3rd level navigation
Netið í símann
Netið í símann
Að geta notað netið í símanum er mikilvægt fyrir starfsfólk á faraldsfæti, því þannig getur það t.a.m. lesið og svarað tölvupósti með öllum nýjustu farsímunum. Einnig er hægt að nota farsímana til að nettengja fartölvuna og þannig nýtist síminn enn betur þegar starfsfólk þarf að nettengjast fjarri skrifstofunni.
Vodafone býður fyrirtækjum mismunandi gagnamagnspakka og hjálpa fyrirtækjaráðgjafar við að finna þann pakka sem hentar best hverju sinni. Í Firma farsímapökkum Vodafone er ákveðið gagnamagn ávallt innifalið. Mikilvægt er að huga að því að áskriftaleiðin innihaldi nægilegt gagnamagn til þess að ekki komi til aukakostnaðar við niðurhal
Kynntu þér málið! Starfsfólk fyrirtækjasölu okkar í Skútuvogi 2 tekur vel á móti þér, kíktu í heimsókn, sláðu á þráðinn í 599 9500 eða sendu okkur línu.
Gagnamagn erlendis
Þú getur líka notað símtækið til að tengjast netinu í gegnum tölvuna erlendis. Vodafone tryggir að viðskiptavinir Vodafone þurfa ekki að hafa áhyggjur af óvænt hærri símreikningnum. Allir viðskiptavinir Vodafone eru sjálfkrafa með 50 evru þak á mánuði vegna slíkrar netnotkunar, hvar sem er í heiminum.
Ef þú þarft gagnamagn umfram 50 evru þakið er hægt að stilla notkunina inn á Mínum síðum eða með einu símtali í fyrirtækjaþjónustu í síma 599-9500.
Notaðu farsímann þinn til að fara á netið í tölvunni
Með Via the Phone frá Vodafone er ekki þörf á sérstökum nettengli til að komast á netið í tölvunni. Það eina sem þarf að gera er að hlaða niður litlu forriti, þér að kostnaðarlausu, tengja símtækið við tölvuna með USB snúru, kveikja á forritinu og þú kemst á einfaldan hátt í samband með 3G eða EDGE víðsvegar um landið.
Hægt er að hringja og taka á móti símtölum þó svo að síminn sé tengdur við tölvuna. Litlar áhyggjur þarf að hafa af líftíma rafhlöðunnar því flestir símar hlaða sig í gegnum tölvuna á meðan þeir eru tengdir með USB-snúru við hana.
Leiðbeiningar
- Sæktu Via the Phone hugbúnaðinn fyrir Windows
- Tengdu símtækið við tölvuna með usb-snúru eða bluetooth
- Tvísmelltu á skrána sem þú sóttir og fylgdu leiðbeiningunum á skjánum.
- Eftir að uppsetningu er lokið mun glugginn „Vodafone Mobile Connect via the phone“ birtast, en þar tengist þú og aftengist þjónustunni
- Ítarlegar leiðbeiningar.(PDF)



























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?