3rd
3G Nettengill
Nettenging á ferð og flugi
GSM þjónustusvæði Vodafone er orðið það stærsta á Íslandi, með tilkomu nýrra langdrægra GSM senda sem m.a. tryggja viðskiptavinum Vodafone talsamband í allt að 100 kílómetra á haf út sem og á hálendinu.
Vodafone býður upp á fjölbreyttar leiðir fyrir viðskiptavini til að tengjast netinu í gegnum 3G. Hægt er að tengjast netinu í símanum sínum, nota símann til að tengja tölvuna, tengja tölvuna við netið í gegnum 3G nettengil eða setja upp sinn eigin heita reit með Vodafone MiFi eða netbeini.
Nettengillinn
3G Nettengillinn gefur þér tækifæri á að taka nettenginguna með þér, hvert sem þú ferð. Nettengillinn er mjög fyrirferðarlítill og einfaldur í notkun. Honum er stungið í samband við tölvuna og fyrr en varir getur þú notað internetið á allt að 7,2 Mb/s hraða.
Nettengillinn virkar jafnt fyrir Windows og Mac, fartölvur og borðtölvur. Hann er USB tengdur og styður HSDPA, UMTS, EDGE og GPRS. Kynntu þér nettengilinn betur.
Vodafone 3G MiFi
Vodafone MiFo er fyrirferðalítill beinir sem gerir þér kleift að tengja allt að fimm tæki sem eru með virkt WiFi (t.d tölvu, ipad, leikjatölvu og tónlistarspilara) yfir eina þráðlausa 3G nettengingu á öruggan máta. Kynntu þér Vodafone MiFi.
3G Netbeinir
Vodafone Netbeinir (Huawei B260) er netbeinir sem nota má til að setja upp þráðlaust net og deila 3G tengingu. Hægt er einnig að tengja hefðbundinn borðsíma við beininn og nota hann til að hringja símtöl.
Beinirinn hentar afar vel fyrir þá sem þurfa að komast í netsamband þar sem ekki er fastlínutenging eins og ADSL eða ljósleiðari. Beinirinn hentar því vel í sumarbústaði, bíla eða báta.
Beinirinn er með innbyggðu loftneti en einnig er hægt að tengja utanáliggjandi loftnet við hann og ná þannig ennþá betra sambandi. Kynntu þér 3G Netbeininn
Á netið með símanum þínum
Símtækið kemur tölvunni þinni á netið. Með viðeigandi hugbúnaði getur þú notað símtækið þitt til að fara á netið í tölvunni. Notkun er þá greidd af farsímanúmerinu þínu.
Með þessari tækni getur þú vafrað um internetið í tölvunni svo lengi sem það er gagnasamband. Hringt og tekið á móti símtölum þó svo að síminn sé tengdur við tölvuna og þarft engar áhyggjur að hafa af líftíma rafhlöðunnar því flestir símar hlaða sig í gegnum tölvuna á meðan þeir eru tengdir með USB-snúru. Kynntu þér málið nánar.
3G net - Hagkvæmari gjaldskrá
Hagkvæmari gjaldskrá erlendis
Þú þarft ekki að skilja skrifstofuna eftir heima þegar þú ferð utan. Nú bjóðum við sérstakt daggjald fyrir notkun með Nettenglinum í útlöndum. Skráðu þig fyrir þjónustunni og þá greiðir þú ákveðið daggjald fyrir hvern sólarhring. Innifalið í daggjaldinu er 50 MB niðurhal, en umframnotkun kostar 1,65 evru hvert MB.
Sjáðu lista af löndum og farsímafélögum sem eru í boði erlendis.
Vodafone tryggir jafnframt að viðskiptavinir Vodafone þurfi ekki að hafa áhyggjur af óvænt hærri símreikningnum ef þeir nota gagnamagnstengingu farsímans í útlöndum. Allir viðskiptavinir Vodafone eru sjálfkrafa með 50 evru þak á mánuði vegna slíkrar netnotkunar, hvar sem er í heiminum. Ef þú þarft gagnamagn umfram 50 evru þakið er hægt að stilla notkunina inn á Mínum síðum eða með einu símtali í fyrirtækjaþjónustu í síma 599-9500.


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?