtækin styðja. Sláið inn tegund ykkar síma og upp kemur allt um símann. Þarna er einnig hægt að finna leiðbeiningabæklinga fyrir síma.
-
Virkar símtækið mitt í Bandaríkjunum?
Þegar ferðast er til Bandaríkjanna þarf að athuga hvort símtækin virki á amerísku kerfunum sem eru 850 og 1900 kerfi. (Víðast annarsstaðar er notuð 900 og 1800 tíðni). Þessar upplýsingar ættu að finnast á vef framleiðanda símans eða í bæklingum sem fylgdu með honum.
Í USA (og víðar) er einnig svokallað IDEN kerfi og til að komast á það þarf að vera með sérstakan IDEN síma og þeir fást ekki á Íslandi. Þetta eru sérstakir símar sem Motorola hefur framleitt og virka eingöngu á IDEN kerfum.
Samkvæmt fjarskiptafyrirtækinu SPRINT geta viðskiptavinir okkar notað SIM kortin frá Vodafone í þessa síma.
Hér er svo smá Wiki fróðleikur um IDEN
-
Hvað er Vodafone Passport?
Vodafone Passport gildir í símtölum til Íslands og innan þess lands sem ferðalangurinn er staddur í og einnig fyrir móttekin símtöl.
Viðskiptavinir greiða ákveðið tengigjald samkvæmt gjaldskrá í upphafi símtals og síðan sömu upphæð á 20 mínútna fresti. Jafnframt er rukkað mínútugjald samkvæmt íslenskum taxta. Þegar símtöl eru móttekin erlendis er einungis greitt tengigjald en ekkert mínútugjald.
Tengigjaldið er rukkað á 20 mínútna fresti hvort sem verið er að hringja eða móttaka símtöl.
Með þessum hætti geta viðskiptavinir sparað sér umtalsverðar upphæðir, sérstaklega þegar um lengri símtöl er að ræða. Með Vodafone Passport verður gjaldskrá millilandasímtala því gegnsærri og einfaldari, en athugið að ef símnotkun erlendis felst nær eingöngu í stuttum símtölum er hagstæðara að nota ekki Vodafone Passport.
-
Er hægt að hringja frá einu Passportlandi til annars á sömu kjörum?
Nei, hægt er að hringja frá því Passport landi sem ferðalangurinn er staddur í innan viðkomandi lands og einnig heim til Íslands - óháð farsímafélagi sem hringt er í.
Ef hringt er frá einhverju þeirra landa sem eru í Passport til annarra landa en Íslands gildir almenn verðskrá.
Sjá lista yfir lönd og verðskrá hér.
-
Geta allir skráð sig í Passport?
Passport er í boði fyrir þá sem eru með farsímaáskrift hjá Vodafone. Passport er ekki í boði fyrir Frelsi.
-
Hvar er hægt að sækja um Passport?
Með að hringja í 1414, koma í næstu verslun Vodafone eða með því að senda SMS-ið passport í síma 1900. Einnig er hægt að fara á heimasíðu Vodafone og skrá sig fyrir þjónustunni.
-
Hvað kostar að fara í Passport?
Það kostar ekkert að skrá sig í Passport og það eru engin mánaðargjöld greidd í Passport.
-
Til að nýta Passport þjónustuna í útlöndum, hvaða símafyrirtæki á að tengjast?
Passport er virkt á öllum kerfum sem við erum með reikisamninga við í þeim löndum sem þjónustan er virk.
-
Hvernig fæ ég stillingar í símann minn?
Ef þú ert með nýjan síma og vantar stillingar til að senda MMS og tengjast netinu, þarftu að hringja eitt símtal eða senda eitt SMS til þess að kerfið bregðist við og sendi þér stillingarnar.
Það skiptir ekki máli hvert þú hringir eða hver fær SMSið, þegar kerfi okkar sér að þú ert með nýjan síma eru stillingarnar sendar. Það gerist sjálfvirkt en nokkur stund getur liðið frá því að hringt er eða sent SMS þar til stillingarnar berast.
Ef stillingarnar berast ekki geturðu farið inn á Mínar síður og sent stillingarnar handvirkt.
Ef símtækið þitt styður ekki sjálfvirkar stillingar getur þú stillt það handvirkt. Kíktu á leiðbeiningar fyrir iPhone og Android símtæki til að vafra um netið og nota MMS.
-
Hvernig nota ég símann til að fara á netið í tölvunni?
Flesta nýja GSM síma er hægt að tengja við fartölvur og komast á netið í tölvunni í gegnum símann. Það má gera með hugbúnaði sem fylgdi símunum eða með því að nota hugbúnaðinn Via the Phone. Hér finnur þú leiðbeiningar um notkun Via the Phone og hér getur þú sótt hugbúnaðinn.
Í eldri símum er notast við gagnakapal eða þráðlausa innrauða tengingu til að tengja tækin saman. Nýrri símar bjóða upp á þráðlausa Bluetooth tengingu en til að hún virki þá þarf Bluetooth stuðning í tölvuna. Í sumum tilvikum (fer eftir símtækjum) dugar að kveikja á innrauða tengi/Bluetooth tengingu símans. Sé innrauða tengingin notuð þarf símanum að vera stillt upp við innrauða tengi tölvunnar.
Vodafone getur veitt aðstoð við uppsetningu á tengingu á milli símans og tölvunnar með kapli, innrauðu tengi eða Bluetooth. Komdu við í næstu Vodafone verslun og við aðstoðum þig fúslega við þessa uppsetningu.


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?