
Krakkar fá 1.500 kr. inneign í Frelsi á mánuði ef foreldrar eru með Vodafone Gull GSM áskrift.
Með einu símtali í 1414 getur þú tengt Frelsisnúmer barnsins þíns við Vodafone Gull GSM áskriftina þína og notið ávinningsins.
Flyttu frelsisnúmerið til okkar til að fá Krakkafrelsi, hakaðu einfaldlega við Krakkafrelsi í glugganum sem opnast og þá sjáum við um að tengja það rétt við GSM áskrift í Vodafone Gull.
Flytja númer til VodafoneÞú greiðir ekkert aukalega, 1.500 kr. inneign kemur á Frelsi barnsins eða unglingsins í hverjum mánuði. Þú heldur því aðeins áfram að greiða fyrir GSM áskriftina sem Frelsið fylgir.
Krakkafrelsi er í boði fyrir börn og unglinga fram að 18 ára aldri.
Krakkafrelsi er hefðbundið Vodafone Frelsi, það koma því engir reikningar, inneignin klárast á hefðbundinn hátt og inneignin er ekki tengd GSM áskriftinni á annan hátt en að 1.500 kr. inneign leggst inn á Frelsið í hverjum mánuði.
Með GSM áskrift fylgir 1 Vodafone Frelsi (Krakkafrelsi).
Það geta að hámarki verið 2 Krakkafrelsi í hverri fjölskyldu, þá þurfa að vera 2 GSM áskriftarnúmer í fjölskyldunni (Krakkafrelsið fylgir GSM áskrift í Vodafone Gull).
Krakkafrelsi er einnig í boði þeim Vodafone Gull viðskiptavinum sem eru með GSM áskrift greidda af fyrirtæki.
Til að vera í Vodafone Gull þarf fjölskyldan að vera með heimasíma, net (ADSL, ljósleiðara eða 3G net í áskrift) og GSM hjá Vodafone (áskrift eða Frelsi með sjálfvirkri áfyllingu).
Auglýsingin fyrir Krakkafrelsi var tekin upp á ísi lagðri tjörninni í miðborg Reykjavíkur í janúar 2010.
Í auglýsingunni syngur Lára Rúnarsdóttir lag sitt In Between sem er af plötu hennar Surprise sem kom út á síðasta ári (sjá á tonlist.is).
Þú færð aðstoð í síma 1414. Kíktu á spurt og svarað eða sendu okkur fyrirspurn.