Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra.

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Koma í viðskipti

Einfaldasta og þægilegasta leiðin til að flytja viðskiptin til okkar er að setja saman pakkann þinn í Vodafone Gull reiknivélinni og senda inn til okkar. Við höfum svo samband við þig til að klára dæmið.

Koma í viðskipti

Þegar þú flytur viðskipti þín til Vodafone skaltu hafa eftirfarandi í huga:

Þú heldur sama númeri ...eða færð nýtt

Þú þarft ekki að skipta um númer í heimasíma eða gemsanum. Ef þig vantar nýtt númer eigum við dobíu af þeim, því miður bjóðum við ekki upp á uppflettingu eða leit númera hér á vefnum, en við leysum málið með þér í síma 1414 eða næstu Vodafone verslun.

Flutningur tekur skamma stund

Við flytjum hundruði GSM númera til okkar í hverjum mánuði, fjöldan allan af bæði heimasímanúmerum og ADSL tengingum. Við erum því nokkuð sjóuð í flutningsferlinu og á flutningur að ganga hratt og vel fyrir sig ef ekkert óvænt kemur upp á.

Starfsfólk okkar fylgist með og bregst við ef flutningur þjónustu tekur óvenjulangan tíma og við höfum að sjálfsögðu samband við þig til að láta þig vita af stöðu mála.

Flutningur til Vodafone

Þú sækir búnaðinn til okkar eða við sendum hann til þín.

Svona gengur flutningur farsímanúmers fyrir sig

Við flutningsbeiðni á farsímanúmeri færð þú nýtt símkort (til að setja í gemsann þinn). Þú færð það afhent í verslun (ef þú sækir um flutning þar) eða við sendum þér það í pósti (ef þú biður um flutning hér á vefnum eða í síma 1414).

Þegar gamla símafélagið þitt er tilbúið að afhenda okkur númerið sendum við þér SMS með skilaboðum um að skipta um símkort í gemsanum, þangað til SMS-ið kemur átt þú að nota gamla kortið áfram. Skömmu eftir að SMS-ið er sent verður símanúmerið þitt eingöngu virkt á Vodafone símkortinu og þú getur þá nýtt þér þjónustu okkar!

Heildartími flutnings á farsímanúmeri tekur alla jafna þrjá virka daga. Flutningur til okkar er þó aldrei fyrr en degi eftir að fyrra símafélag þitt er tilbúið að afhenda okkur númerið.

Flutningur á ADSL og heimasíma

Flutningur á ADSL og heimasíma á milli fjarskiptafélaga tekur alla jafna 7-10 virka daga. Hraðinn er háður álagi á tæknimönnum hverju sinni, bæði frá félagi sem þú flytur frá og hjá okkur. Þú þarft að uppfæra stillingar í ADSL beininum þegar flutningur hefur gengið í gegn, en þú getur líka fengið afhentan hjá okkur forstilltan beini.

Hvenær hefst flutningur?

Flutningur á þjónustu hefst ekki fyrr en undirskrift þín sem rétthafa staðfestir beiðnina. Ef undirskrift eða rafræn staðfesting hefur ekki borist er flutningurinn því í raun ekki hafinn.

Viltu vita stöðu á flutningi?

Hafðu samband við okkur í síma 1414 og við getum veitt þér nánari upplýsingar um stöðu á flutningi þjónustu til okkar.

Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn