Vodafone Passport
Þjónustan er í boði í 32 löndum Evrópu. Vodafone Passport gildir í símtölum til Íslands, innan þess lands sem ferðalangurinn er staddur í og einnig fyrir móttekin símtöl.
Amerískir kaggar á borð við þennan eru ekki þekktir fyrir sparneytni, en þú sparar hins vegar með Vodafone Passport í farteskinu.
Hvað kostar Passport?
Viðskiptavinir greiða € 1 tengigjald í upphafi en svo gildir sami taxti og ef um innanlandssímtal á Íslandi væri að ræða. Með Vodafone Passport verður gjaldskrá millilandasímtala því gegnsærri og einfaldari. Tengigjaldið er svo gjaldfært aftur á 20 mínútna fresti ef um löng símtöl er að ræða. Með þessum hætti geta viðskiptavinir sparað umtalsvert í símtölum erlendis, sérstaklega þeir sem hringja að jafnaði löng símtöl meðan þeir eru staddir erlendis. Þeir sem hringja að jafnaði mjög stutt símtöl meðan þeir eru erlendis gætu þó mögulega komið betur út úr því að skrá sig ekki í Vodafone Passport.
Skoðaðu landalistann hér fyrir neðan til að sjá í hvaða löndum Passport er í boði. Símtöl frá þessum löndum nema um 83% af öllum reikisímtölum Íslendinga.
Skráningin kostar ekkert
GSM áskrifendur hjá Vodafone geta skráð sig í Passport með því að fara á Mínar síður hér á Vodafone.is, í Vodafone verslunum, með því að hringja í 1414 eða með því að senda SMS-ið passport á 1900.
Vodafone Passport löndin
3rd level navigation
Spurt og svarað
Geta allir skráð sig í Passport?
Passport er eingöngu fyrir þá sem eru með áskrift hjá Vodafone.
Kostar að skrá sig í Passport?
Nei
Er mánaðargjald í Passport?
Nei
Hvað kostar að senda SMS í Passport?
SMS rukkun er sú sama og í almennri verðskrá hvort sem er í Passport löndum eða utan þeirra, € 0,57.
Er hægt að hringja frá einu Passport landi til annars á sömu kjörum?
Nei, hægt er að hringja frá því Passport landi sem ferðalangurinn er staddur í til Íslands og innan þess lands - óháð farsfímafélagi sem hringt er í. Ef hringt er á frá einhverju þeirra 32 landa sem eru í Passport til annarra landa en Íslands gildir almenn verðskrá.
Hvar get ég sótt um Passport?
Með því að skrá þig inn á Mínar síður, með að hringja í 1414, í næstu verslun Vodafone eða með því að senda SMS-ið passport á 1900.
Hvað kosta símtölin erlendis með Passport
Þegar hringt er til Íslands eða í annan síma í sama landi og ferðalangur er staddur í er greitt € 1 upphafsgjald og svo sama mínútugjald og innanlands á Íslandi. Þegar símtöl eru móttekin erlendis er einungis greitt € 1 upphafsgjald en ekkert mínútugjald.
Hvað er tengigjald í Vodafone Passport?
Greitt er tengigjald í upphafi símtals, € 1, og svo sama gjald á 20 mínútna fresti.


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?