3rd
Firma MetroNet
MetroNet Vodafone er fyrsta flokks gagnaflutningsnet (IP / MPLS) sem fullnægir öllum kröfum viðskiptavina um háhraðatengingar, forgangsþjónustu og uppitíma. Við hönnun tenginga viðskiptavina við MetroNet Vodafone eru uppitími, afköst og áreiðanleiki höfð að leiðarljósi.
Með MetroNeti Vodafone getur þú tengt saman höfuðstöðvar og fjölda útibúa með ýmsum hætti. Tengingar innan fyrirtækis eru lokaðar öðrum og eldveggur er milli internetsins og MetroNets.
Mismunandi þarfir viðskiptavina kalla á háhraða nettengingar. Þar má meðal annars nefna talsímaþjónustu, myndfundi, hýsingarþjónustu, flutning á upplýsinga- og sjónvarpsefni og myndsendingar fyrir öryggiskerfi. MetroNet Vodafone sameinar flutning á tali, mynd og gögnum yfir eina og sömu tenginguna til fjölda starfsstöðva og samstarfsaðila.
Netið byggir á viðurkenndum búnaði og er í kjarna og dreifilagi með bandvíðum tengingum milli allra tengipunkta. Þar sem netið er byggt upp af mörgum tengipunktum og enginn einn beinir í lykilhlutverki getur það staðið af sér stór áföll eins og ljósleiðararof og bilanir. Með tryggðum varasamböndum er álaginu dreift og samböndum vísað aðrar leiðir ef ein lokast.
Ávinningur af tengingu við MetroNet Vodafone er m.a.:
Samtenging útibúa
- Mögulegt er að búa til lokað einkanet milli starfsstöðva fyrirtækisins. Með því eru gæði og öryggi tenginga tryggð.
- Með tilkomu einkanetsins eru tengingar fyrirtækisins lokaðar fyrir öðrum, sem kemur einnig í veg fyrir að mikilvæg gögn séu flutt óvarin yfir internetið.
Betri nýting á bandvídd með forgangsröðun gagna
- Með forgangsröðun er hægt að stýra umferð á netinu og raða gögnum eftir mikilvægi. Þar sem talsímalausnir eru meðal annars í boði yfir MetroNet, er hægt að tryggja gæði og þjónustu með forgangsröðun.
Internet
- Vodafone er tengt þremur sæstrengjum við umheiminn; Greenland Connect, Danice og Farice. Leitast hefur verið við að hafa næga bandvídd og sem jafnasta til að tryggja sem besta þjónustu til notenda ef sæstrengur rofnar.
Talsímaþjónusta
- Yfir MetroNetið getur Vodafone boðið viðskiptavinum sínum stafræna talsímaþjónustu. Þar má meðal annars nefna Símaský Vodafone og SIP-stofntengingar. Í Símaskýi er símstöðin hýst hjá Vodafone en notandi leigir símtæki og greiðir einungis fast gjald fyrir hvern notanda. Það kemur í veg fyrir allan stofn- og rekstrarkostnað við eigin símstöð. Með SIP-tengingu leigir viðskiptavinur aðgang að talsímagátt (með forgangsröðun) á MetroNetstengingunni og er sett upp forgangsröðun með það í huga. Viðskiptavinur á og rekur sína eigin símstöð og símtæki í þessum tilfellum.
Þjónusta og eftirlit
- Vodafone býður upp á rekstrarleigu endabúnaðar og sér um eftirlit og þjónustu sem tryggir að enginn aukakostnaður hlýst af bilun í endabúnaði.
- Vaktstöð Vodafone (NOC) er starfrækt allan sólarhringinn og hafa því viðskiptavinir aðgang að tæknimanni í síma hvenær sem er. Ef upp koma alvarlegar bilanir eru viðskiptavinir látnir vita eins fljótt og auðið er. Tengingar á MetroNeti ganga fyrir öðrum tengingum í bilanagreiningum og viðgerð.
- Þegar þú nýtir þér rekstrarleigu okkar hefur þú beinan aðgang að sérfræðingum MetroNets. Það tryggir að brugðist er við fyrirspurnum og beiðnum eins fljótt og kostur er.
Hafðu samband
Íslandspóstur notar MetroNet
„Allir 65 afgreiðslustaðir Íslandspósts eru tengdir saman yfir MetroNet Vodafone. Reynsla okkar af netinu er frábær, sambandið er traust og uppitími kerfisins stenst allar okkar (póst)kröfur.“
Ólafur Tr. Þorsteinsson, forstöðumaður tölvu- og upplýsingatækni. Í viðskiptum síðan 2005.


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?