3rd level navigation
Tryggðu öryggi gagnanna með Vodafone PC Backup
Er afritun ábótavant í þínu fyrirtæki? Við getum aðstoðað þig við að koma málinu í lag á einfaldan hátt. Vodafone býður nú Vodafone PC Backup – einfalda, örugga og hagkvæma lausn á afritunarmálum fyrirtækja. Forðastu stórslys - komdu afritunarmálum fyrirtækisins í öruggt horf í eitt skipti fyrir öll.
Með PC Backup fer afritunartaka sjálfvirkt fram yfir netið sem þýðir að spólur, utanáliggjandi harðir diskar og önnur umsýsla eru úr sögunni. Þú stillir afritunartökuna einu sinni – og getur svo treyst því að mikilvæg gögn séu ávallt við höndina ef eitthvað kemur upp á.
Eftir fyrstu afritun er ráðlagt að taka afrit að minnsta kosti daglega.
Þá er einungis tekið afrit af þeim skrám sem hafa breyst frá síðustu afritun.
Vodafone PC Backup er:
Einfalt
- Hver notandi stillir hvaða möppur og gögn eigi að afrita og hvenær, og PC Backup sér um rest.
- Ef gögn tapast er valið hvaða gögn eigi að endurheimta og PC Backup bjargar málunum.
- Viðmót kerfisstjóra er einfalt í notkun og utanumhald lítið
Öruggt
- Afritar ekki bara gögn af sameiginlegum netdrifum, heldur líka vinnutölvum starfsfólks.
- Sjálfvirkni dregur úr hættu á gleymsku eða öðrum mannlegum mistökum við afritunartöku.
- Gögn eru dulkóðuð samkvæmt ströngustu stöðlum við afritun og geymd í tvíriti á öruggum netþjónum Vodafone.
- Geymsla afrita utanhúss þýðir að gögnin glatast ekki við húsbruna, innbrot eða önnur áföll á vinnustað.
Einfalt er að stilla hvaða skrár eigi að afrita og hverjar ekki.
T.a.m. má velja að allar ritvinnsluskrár eigi að afrita en sleppa skuli myndböndum.
Hagkvæmt
- Enginn kostnaður við vélbúnað.
- Enginn stofnkostnaður.
- Lítið utanumhald kerfisstjóra eða annarra starfsmanna.
- Fast, lágt mánaðargjald fyrir hvern notanda.
- Ekki þarf að ræsa út tæknimenn til að endurheimta skrár.
PC Backup byggir á afritunarlausnum Mozy, sem hafa fengið viðurkenningar stórblaða á borð við PC Magazine, PC World, Wall Street Journal, New York Times, Newsweek, Business Week, Forbes og Mac Life, svo nokkur séu nefnd. Ríflega 70.000 fyrirtæki um allan heim nýta sér þessar afritunarlausnir og notendur eru vel á aðra milljón.
Innskráning fyrir notendur PC Backup
Notendur PC Backup geta smellt á eftirfarandi tengil til að skrá sig inn á afritunarsvæðið til að endurheimta gögn (notað er notendanafn og lykilorð sem búið var til þegar afritunin var sett upp í fyrsta skipti):
Stjórnendur geta smellt á eftirfarandi tengil til að stilla þjónustuna:
Leiðbeiningar um notkun og stillingar PC Backup (PDF).
Komdu afritunarmálunum á hreint
Vodafone PC Backup hentar fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband við ráðgjafa okkar og kynntu þér hvernig þú getur komið þínum afritunarmálum á hreint í eitt skipti fyrir öll.
Kíktu í heimsókn til fyrirtækjasviðs Vodafone í Skútuvogi 2, sláðu á þráðinn í 599-9500 eða fylltu út formið hér fyrir neðan og við höfum samband um hæl.


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?