Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra.

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Sparnaðarráð Vodafone

Við höfum tekið saman nokkur einföld ráð sem geta hjálpað þér að spara, ef þú hefur ábendingar um fleiri sparnaðarráð, endilega sendu okkur línu.

1. Skoðaðu notkunina og veldu pakka við hæfi

Það skiptir máli að velja pakka sem passa við notkunina, því það getur aukið kostnað að vera í þjónustuleiðum sem gera ráð fyrir annað hvort mun minni eða meiri notkun en raunin er. Á Mínum síðum getur þú t.a.m. séð hversu mikið erlent niðurhal er að jafnaði mánaðarlega á internettengingunni og borið saman við þjónustuleiðina. Þar sérðu líka yfirlit yfir símnotkun og með því að bera hana saman við áskriftarleið heimilisins getur þú metið hvort samræmi sé þar á milli.

2. Skráðu þig í Vodafone Gull

Vodafone Gull veitir þeim sem eru með a.m.k. þrjár þjónustuleiðir meiri fríðindi og betri kjör. Þú einfaldlega velur þjónustuleiðir sem henta best þinni notkun og tryggir þér um leið meiri ávinning.

3. Nýttu þér Risafrelsi

Ef þú ert í Frelsi getur þú nýtt þér hagstæðari áfyllingaleiðir með því að kaupa þér Risafrelsi. Fyrir aðeins 990 kr. áfyllingu hringir þú t.d. fyrir 0 kr. Vodafone í Vodafone og færð 1.000 SMS óháð kerfi næstu 30 dagana. Risafrelsisleiðirnar eru þrjár - veldu þá sem passar best við þína notkun.

Við mælum sterklega með að þú skráir sjálfvirka mánaðarlega áfyllingu af debet- eða kreditkorti því þá endurnýjast Risafrelsið þitt sjálfkrafa á 30 daga fresti.

4. Ódýrari mínútur

Með farsímaleiðum okkar getur þú valið þér leið sem hentar þinni notkun. Þú þarft ekki lengur að skrá vinanúmer, þar sem innifaldar mínútur og SMS eru óháð kerfi og þú getur ráðstafað að vild. Einnig er, í völdum þjónustuleiðum, innifalið Netið í símann. Kynntu þér úrvalið af farsímaleiðum sem eru í boði hjá Vodafone.

5. Notaðu 1010 forval þegar hringt er til útlanda

Með 1010 forvali, í stað 00, þegar þú hringir til útlanda, færð þú lægra mínútugjald til allra landa. Þetta er því einfaldasta leiðin til að spara þegar hringt er til útlanda. Ekki þarf að skrá sig sérstaklega í þessa þjónustu.

Með því að nota 1010 kostar einungis 8,9 kr. að hringja úr heimasíma í heimasíma til 26 þeirra landa sem Íslendingar hringja oftast í.

00 1010 Verðlækkun
Heimasími í heimasíma 20,9 kr./mín 8,9 kr./mín 57,4%
Heimasími í farsíma 45,9 kr./mín 39,9 kr./mín 13,1%
Farsími í heimasíma 31,9 kr./mín 19,9 kr./mín 37,6%
Farsími í farsíma 56,9 kr./mín 50,9 kr./mín 10,5%

Taflan gildir fyrir símtöl til Danmerkur, Svíþjóðar, Noregs, Bretlands og N-Írlands, Bandaríkjanna, Kanada, Frakklands, Þýskalands, Hollands, Póllands, Spánar, Írlands, Ítalíu, Lúxemborgar, Portúgal, Austurríkis, Belgíu, Kína, Ástralíu, Tékklands, Andorra, Kýpur, Hong Kong, Singapúr, Taílands og Tævan.

Þú sparar líka með 1010 þótt þú hringir til annarra landa. Hér getur þú flett upp verðskrá fyrir útlandasímtöl úr heimasíma og verðskrá fyrir útlandasímtöl úr farsíma. Athugið að 1010 virkar ekki fyrir frelsi.

6. Hagstætt að nota heimasímann

Ef þú ert í Vodafone Gull hringir þú fyrir núll krónur í alla heimasíma á Íslandi fyrstu 1.000 mínúturnar. Ef mikið er hringt úr heimasímanum í farsíma, getur þú fengið innifaldar farsímamínútur í mánaðargjaldinu, skoðaðu úrvalið af þjónustuleiðum í heimasíma.

7. Fáðu greiðsluseðilinn sendan rafrænt

Við bjóðum upp á rafrænan greiðsluseðil, en þá lækkar útskriftargjaldið úr 250 kr. í 60 kr. á mánuði. Ódýrast er þó að greiða með kreditkorti, en þá er ekkert útskriftargjald greitt. Í einhverjum tilvikum er þjónustu skipt niður á fleiri en einn reikning og er þá greitt útskriftargjald fyrir hvern reikning.

Skoðaðu hvernig þú getur sparað þennan óþarfa kostnað í útgjöldum heimilisins (líka á reikningum fyrir annað en fjarskiptaþjónustu). Breyttu sendingarmátanum hér á vefnum, með því að hringja í þjónustuver okkar í síma 1414. Þú getur líka fengið samband við þjónustufulltrúa í gegnum netspjall.

8. Vertu með 3G gagnamagnsáskrift

Ef þú notar símann þinn til að skoða netið (annað hvort í gemsanum sjálfum eða með því að tengja tölvuna við hann) margborgar sig fyrir þig að bæta við gagnamagnsáskrift á núverandi GSM áskriftarleið þína.

9. Skráðu þig í Vodafone Passport

Með skráningu í Vodafone Passport, sem kostar ekkert aukalega, greiðir þú sama mínútugjald þegar þú ferð til útlanda með GSM númerið þitt. Þú greiðir upphafsgjald allra símtala, €0,99, en að því loknu gildir sama mínútugjald og á Íslandi að því undanskildu að upphafsgjaldi er bætt við á 20 mínútna fresti. Fyrir móttekin símtal greiðir þú aðeins upphafsgjaldið og svo aftur á 20 mínútna fresti. Það gefur því augaleið að með þessum hætti er hægt að spara umtalsvert þegar farið er til útlanda, sér í lagi þegar hringd eru lengri símtöl. Þeim sem hringja jafnan mjög stutt símtöl erlendis gæti þó hentað betur að vera ekki skráðir í Passport. Skráðu þig í Vodafone Passport á Mínum síðum. Vodafone Passport er ekki í boði fyrir Vodafone Frelsi.

10. Sendu HópSMS af vodafone.is

Með HópSMS af Mínum síðum greiðir þú minna fyrir hvert SMS og getur þar að auki sent SMS til margra í einu á þægilegan hátt. SMS sem send eru úr HópSMS-i á Mínum síðum er sent úr þínu númeri, móttakandinn sér því ekki muninn á þessum SMS-um og þeim sem þú sendir úr gemsanum þínum.

Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn